18. september 2023 kl. 21:33
Íþróttir
Fótbolti

Jafn­tefli í Kórnum

HK og Fram áttust við í fyrstu umferð neðri hluta Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. Liðin skildu jöfn, 1-1, sem þýðir að Fram lyftir sér úr fallsæti en er þó með 20 stig líkt og ÍBV sem er í 11. sæti deildarinnar.

Framarar fengu víti á 27. mínútu þegar brotið var á Jannik Pohl en Fred skaut himinhátt yfir markið og markalaust var í hálfleik.

Heimamenn komust yfir þegar seinni hálfleikur var þriggja mínútna gamall eftir að Arnþór Ari skallaði boltann í netið eftir aukaspyrnu. Fram fékk aftur vítaspyrnu á 77. mínútu og aftur var brotið á Pohl. Hann tók vítaspyrnuna sjálfur í þetta skiptið og skoraði af öryggi.

Bæði lið sóttu til sigurs undir lok leiks en hvorugu liðinu tókst að bæta við markið og 1-1 því lokatölur.