„Við þurfum að gera betur“ Valur Páll Eiríksson skrifar 18. júní 2021 23:00 Southgate þakkar áhorfendum á Wembley eftir leik kvöldsins. Danehouse/Getty Images/Chloe Knott Gareth Southgate, þjálfari enska karlalandsliðsins í fótbolta, var ekki nægilega sáttur við sína menn í markalausu jafntefli þeirra við Skotland í D-riðli Evrópumótsins í fótbolta í kvöld. „Við gerðum ekki nóg til að vinna leikinn. Ef þú ert ekki að fara að vinna leik á móti þarftu allavega að vera viss um að hann tapist ekki. Við skiljum vel að þetta eru vonbrigði fyrir stuðningsmenn okkar sérstaklega, en við þurfum að hrista þetta af okkur og mæta af krafti í næsta leik.“ sagði Southgate eftir leik. Athygli vakti þegar Harry Kane, stjörnuframherja liðsins, var skipt af velli þegar stundarfjórðungur var eftir. Southgate segir enska liðið hafa skort kraft. „Mér fannst við þurfa fleiri hlaup á bakvið þá, okkur fannst að Rashford gæti veitt okkur þá orku og við þurftum að reyna við sigurinn á þeim tímapunkti.“ „En ég held að allt liðið, við þurfum að líta inn á við, sem byrjar á mér, við þurfum að gera betur. Við vitum að við gerðum ekki nóg til að vinna leikinn í kvöld, ekki nóg af marktilraunum, svo það er eitthvað sem við þurfum að skoða næstu daga.“ sagði Southgate. England er með fjögur stig eftir fyrstu tvo leiki sína í riðlinum, líkt og Tékkland. Liðin mætast innbyrðis í lokaleik sínum í riðlinum og keppast um toppsæti hans þann 22. júní. Skotland mætir þá Króatíu í leik sem getur ráðið úrslitum hvort liðanna fer áfram.
Við gerðum ekki nóg til að vinna leikinn. Ef þú ert ekki að fara að vinna leik á móti þarftu allavega að vera viss um að hann tapist ekki. Við skiljum vel að þetta eru vonbrigði fyrir stuðningsmenn okkar sérstaklega, en við þurfum að hrista þetta af okkur og mæta af krafti í næsta leik.“ sagði Southgate eftir leik. Athygli vakti þegar Harry Kane, stjörnuframherja liðsins, var skipt af velli þegar stundarfjórðungur var eftir. Southgate segir enska liðið hafa skort kraft. „Mér fannst við þurfa fleiri hlaup á bakvið þá, okkur fannst að Rashford gæti veitt okkur þá orku og við þurftum að reyna við sigurinn á þeim tímapunkti.“ „En ég held að allt liðið, við þurfum að líta inn á við, sem byrjar á mér, við þurfum að gera betur. Við vitum að við gerðum ekki nóg til að vinna leikinn í kvöld, ekki nóg af marktilraunum, svo það er eitthvað sem við þurfum að skoða næstu daga.“ sagði Southgate. England er með fjögur stig eftir fyrstu tvo leiki sína í riðlinum, líkt og Tékkland. Liðin mætast innbyrðis í lokaleik sínum í riðlinum og keppast um toppsæti hans þann 22. júní. Skotland mætir þá Króatíu í leik sem getur ráðið úrslitum hvort liðanna fer áfram. EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 verður einnig hægt að kaupa stakt á kr. 6.990 en fyrir viðskiptavini með aðra áskrift en ofangreindar frá Stöð 2 kostar áskriftin kr. 3.990.
EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 verður einnig hægt að kaupa stakt á kr. 6.990 en fyrir viðskiptavini með aðra áskrift en ofangreindar frá Stöð 2 kostar áskriftin kr. 3.990.
EM 2020 í fótbolta Mest lesið Aðstoðardómarinn bað Bæjara afsökunar: „Þetta er hörmung“ Fótbolti Færeyingar hársbreidd frá fyrsta heimsmeistaramótinu Handbolti Uppgjörið: Ísland - Eistland 50-25 | Stigu bensínið í botn frá fyrstu mínútu Handbolti „Þegar ég var sjö ára í Birmingham dreymdi mig um svona kvöld“ Fótbolti Stuðningurinn ómetanlegur: „Farið í dýpstu leyndarmálin“ Sport „Ánægður að við sýndum þá hlið að við getum verið góðir í sextíu mínútur“ Handbolti Þakklátur eftir fyrsta landsleikinn: „Tek bara einn dag fyrir í einu“ Handbolti „Ekkert sjálfgefið að valta yfir lið“ Handbolti „Á flestum sviðum körfuboltans voru þeir bara betri en við“ Körfubolti Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 96-71 | Gulklæddir flengdu Keflvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir „Þegar ég var sjö ára í Birmingham dreymdi mig um svona kvöld“ Aðstoðardómarinn bað Bæjara afsökunar: „Þetta er hörmung“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Valur 1-2 | Meistararnir komu til baka suður með sjó Joselu hetjan þegar Real Madrid fór í úrslit í enn eitt skiptið „Eitthvað sem þær þurfa að svara fyrir á fundi á morgun“ Uppgjörið og viðtöl: FH - Þróttur 1-0 | Sigurmark á 96. mínútu Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - Stjarnan 5-1| Blikar kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Fiorentina aftur í úrslit Sambandsdeildarinnar Gamli FH-ingurinn kom Fredrikstad áfram í bikarnum Dæmdur fyrir aðstoð við morð en valinn í landslið Síle Enrique hneykslaður: „Er þér alvara?“ „Spáin hjálpar okkur frekar en eitthvað annað“ Stolni gullhnöttur Maradona boðinn upp „Mbappé kann ekki að vera hetja“ Gummi Ben og félagar tímamældu leiktafir KR-ingsins Sjáðu Hummels gera það sem Mbappé og félögum tókst ekki Stórveldi með gjörólíka hugmyndafræði berjast um sæti í úrslitum Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins „Höfum vaxið með hverjum leik“ Dortmund í úrslit eftir sigur í París Telja að Man United hafi saknað leiðtogahæfileika Martínez Þurfa leyfi til að taka þátt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð Arnar í tveggja leikja bann Aðeins einn uppalinn Valsmaður í Bestu deild karla „Maður hefur verið milli tannanna á fólki síðan maður var ungur“ „Tveir Víkingar? Ég er bara hissa“ Adam hundfúll og Arnar beint í símann Vatnstjónið vísar Stólum til Akureyrar Forest í bullandi fallhættu vegna bulls í fjármálum Napoli í kapphlaupið um Albert Sjá meira