Stór plástur í sár á útidyrahurðinni á Siglufjarðarkirkju Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. mars 2023 16:10 Hægri hurðin er komin í viðgerð en krossviðsplata fyllir í gatið. Sigurður Ægisson Allt helgihald fellur niður í Siglufjarðarkirkju á sunnudag eftir að útidyrahurð kirkjunnar gaf sig í vindi í morgun. Meðhjálpari segir að hurðin verði lagfærð en svo verði blankur söfnuðurinn að finna leið til að fjárfesta í nýrri hurð. Þessi sé komin vel til ára sinna.
Það var á sjöunda tímanum í morgun sem bankað var hjá Jóni Andrjesi Hinrikssyni á Siglufirði. Svipað var uppi á teningnum fyrir þremur til fjórum árum. Sami maður á ferð. „Þá var hurðin opin, skökk og snúinn. Enda er hún barn síns tíma. Í morgun var hún fokin af og lá alveg úti á stétt. Hékk ekki einu sinni á hjörunum,“ segir Jón Andrjes. Hann lýsir sér sem meðhjálpara í hjáverkum við kirkjuna. Hann segir sem svo virðist sem læsingin hafi verið biluð. En hurðin sé svo að segja ónýt. Þó eigi að lappa upp á hana, „hrækja í þetta“ eins og Jón Andrjes kemst að orði, en svo þurfi að fjárfesta í nýrri hurð. „Þótt söfnuðurinn sé blankur.“ Hurðin féll á stéttina en var borin inn á kirkjugólf áður en hún var flutt í góðar hendur siglfirskra smiða.Sigurður Ægisson Hvasst hefur verið á Siglufirði undanfarið í framhaldi af dúnalogni sem var í blíðviðri en kulda á mánudaginn. Smiðir á Siglufirði brugðust skjótt við í morgun. Krossviðsplötu var smellt í gatið svo ekki blæs inn. Þó verður ekkert af messuhaldi um helgina, hvorki barnastarfi né gospelmessa. Hurðin er að líkindum um níutíu ára gömul eða jafngömul kirkjunni. Sigurður Ægisson sóknarprestur, sem greindi frá tíðindunum á Facebook, segir ljóst að kostnaður við kaup á nýrri hurð hlaupi á tveimur til þremur milljónum. Huga þurfi að lausn til langtíma. En á meðan sé allt gert til að helgistarf um páskana geti farið fram samkvæmt áætlun.
Fjallabyggð Þjóðkirkjan Veður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira