Veifaði peningamerki og fékk tveggja leikja bann síðast þegar hann mætti Rosenborg Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. júlí 2021 12:46 Ólafur Jóhannesson á hliðarlínunni í fyrri leik Vals og Rosenborgar 2018. vísir/bára Á ýmsu gekk síðast þegar Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH, stýrði liði gegn Rosenborg. Handabending hans kostaði hann tveggja leikja bann.
Strákarnir hans Ólafs í FH taka á móti Rosenborg í fyrri leik liðanna í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu í kvöld. Leikur FH og Rosenborgar hefst klukkan 19:00 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2. Rosenborg hefur verið tíður gestur hér á landi undanfarin ár. Liðið mætti Breiðabliki 2011, KR 2016 og Val 2018 í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Valsmenn unnu fyrri leikinn gegn Rosenborg á Hlíðarenda, 0-1, með marki Eiðs Arons Sigurbjörnssonar. Á miklu gekk svo í seinni leiknum á Lerkendal í Þrándheimi. Valsmenn fagna marki Eiðs Arons Sigurbjörnssonar gegn Rosenborg.vísir/bára Búlgarski dómarinn Stefan Apostolov dæmdi þrjár vítaspyrnur í leiknum, allar umdeildar. Nicklas Bendtner kom Rosenborg yfir úr fyrsta vítinu á 55. mínútu og á 72. mínútu jók Anders Trondsen forskot norska liðsins. Kristinn Freyr Sigurðsson minnkaði muninn í 2-1 úr víti á 85. mínútu og ef leikurinn hefði endað þannig hefði Valur farið áfram. En í uppbótartíma fékk Rosenborg sitt annað víti sem Bendtner skoraði úr og felldi Val úr leik. Valsmenn voru afar ósáttir við störf Apostolovs og eftir leik sýndi hann peningamerki upp í stúku. Eftir leikinn vandaði hann Apostolov ekki kveðjurnar í viðtali við Fótbolta.net en sagðist ekki muna eftir peningamerkinu. Nicklas Bendtner skoraði tvö mörk í seinni leik Vals og Rosenborgar.vísir/bára „Var ég með það? Ég tók nú ekki eftir því. En það er oft þannig í fótbolta að stærri liðunum er hjálpað og mér fannst það vera þannig í þessu tilfelli. Að hann hafi nánast dæmt okkur út úr þessari keppni. Í stöðunni 2-1 dæmdi hann okkur út úr þessari keppni á síðustu mínútunni,“ sagði Ólafur. Fyrir handabendingarnar fékk Ólafur tveggja leikja bann frá UEFA. Hann stýrði Val því ekki í leikjunum gegn Santa Coloma í 2. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar. Valsmenn unnu einvígið, 3-1 samanlagt. Valur, gamla liðið hans Ólafs, tekur á móti Noregsmeisturum Bodø/Glimt í 2. umferð Sambandsdeildarinnar í kvöld. Leikur Vals og Bodø/Glimt hefst klukkan 19:00 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.
Sambandsdeild Evrópu FH Valur Mest lesið Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Fleiri fréttir Tvisvar sinnum rekinn á sama deginum Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Infantino segir samtökunum að hætta „tilgangslausu þrasi“ um leikjaálag Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn „Það eru alltaf einhverjar leiðir sem opnast í pressu“ Nýliðinn í íslenska landsliðinu er markahæst í dönsku úrvalsdeildinni Þorsteinn valdi þrjá nýliða fyrir mikilvæga leiki Svona var blaðamannafundur Þorsteins fyrir mikilvæga leiki Allt í skrúfunni hjá Bæjurum: Tuchel fer eftir allt saman Fjórir af tíu launahæstu íþróttamönnum heims spila í Sádi-Arabíu Fyrsta HM stelpnanna okkar verður vonandi í Brasilíu 2027 Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylki Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Sjá meira