Biðja fólk um að fresta langferðum

Stórhríð er á Holtavörðuheiði.
Stórhríð er á Holtavörðuheiði. mbl.is/Sigurður Ægisson

Þjóðveginum um Öxnadalsheiði hefur verið lokað. Athugað verður hvort hægt verði að opna veginn að nýju í fyrramálið.

Frá þessu greinir Vegagerðin í tilkynningu. Tekið er fram að snjóþekja, hálka eða hálkublettir séu á vegum á Norðurlandi, og víða sé éljagangur og skafrenningur.

Hálka og stórhríð er þá á Holtavörðuheiði. Snjóþekja eða hálka er á flestum öðrum leiðum á Vesturlandi, éljagangur víða og skafrenningur á fjallvegum.

Vegna versnandi veðurspár er fólk beðið um að fresta brottför langferða þangað til síðdegis á morgun.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert