Allt of langt hlé og skaðlegt fyrir lýðræðið Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 22. nóvember 2021 22:01 Stjórnarandstöðuleiðtogarnir eru ósáttir með hve langan tíma hefur tekið fyrir þingið að koma saman og benda á að þessi staða hefði ekki komið upp ef kosið hefði verið að vori en ekki hausti. vísir/bjarni Lengsta hlé á störfum þingsins í rúma þrjá áratugi tekur enda á morgun. Stjórnarandstöðuþingmenn óttast afleiðingar svo langs hlés fyrir lýðræðið en eru langt í frá spenntir að takast á við fyrsta verkefni komandi þings - kjörbréfamálið.
Fundur hefur ekki verið haldinn inni í þingsal í 140 daga. Þingmenn sem sátu einnig á síðasta kjörtímabili fengu því margir ansi langt sumarfrí en eru ekki endilega allir sáttir með það. „Já, við hefðum vilja vera inni í þingsal því að þingið getur svo sannarlega skipt máli núna og ætti auðvitað að vera komið saman fyrir löngu,“ segir Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar. Sumum finnst svona langt hlé beinlínis skaðlegt fyrir lýðræðið. „Ja, ég hefði nú haldið það. Þetta eru orðnir þó nokkuð margir mánuðir. Þetta er bara afleiðing þess að vera með kosningar að hausti til í stað þess að gera það í vor. Ef við hefðum haft kosningar í vor hefðum við haft sumarið til að greiða úr þessum flækjum og mynda ríkisstjórn og allt þetta,“ segir Halldóra Mogensen, þingflokksformaður Píratar. Vafi um kjörbréf 16 þingmanna Þingmenn fagna því eðlilega að komast aftur af stað þó óhætt sé að segja að fæstir þingmenn séu sérstaklega spenntir fyrir fyrsta verkefninu sem bíður þeirra á nýju þingi. Undirbúningskjörbréfanefndin mun ekki birta greinargerðir sínar fyrr en eftir að hin eiginlega kjörbréfanefnd verður skipuð á morgun. Samkvæmt heimildum fréttastofu verða tvær leiðir lagðar fyrir þingið - fyrst sú að samþykkja kjörbréf allra þingmanna nema þeirra 16, sem eru annaðhvort þingmenn í Norðvesturkjördæmi eða jöfnunarþingmenn, því lokatölur í kjördæminu sem óvissan snýst um getur breytt öllum jöfnunarmannakaplinum á þingi. Óvissa ríkir um hvort kjörbréf 16 þingmanna verði samþykkt. vísir Miklar líkur eru á að sú tillaga verði felld en þá verður lögð fyrir þingið tillaga um að samþykkja öll 63 kjörbréfin. Fréttastofa ræddi við nokkra úr þessum 16 manna hópi í dag sem voru afar óvissir um það hvort þeir ætluðu að greiða atkvæði um eigið kjörbréf yfir höfuð. Þar kom helst á óvart að það voru þingmenn flokka af hægri vængnum, Sjálfstæðisflokk og Viðreisn, sem voru hallari undir hugmyndina að sitja hjá en þeir voru þó ekki búnir að taka endanlega ákvörðun um það. vísir
Alþingi Alþingiskosningar 2021 Samfylkingin Píratar Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Endurtalning í Norðvesturkjördæmi Norðvesturkjördæmi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Baldur vinsælasta plan B Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Innlent Fleiri fréttir Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Sjá meira