Anton Sveinn McKee verður í dag fimmti Íslendingurinn til að keppa í úrslitasundi á heimsmeistaramótinu í 50 metra laug þegar synt verður til úrslita í 200 metra bringusundi á HM í Búdapest í dag.
Eðvarð Þór Eðvarðsson varð sá fyrsti árið 1986 þegar hann komst í úrslit í 200 m baksundi á HM í Madríd og hafnaði í áttunda sæti.
Örn Arnarson kom næstur og varð um leið fyrsti og eini Íslendingurinn til að komast á verðlaunapall á mótinu þegar það var haldið í Furuoka í Japan árið 2001. Örn gerði sér lítið fyrir og fékk silfur í 100 metra baksundi og bronsverðlaun í 200 metra baksundi á mótinu.
Hrafnhildur Lúthersdóttir komst í úrslit í 100 metra bringusundi á HM í Kazan í Rússlandi árið 2015 og hafnaði í sjötta sæti.
Eygló Ósk Gústafsdóttir komst í úrslit í 200 metra baksundi á sama móti, HM í Kazan árið 2015, og hafnaði í áttunda sæti.
Anton verður á fimmtu braut í dag, við hliðina á Ólympíumeistaranum og heimsmethafanum Zac Stubblety-Cook frá Ástralíu sem fékk langbesta tímann í undanúrslitum en Anton kom síðan með næstbesta tímann, 2:08,74 mínútur, þar sem hann sló nokkurra klukkutíma gamalt Íslandsmet sitt um tæpa sekúndu.
Brautaskiptingin er þessi í úrslitasundinu sem hefst kl. 17.28 að íslenskum tíma og verður sýnt beint á RÚV:
1 Nic Fink, 28 ára Bandaríkjamaður
2 Matti Mattsson, 28 ára Finni
3 Yu Hanaguruma, 22 ára Japani
4 Zac Stubblety-Cook, 23 ára Ástrali
5 Anton Sveinn McKee, 28 ára Íslendingur
6 Erik Persson, 28 ára Svíi
7 Caspar Corbeau, 21 árs Hollendingur
8 Ryuya Mura, 25 ára Japani
Stubblety-Cook setti heimsmetið á móti í Adelaide í Ástralíu þann 19. maí þegar hann synti á 2:05,95 mínútum og sló met Rússans Antons Chupkovs sem var 2:06,12 mínútur. Hann varð Ólympíumeistari í Tókýó í fyrra.
Mattsson frá Finnlandi fékk bronsverðlaunin á ÓL í Tókýó í fyrra. Bandaríkjamaðurinn Fink varð fjórði, Svíinn Persson sjötti og Japaninn Mura áttundi.
Anton Sveinn mætir því í dag fimm af þeim átta sem kepptu til úrslita á Ólympíuleikunum í fyrra. Þar náði hann sér ekki á strik og hafnaði í 24. sæti á 2:11,64 mínútum. Corbeau varð í 21. sæti en Japaninn Hanaguruma er sá eini í úrslitasundinu í dag sem ekki keppti í greininni á Ólympíuleikunum í Tókýó.