Aðstoðarmaður borgarstjóra ráðinn þróunar- og viðskiptastjóri Veitna Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 5. desember 2022 15:36 Pétur mun meðal annars sjá um samskipti og samhæfingu áætlana milli sveitarfélaga og Veitna. Pétur Krogh Ólafsson hefur verið ráðinn þróunar- og viðskiptastjóri Veitna, dótturfyrirtækis Orkuveitu Reykjavíkur (OR). Pétur mun meðal annars sjá um samskipti og samhæfingu áætlana milli sveitarfélaga og Veitna og mun heyra beint undir Sólrúnu Kristjánsdóttur framkvæmdastýru fyrirtækisins.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Veitum. Breki Logason, stjórnandi Samskipta og samfélags hjá Orkuveitu Reykjavíkur, segir að Pétur hefji störf um áramótin. Aðspurður segir Breki að starfið hafi ekki verið auglýst. Pétur hefur starfað hjá Reykjavíkurborg sem aðstoðarmaður borgarstjóra frá árinu 2014. Áður var hann bæjarfulltrúi í Kópavogi og sinnti ritstjórnar- og markaðsmálum á Skjánum. Pétur er með BA gráðu í sagnfræði og MA gráðu í bókmenntafræði frá Háskóla Íslands. Pétur ótrúlega spenntur „Pétur kemur inn á mikilvægum tímapunkti þegar mikil uppbygging og vöxtur er fram undan ásamt þéttingu byggðar á okkar þjónustusvæðum. Þá erum við í mörgum stórum samstarfsverkefnum með sveitarfélögunum sem Veitur þjónusta. Slík verkefni krefjast mikils samstarfs og samskipta milli uppbyggingaraðila þannig að við erum mjög ánægð með að fá Pétur, sem býr yfir mikilli reynslu á þessu sviði, til liðs við okkur,“ segir Sólrún Kristjánsdóttir framkvæmdastýra Veitna í tilkynningunni. „Með nýju starfi þróunar- og viðskiptastjóra skapast mikil og spennandi tækifæri til að nýta innviði betur og samræma áætlanir milli sveitarfélaga og Veitna. Þannig getum við nýtt tímann og þann öfluga mannauð sem Veitur búa yfir á sem áhrifaríkastan máta. Ég er ótrúlega spenntur að takast á við þessi verkefni enda eru Veitur afar framsækið fyrirtæki og alþjóðlega leiðandi á sínu sviði,“ segir Pétur um ráðninguna í tilkynningunni. Stærsta veitufyrirtæki landsins Fram kemur í tilkynningu að Veitur er stærsta veitufyrirtæki landsins með fjölbreytta og samfélagslega mikilvæga starfsemi. Hlutverk Veitna er að þróa og byggja upp veitukerfi sem eru grundvöllur lífsgæða og gæta þess að viðskiptavinir hafi aðgengi að hitaveitu, rafveitu, vatnsveitu og fráveitu. Veitusvæðið er að mestu á höfuðborgarsvæðinu, en einnig víða á Suður- og Vesturlandi. Lagnir og strengir eru alls níu þúsund kílómetrar að lengd, sem samsvarar vegalengdinni frá Reykjavík til Shanghai. Veitur þjónusta ríflega 70% landsmanna á einn eða annan hátt.
Vistaskipti Reykjavík Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Áhorf á Eurovision hríðfellur Viðskipti innlent Ópíóíða, róandi- og svefnlyf: „Það geta allir orðið háðir þessum lyfjum ómeðvitað“ Atvinnulíf Kynning á yfirlýsingu peningastefnunefndar Viðskipti innlent Rannsaka hvort Tesla hafi blekkt neytendur og fjárfesta Viðskipti erlent Kaupa Íslensk verðbréf Viðskipti innlent Aukið atvinnuleysi Viðskipti innlent Taka bóluefni AstraZeneca úr sölu vegna dvínandi eftirspurnar Viðskipti erlent Ráðin aðstoðarforstjóri og fjármálastjóri Sidekick Viðskipti innlent Gera þrjátíu til fjörutíu kaupsamninga á hverjum degi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Gera þrjátíu til fjörutíu kaupsamninga á hverjum degi Áhorf á Eurovision hríðfellur Aukið atvinnuleysi Kynning á yfirlýsingu peningastefnunefndar Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Ráðin aðstoðarforstjóri og fjármálastjóri Sidekick Kaupa Íslensk verðbréf Rekstrarafkoma Sýnar ekki ásættanleg Einar hættir með Grillbúðina Hætta skerðingum til stórnotenda Davíð Tómas ráðinn framkvæmdastjóri Farþegum fjölgaði og sætanýting um 85 prósent Ráðin forstöðumaður hjá OK Snýr aftur til Snjallgagna Ballið búið fyrir fullt og allt á B5 Yfir milljón farþegar fyrstu fjóra mánuði ársins Háttsemi dómara ekki saknæm og Isavia fær því enga milljarða Mímir nýr forstöðumaður hjá Högum Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Sjá meira