Lífið

Álag í unglingavinnunni leiddi til símtals í Neyðarlínuna

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Elfu Arnardóttur brá heldur betur í brún þegar hún labbaði fram á hreyfingarlausa manneskju á mánudag.Myndin er úr myndasafni og tengist greininni ekki beint. 
Elfu Arnardóttur brá heldur betur í brún þegar hún labbaði fram á hreyfingarlausa manneskju á mánudag.Myndin er úr myndasafni og tengist greininni ekki beint.  Samsett mynd

„Ég varð strax áhyggjufull, þetta var eitthvað svo óhugnanlegt,“ segir Elfa Arnardóttir í samtali við Vísi. Elfu og móður hennar Sesselju brá heldur betur í brún síðasta mánudag þegar þær voru í göngu skammt frá heimili Sesselju á Selfossi.

Sáu hreyfingarlausa manneskju á gangstéttinni

„Okkur sýndist við sjá manneskju, þá í töluverðri fjarlægð, liggjandi á gangstéttinni. Við fylgdumst því vel með henni þegar við löbbuðum í átt að henni, sem var þó drjúgur tími, og aldrei hreyfði hún sig.“

Eftir því sem nær dró staðfestu þær grun sinn um að um manneskju væri að ræða og þegar þær sáu að hún var algjörlega hreyfingarlaus fóru þær að ókyrrast. 

Já, ég varð strax áhyggjufull, þetta var svo óhugnanlegt því hún lá bara þarna á maganum á miðri gangstétt og búin að vera hreyfingarlaus síðan við sáum hana.

Hringdi strax í 112

Elfa ákvað því að hringja strax í Neyðarlínuna til að fá aðstoð og ráðleggingar hvernig hún ætti að snúa sér. Hún segist sjálf ekki hafa treyst sér alveg nálægt manneskjunni því hún hafi ekki vitað hverju við var að búast og alls ekki litist á blikuna. 

Sem betur fer hafi þá maður komið hjólandi til þeirra og boðist til að athuga með stöðuna á hreyfingarlausri manneskjunni.

„Ég stend þá aðeins frá og er að lýsa fyrir manneskjunni hjá Neyðarlínunni hvar ég er staðsett þegar maðurinn labbar rólega í áttina að mér," segir Elfa en þá hafi átt að senda bæði lögreglu og sjúkrabíl á vettvang.

Engar áhyggjur

 Elfa segist ekki alveg hafa verið að átta sig þegar maðurinn svo kom gangandi rólega til sín og sagði brosandi:  

Þið þurfið ekki að hafa neinar áhyggjur! Þetta er bara unglingur að hvíla sig í hádegispásunni sinni í unglingavinnunni!

Í spennufallinu og geðshræringunni segist Elfa þá hafa fengið svo mikið hláturskast að manneskjan hjá Neyðarlínunni, sem hún var með í símanum, hafi ekki áttað sig á því hvað var eiginlega að gerast. 

En þegar Elfa hafi loksins náð að koma því út úr sér hvernig í pottinn var búið hafi komið smá þögn á línunni áður svarað var rólega:

„Já, já, hún hefur eflaust verið dauðuppgefin eftir alla erfiðisvinnuna.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×