Þetta staðfestir Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjórinn á Suðurnesjum, í samtali við fréttastofu. Í morgun sagði hann að ákveðið hefði verið að fresta leit seint í gærkvöldi í ljósi þess að ástandið í sprungunni var metið ótryggt og því ekki hægt að tryggja öryggi þeirra sem þar voru við störf.
Mikið hafi rignt á svæðinu síðustu sólarhringa og rigni enn sem geri björgunarfólki afar erfitt fyrir.
Mannsins hefur verið leitað síðan á ellefta tímanum á miðvikudag.