Markaðurinn sér stöðugleika í niðurstöðum kosninganna Snorri Másson skrifar 27. september 2021 12:40 Jón Bjarki Bentsson aðalhagfræðingur Íslandsbanka. Vísir Kauphöllin er græn á fyrsta virka degi eftir Alþingiskosningar. Komið hefur fram að sitjandi ríkisstjórn á nú í viðræðum um að halda áfram samstarfinu og aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir viðbúið að markaðir bregðist vel við slíkum stöðugleika.
Úrvalsvísitalan í Kauphöllinni hefur hækkað um 2,5% það sem af er degi, sem er betri tölfræði en sést hefur á síðustu vikum vegna óvissu um stjórnmálin og sömuleiðis neikvæðra tíðinda á heimsmörkuðum. Mest viðskipti í morgun hafa verið með bréf í Arion banka eða fyrir 1,1 milljarð og sker bankinn sig þar verulega úr. Mesta hækkunin hefur verið á gengi bréfa hjá upplýsingatæknifyrirtækinu Origo eða sem nemur tæpum sex prósentum. Í sjávarútvegsfyrirtækinu Brim nemur hækkunin fimm og hálfu prósenti. Þá hækka bankarnir allir í fyrstu viðskiptum dagsins. Bréf í Íslandsbanka, Arion banka og Kviku banka hækka öll um þrjú til fjögur prósent. „Þetta er talsverð hækkun á hlutabréfunum og töluverð lækkun á ríkisskuldabréfunum, ekkert sem er óþekkt svosem þegar fréttir sem skipta máli koma fram sérstaklega yfir helgi þar sem markaðar eru lokaðir á meðan. Þannig að þetta er töluverð sveifla en alls ekki eitthvað sem er óalgengt,“ segir Jón Bjarki Bentsson aðalhagfræðingur Íslandsbanka. Ávöxtunarkrafa ríkisskuldabréfa hefur þá lækkað töluvert, sem Jón Bjarki telur ekki síður tíðindi. „Það má lesa sem svo að skuldabréfamegin séu markaðsaðilar kannski að vænta minni verðbólgu og meira aðhalds í ríkisfjármálum en væntingar voru um fyrir helgi, að það verði ekki eins mikil skuldsetning þegar fram í sækir og verðbólgan skaplegri,“ segir Jón Bjarki. Meirihlutinn hélt í kosningunum og formenn ríkisstjórnarflokkanna hafa gefið út að þeir muni ræða möguleikann á áframhaldandi samstarfi. „Þá hafa markaðir umhverfi sem þeir þekkja og óháð horfunum um skattaumhverfi, fjármálastefnu og mögulega hættu á meiri verðbólgu þá er bara stöðugleikinn sjálfur, meiri vissa um nánustu framtíð alltaf jákvæð fyrir markaði,“ segir Jón Bjarki.
Alþingiskosningar 2021 Kauphöllin Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt Viðskipti innlent „Katrín Olga, þetta er eingöngu hálftími af þínu lífi“ Atvinnulíf „Hann eyðileggur alltaf alla stemningu um leið og hann kemur“ Atvinnulíf Að gera ekki algeng mistök sem stjórnandi í fyrsta sinn Atvinnulíf Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Viðskipti innlent „Ég nenni ekki að standa í einhverju veseni“ Atvinnulíf Vilja rannsaka meint samráð með OPEC Viðskipti erlent Nýjum alþjóðaflugvelli á Grænlandi seinkar enn Viðskipti erlent Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Viðskipti innlent Vinnur við að bjarga okkur frá því að drukkna í eigin kúk Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt Bein útsending: „Hvað verður í matinn?“ Skrifuðu undir kaup Landsbankans á TM Reynslubolti í hótelrekstri færir sig um set Icelandair tekur skarpa dýfu niður fyrir útboðsgengi Verðbólgan tekur smá kipp upp á við Wise og Þekking orðin eitt Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Sögðu upp 82 starfsmönnum Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Kaldvík skráð á markað Ofgreiddar lífeyrisgreiðslur nærri tvöfölduðust á milli ára Dæla skyrinu af ísvélum á Skálinni Bein útsending: Framtíð EES til umræðu á þrjátíu ára afmæli Sker úr um hvort veitingamaður hafi mátt borga fyrir kókið Allir halda stjörnu og OTO fær viðurkenningu Ætla að bjóða vaxtalaus lán í aðdraganda mánaðamóta Muni gera meiri kröfur til áfengiskaupenda en flestir aðrir Vilja koma fleirum en Kynnisferðum inn í BSÍ Algjör óvissa með Dragon Dim Sum Landsbankinn telur skilmála sína nógu skýra Orðalag þurfi að vera nægilega skýrt fyrir sæmilega upplýstan neytanda Ráðinn markaðsstjóri Bílabúðar Benna Fetar í fótspor forverans og vildi einn lækka vexti Bein útsending: Efnahagsráðstefna í Reykjavík Kaupsamningum fjölgar en mikið ójafnvægi á leigumarkaði Hætta við hlutafjárútboð og skráningu Íslandshótela Hátt verð fæli ferðamanninn frá Íslandi Deilan um boltann fer alla leið í Hæstarétt Sjá meira