Fyrsta haustlægðin skall með krafti á landið Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 25. september 2022 19:28 Sjór gekk á land á Akureyri í óveðrinu. Bálhvasst var á svæðinu eins og víða annars staðar. Vísir/Tryggvi Björgunarsveitir hafa haft í nógu að snúast í dag við að bjarga ferðamönnum sem sátu fastir í bílum sínum í veðurofsanum. Rúður hafa brotnað í bílum og tré rifnað upp frá rótum. Það flæddi yfir götur og inn í hús á Akureyri og á stórum hluta landsins varð rafmagnslaust í dag.
Fyrsta haustlægðin skall á landið í nótt en veðrið hefur verið lang verst á Austfjörðum, þar sem rauð viðvörun hefur verið í gildi í dag. Björgunarsveitir voru settar í viðbragðsstöðu fyrir og strax eftir hádegi fór útköllum björgunarsveita á Austurlandi að fjölga. Í um tvær klukkustundir í dag var rafmagnslaust á nánast hálfu landinu, frá Blöndu á Norðurlandi að Höfn í Hornafirði eftir að rafmagnslínur í Fljótsdal rofnuðu. Og stormurinn hefur haft áhrif á fleiri innviði en loka hefur þurft vegum á nánast öllum Austurhluta landsins en vindhraði hefur farið upp í þrjátíu og fimm metra á sekúndu og hviður náð upp í fimmtíu og fjóra metra. Vindhraði hefur verið gífurlegur á Austfjörðum í dag og margra áratuga gömul tré hafa rifnað upp með rótum. Fimm sjötíu ára gömul reynitré rifnuðu upp með rótum á Seyðisfirði í nótt og sömu sögu má segja frá Reyðarfirði. „Þetta er tré sem er búið að standa í þessum garði í meira en níutíu ár,“ segir Stefanía Hrund Guðmundsdóttir íbúi á Reyðarfirði í samtali við fréttastofu. Að hennar sögn hefur fjöldi gamalla trjáa rifnað upp með rótum í bænum í dag og í nótt. Veðrið hefur einnig leikið Akureyringa grátt þar sem sjór flæddi inn á Eyrina. „Það var allt rúllandi og fljótandi hér út um allt þannig að þetta er bara ónýtt held ég meira og minna hérna,“ segir Stefán Þór Guðmundsson eigandi SKG verktaka á Akureyri. Það var allt á floti hjá Stefáni í dag.Vísir/Tryggvi „Það var ekkert hægt að gera, ekki neitt. þetta skeði rosalega hratt þannig að maður getur ekkert gert.“ Einhverjum rann blóðið til skyldunnar og reyndu að bjarga því sem hægt var. „Þetta var komið í götuna og við stukkum nokkrir út með kústana að reyna að halda niðurföllunum opnum,“ segir Björn Ingi Óskarsson, íbúi á Eyrinni á Akureyri. Og björgunarsveitir hafa haft í nógu að snúast, bæði á Suðvesturhorninu þar sem veðrið hefur verið hvað best á landinu, en sérstaklega Austanlands. Á þriðja tug ferðamanna hefur setið fastur í bílum á Mývatnsöræfum vegna veðurs og sextíu verið fastir í beitarhúsi á Möðrudal. Björgunarsveitir hafa unnið að því að koma fólkinu til aðstoðar en aðstæður verið erfiðar. „Við báðum alla að vera inni í bílunum þangað til við komum og sækjum þau og ökum þeim niður. Við munum bara skilja öll ökutæki eftir, sumir bílar eru bara ekki gerðir fyrir svona veður og ekki útbúnir. Við bara treystum þeim ekki til að halda áfram á þeim,“ segir Ingibjörg Benediktsdóttir, fulltrúi í aðgerðastjórn björgunarsveitarinnar á Húsavík.
Veður Björgunarsveitir Óveður 25. september 2022 Tengdar fréttir Íbúar í nærliggjandi götum þustu út til aðstoða Menn stóðu í ströngu á Oddeyrinni á Akureyri í dag vegna gríðarlegs vatnsflaums sem þar hafði flætt um götur og inn í hús á neðsta hluta Eyrinnar. Íbúar í nærliggjandi götum voru mættir á vettvang til að leggja opinberum starfsmönnum lið í baráttunni. 25. september 2022 18:02 „Það er allt í skrúfunni“ „Það er allt í skrúfunni, það er bara svoleiðis,“ segir formaður aðgerðastjórnar björgunarsveita á Austurlandi. Veðrið sé mjög slæmt á Austfjörðum og spár virðast ætla að ganga eftir. 25. september 2022 15:35 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Erlent Quang Le hakkaður á Facebook Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Innlent Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Innlent Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Erlent Hver er Kári Hansen? Innlent Fleiri fréttir Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Facebook-hakkið hafi ekki áhrif á rannsóknina Hver er Kári Hansen? Nokkurra bíla árekstur á Miklubraut Hafa áhyggjur af fylgistapi flokksins Umferðartafir vegna elds í tengivagni Heimta hundrað milljóna króna tryggingu Engin merki um að kvikuhlaup sé hafið eða að hefjast Gæsluvarðhald beggja framlengt Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Leggja til kröfu um sólarsellur á þaki nýbygginga Úrskurðaður í síbrotagæslu eftir ofsaaksturinn Svona var Pallborðið með Helgu Þóris og Eiríki Inga Birna sett sýslumaður á Vesturlandi Segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu Umdeildu frumvarpi um lagareldi breytt Matvælaráðherra segir fiskeldisfrumvarp mikla bragarbót fyrir umhverfið Quang Le hakkaður á Facebook Bein útsending: Kynna skýrslu um aðra orkukosti Aukin virkni í gosinu Grænt ljós á Láka og Flata en ekki Libyu Sjá meira
Íbúar í nærliggjandi götum þustu út til aðstoða Menn stóðu í ströngu á Oddeyrinni á Akureyri í dag vegna gríðarlegs vatnsflaums sem þar hafði flætt um götur og inn í hús á neðsta hluta Eyrinnar. Íbúar í nærliggjandi götum voru mættir á vettvang til að leggja opinberum starfsmönnum lið í baráttunni. 25. september 2022 18:02
„Það er allt í skrúfunni“ „Það er allt í skrúfunni, það er bara svoleiðis,“ segir formaður aðgerðastjórnar björgunarsveita á Austurlandi. Veðrið sé mjög slæmt á Austfjörðum og spár virðast ætla að ganga eftir. 25. september 2022 15:35