Hjörtur skoraði í vondu tapi

Hjörtur Hermannsson í baráttunni við Bukayo Saka í leik Íslands …
Hjörtur Hermannsson í baráttunni við Bukayo Saka í leik Íslands og Englands í nóvember síðastliðnum. AFP

Varnarmaðurinn Hjörtur Hermannsson var á skotskónum þegar lið hans Brøndby tapaði 2:4 á útivelli gegn Randers í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Hjörtur skoraði fyrsta mark leiksins og kom þannig Brøndby í forystu á 16. mínútu.

Eftir það seig á ógæfuhliðina og jafnaði Randers eftir tæplega háltíma leik og skoraði svo tvö mörk í upphafi síðari hálfleiks, staðan því orðin 1:3.

Simon Hedlund minnkaði muninn fyrir Brøndby á 73. mínútu en Tobias Klysner Breuner gerði endanlega út um leikinn á 87. mínútu þegar hann skoraði fjórða mark Randers.

Brøndby fór þar með afar illa að ráði sínu en liðið á í harðri baráttu við Midtjylland um danska meistaratitilinn.

Leikur Midtjylland gegn Nordsjælland var að hefjast og með sigri getur Midtjylland aukið forskot sitt á toppnum í fjögur stig.

Mikael Anderson byrjar á varamannabekk Midtjylland í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert