Sérfræðingar SB ósammála um hvort Berglind átti að fá rauða spjaldið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. nóvember 2021 14:01 Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir meiddi sig illa við fallið í gólfið og var born af velli. Skjámynd/S2 Sport Seinni bylgjan ræddi rauða spjaldið sem Haukakonan Berglind Benediktsdóttir fékk þegar Haukarnir heimsóttu HK í Kórinn í síðustu umferð Olís deildar kvenna í handbolta.
Berglind Benediktsdóttir reyndi að útskýra sitt mál og að hún hafi bara verið í venjulegri varnarstöðu.Skjámynd/S2 Sport Berglind fékk beint rautt spjald fyrir brot á HK-ingnum Valgerði Ýr Þorsteinsdóttur í fyrri hálfleiknum. Valgerður varð búin að skora fjögur af fyrstu tíu mörk HK í leiknum en var borin meidd af velli í kjölfar brotsins. „Berglind fær beint rautt spjald fyrir þetta brot á Völu. Stelpur hvað finnst ykkur um þetta? Hún fær bláa spjaldið og allt saman og strákarnir hikuðu ekki,“ sagði Svava Kristín Gretarsdóttir, umsjónarkona Seinni bylgjunnar. „Mér finnst þetta vera rautt út af afleiðingunni. Hún dettur það illa. Þetta er ekki eitthvað brútalt brot. Vala hoppar þarna upp og er að fara að senda hann. Hún lendir illa,“ sagði Sunneva Einarsdóttir, sérfræðingur í Seinni bylgjunni. „Mér finnst þetta rautt, þetta er bara afleiðingin. Þetta er hættulegt að lenda og ógeðslega vont. Mér fannst samt ekki mikill ásetningur í þessu,“ sagði Sunneva. „Hún er borin út af á börum. Það fyrsta sem við hugsuðum, held ég allar, var grindin,“ sagði Svava Kristín og Anna Úrsúla var sammála. Valgerði Ýr er nýkomin til baka eftir að hafa eignast barn. Sunneva var reyndar ekki á því að hafa hugsað um það eins og hinar. Sérfræðingarnir Anna Úrsúla Guðmundsdóttir og Sunneva Einarsdóttir. Anna Úrsúla sýnir hér tökin og hvað Berglind átti að gera betur.Skjámynd/S2 Sport Anna Úrsúla var heldur ekki sammála Sunnevu um að Berglind hafi átt að fá rauða spjaldið frá dómurum leiksins. „Ég er leiðinlega týpan en mér fannst þetta ekki vera rautt spjald. Mér fannst þetta reynsluleysi hjá henni að hjálpa henni ekki aðeins með að taka undir hana,“ sagði Anna Úrsúla og sýndi tökin sem hún hefði notað. „Hún er ekki að ýta henni til að meiða hana. Hún er í venjulegri stöðu. Jú, Vala dettur illa og hún hefði kannski getað gripið hana. Beint rautt og svo beint blátt, það fannst mér svolítið dýrt,“ sagði Anna Úrsúla. Það má sjá brotið og umfjöllunina hér fyrir neðan. Klippa: Seinni bylgjan: Átti Berglind að fá rautt spjald eða ekki?
Olís-deild kvenna Seinni bylgjan Haukar HK Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport Sigríður Á. Andersen varð Íslandsmeistari Sport Markasúpa þegar Liverpool komst á sigurbraut Enski boltinn Leik lokið: KA-KR 1-1 | Smit stelur fyrirsögnunum enn og aftur Íslenski boltinn Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Enski boltinn Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Enski boltinn Hetja Keflvíkinga hafði aldrei áður skorað svona flautukörfu á ferlinum Körfubolti Búið að fjarlægja auglýsingarnar af gólfinu í Smáranum Körfubolti „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Segir „mjög líklegt“ að Guðlaug Edda komist á ÓL í París í sumar Sport Fleiri fréttir Magdeburg á toppinn eftir stórleik Íslendinganna Fyrsta tap lærisveina Guðjóns Vals síðan í byrjun mars Öruggt hjá Teiti Erni og félögum HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Grótta upp í Olís eftir sigur með minnsta mun í oddaleik Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Jóhanna Margrét frábær í góðum sigri Skara Viggó fór á kostum í góðum sigri Leipzig Reiður Einar hellti sér yfir eftirlitsdómarana Hættir eftir að hafa komið Fjölni upp „Við vorum bara ekki á svæðinu“ Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri PSG tókst ekki að leika ótrúlega endurkomu Kiel eftir Fjölnir tryggði sér sæti Olís deildinni á næsta tímabili Svekkjandi tap lækkar líkurnar hjá lærisveinum Arnórs Kielce kærir leikinn gegn Magdeburg Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Bjarki Már og félagar úr leik Haukakonur sópuðu Fram í sumarfrí og mæta Val í úrslitum Róbert fer frá Drammen og vill spila nærri Andreu Löwen í undanúrslit þrátt fyrir fína frammistöðu Orra Freys „Vantaði meiri breidd til þess að veita þeim harðari keppni“ Sjá meira