Guðjohnsen fjölskyldan búin að skila íslensku landsliðunum áttatíu mörkum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. október 2021 10:30 Andri Lucas Guðjohnsen þakkar bróður sínum Sveini Aroni Guðjohnsen fyrir stoðsendinguna. AP/Brynjar Gunnarsson Mark Andra Lucasar Guðjohnsen á móti Liechtenstein var tímamótamark fyrir Guðjohnsen fjölskylduna. Þetta var mark númer áttatíu sem landsliðsmaður úr Guðjohnsen fjölskyldunni hefur skorað á sínum landsliðsferli. Hér erum við að tala um mörk fyrir öll íslensku landsliðin frá sextán ára landsliðinu og upp úr. TAKK GUÐJOHNSEN, segir Gunnar Birgisson - Annað landsliðsmark Andra Lucasar og hver annar en bróðir hans Sveinn Aron skallaði boltann á hann. Ísland 4-0 Liechtenstein pic.twitter.com/CbXX8ZD320— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) October 11, 2021 Eiður Smári Guðjohnsen hefur skilað flestum mörkum fyrir íslensku landsliðin eða alls 39 mörk í 135 landsleikjum. Andri Lucas er þegar kominn upp í annað sætið í fjölskyldunni með 16 mörk í 37 landsleikjum en afi hans Arnór Guðjohnsen skoraði á sínum tíma 14 mörk í 76 landsleikjum. Arnór spilaði aðeins þrjá leiki fyrir yngri landsliðin. Sveinn Aron Guðjohnsen er í fjórða sæti með 11 mörk í 39 landsleikjum en enginn úr Guðjohnsen ættinni hefur þó skorað fleiri mörk fyrir 21 árs landsliðið. Sveinn Aron var með 7 mörk í 17 leikjum fyrir 21 árs landsliðið. Daníel Tristan Guðjohnsen á enn eftir að skora fyrir íslensku landsliðinu en hann hefur þó aðeins náð að spila tvo leiki fyrir sautján ára landsliðið enda ennþá bara fimmtán ára gamall. Samtals hafa mennirnir úr Guðjohnsen fjölskyldunni skorað 80 mörk í 289 landsleikjum. 42 þeirra hafa komið með A-landsliðinu, 12 með tuttugu og eins árs landsliðinu, 9 með nítján ára landsliðinu, 12 með sautján ára landsliðinu og 5 með sextán ára landsliðinu. Eiður Smári hefur skorað flest mörk fyrir A-landsliðið (26), Sveinn Aron hefur skorað flest fyrir 21 árs landsliðið (7), Andri Lucas hefur skorað flest fyrir 19 ára (4) og 17 ára liðið (8) en Eiður og Andri eru síðan jafnir hjá sextán ára landsliðinu með tvö mörk hvor. View this post on Instagram A post shared by Eidur Gudjohnsen (@eidurgudjohnsen) Landsliðsmörkin frá Guðjohnsen fjölskyldunni - Öll landsliðin 39 - Eiður Smári Guðjohnsen 16 - Andri Lucas Guðjohnsen 14 - Arnór Guðjohnsen 11 - Sveinn Aron Guðjohnsen - A-landslið 26 - Eiður Smári Guðjohnsen 14 - Arnór Guðjohnsen 2 - Andri Lucas Guðjohnsen - 21 árs landslið 7 - Sveinn Aron Guðjohnsen 5 - Eiður Smári Guðjohnsen - 19 ára landslið 4 - Andri Lucas Guðjohnsen 3 - Sveinn Aron Guðjohnsen 2 - Eiður Smári Guðjohnsen - 17 ára landslið 8 - Andri Lucas Guðjohnsen 4 - Eiður Smári Guðjohnsen - 16 ára landslið 2 - Eiður Smári Guðjohnsen 2 - Andri Lucas Guðjohnsen 1 - Sveinn Aron Guðjohnsen HM 2022 í Katar Mest lesið Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Fótbolti Þurfti að eyða níu og hálfum tíma í leigubíl til að komast í burtu Sport Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Fótbolti Ákærður fyrir að slá barn sitt með blautu handklæði Sport Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Körfubolti Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum Körfubolti Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Körfubolti „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Íslenski boltinn Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Íslenski boltinn Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tvær skráðar með sama númer á skýrslu og sú rétta fékk ekki markið Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ Hetjan Orri Steinn eftir þrennuna: Besta tilfinning í heimi „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Lærisveinar Freys lifa í voninni „Veit ekki af hverju ég ætti að vera að láta mig detta“ Abraham bjargaði stigi sem gæti skipt Rómverja sköpum Uppgjör: Víkingur - KA 4-2 | Ekkert fær meistarana stöðvað Þrenna Orra Steins hélt titilvonum FCK á lífi Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Davíð Smári: Ekki okkar besta frammistaða Uppgjör og viðtöl: ÍA-FH 1-2 | FH-ingar sóttu sigur á Skagann „Björn Daníel sagði mér að skjóta“ Lyon í úrslit Meistaradeildar Evrópu Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Arnór Ingvi skoraði það sem reyndist sigurmarkið Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Tuchel sár vegna ummæla Hoeness Dúndurbyrjun hjá Gísla og félögum Hákon og félagar upp í þriðja sætið Meistararnir snöggir að nýta sér liðsmuninn Sjá meira
Þetta var mark númer áttatíu sem landsliðsmaður úr Guðjohnsen fjölskyldunni hefur skorað á sínum landsliðsferli. Hér erum við að tala um mörk fyrir öll íslensku landsliðin frá sextán ára landsliðinu og upp úr. TAKK GUÐJOHNSEN, segir Gunnar Birgisson - Annað landsliðsmark Andra Lucasar og hver annar en bróðir hans Sveinn Aron skallaði boltann á hann. Ísland 4-0 Liechtenstein pic.twitter.com/CbXX8ZD320— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) October 11, 2021 Eiður Smári Guðjohnsen hefur skilað flestum mörkum fyrir íslensku landsliðin eða alls 39 mörk í 135 landsleikjum. Andri Lucas er þegar kominn upp í annað sætið í fjölskyldunni með 16 mörk í 37 landsleikjum en afi hans Arnór Guðjohnsen skoraði á sínum tíma 14 mörk í 76 landsleikjum. Arnór spilaði aðeins þrjá leiki fyrir yngri landsliðin. Sveinn Aron Guðjohnsen er í fjórða sæti með 11 mörk í 39 landsleikjum en enginn úr Guðjohnsen ættinni hefur þó skorað fleiri mörk fyrir 21 árs landsliðið. Sveinn Aron var með 7 mörk í 17 leikjum fyrir 21 árs landsliðið. Daníel Tristan Guðjohnsen á enn eftir að skora fyrir íslensku landsliðinu en hann hefur þó aðeins náð að spila tvo leiki fyrir sautján ára landsliðið enda ennþá bara fimmtán ára gamall. Samtals hafa mennirnir úr Guðjohnsen fjölskyldunni skorað 80 mörk í 289 landsleikjum. 42 þeirra hafa komið með A-landsliðinu, 12 með tuttugu og eins árs landsliðinu, 9 með nítján ára landsliðinu, 12 með sautján ára landsliðinu og 5 með sextán ára landsliðinu. Eiður Smári hefur skorað flest mörk fyrir A-landsliðið (26), Sveinn Aron hefur skorað flest fyrir 21 árs landsliðið (7), Andri Lucas hefur skorað flest fyrir 19 ára (4) og 17 ára liðið (8) en Eiður og Andri eru síðan jafnir hjá sextán ára landsliðinu með tvö mörk hvor. View this post on Instagram A post shared by Eidur Gudjohnsen (@eidurgudjohnsen) Landsliðsmörkin frá Guðjohnsen fjölskyldunni - Öll landsliðin 39 - Eiður Smári Guðjohnsen 16 - Andri Lucas Guðjohnsen 14 - Arnór Guðjohnsen 11 - Sveinn Aron Guðjohnsen - A-landslið 26 - Eiður Smári Guðjohnsen 14 - Arnór Guðjohnsen 2 - Andri Lucas Guðjohnsen - 21 árs landslið 7 - Sveinn Aron Guðjohnsen 5 - Eiður Smári Guðjohnsen - 19 ára landslið 4 - Andri Lucas Guðjohnsen 3 - Sveinn Aron Guðjohnsen 2 - Eiður Smári Guðjohnsen - 17 ára landslið 8 - Andri Lucas Guðjohnsen 4 - Eiður Smári Guðjohnsen - 16 ára landslið 2 - Eiður Smári Guðjohnsen 2 - Andri Lucas Guðjohnsen 1 - Sveinn Aron Guðjohnsen
Landsliðsmörkin frá Guðjohnsen fjölskyldunni - Öll landsliðin 39 - Eiður Smári Guðjohnsen 16 - Andri Lucas Guðjohnsen 14 - Arnór Guðjohnsen 11 - Sveinn Aron Guðjohnsen - A-landslið 26 - Eiður Smári Guðjohnsen 14 - Arnór Guðjohnsen 2 - Andri Lucas Guðjohnsen - 21 árs landslið 7 - Sveinn Aron Guðjohnsen 5 - Eiður Smári Guðjohnsen - 19 ára landslið 4 - Andri Lucas Guðjohnsen 3 - Sveinn Aron Guðjohnsen 2 - Eiður Smári Guðjohnsen - 17 ára landslið 8 - Andri Lucas Guðjohnsen 4 - Eiður Smári Guðjohnsen - 16 ára landslið 2 - Eiður Smári Guðjohnsen 2 - Andri Lucas Guðjohnsen 1 - Sveinn Aron Guðjohnsen
HM 2022 í Katar Mest lesið Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Fótbolti Þurfti að eyða níu og hálfum tíma í leigubíl til að komast í burtu Sport Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Fótbolti Ákærður fyrir að slá barn sitt með blautu handklæði Sport Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Körfubolti Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum Körfubolti Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Körfubolti „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Íslenski boltinn Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Íslenski boltinn Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tvær skráðar með sama númer á skýrslu og sú rétta fékk ekki markið Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ Hetjan Orri Steinn eftir þrennuna: Besta tilfinning í heimi „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Lærisveinar Freys lifa í voninni „Veit ekki af hverju ég ætti að vera að láta mig detta“ Abraham bjargaði stigi sem gæti skipt Rómverja sköpum Uppgjör: Víkingur - KA 4-2 | Ekkert fær meistarana stöðvað Þrenna Orra Steins hélt titilvonum FCK á lífi Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Davíð Smári: Ekki okkar besta frammistaða Uppgjör og viðtöl: ÍA-FH 1-2 | FH-ingar sóttu sigur á Skagann „Björn Daníel sagði mér að skjóta“ Lyon í úrslit Meistaradeildar Evrópu Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Arnór Ingvi skoraði það sem reyndist sigurmarkið Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Tuchel sár vegna ummæla Hoeness Dúndurbyrjun hjá Gísla og félögum Hákon og félagar upp í þriðja sætið Meistararnir snöggir að nýta sér liðsmuninn Sjá meira