Fylkir og Grótta í efstu sætin | Víkingur van öruggan sigur Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 19. maí 2022 21:45 Fylkismenn unnu öruggan sigur í kvöld. Vísir/Hulda Margrét Fylkir og Grótta lyftu sér í efstu tvo sæti Lengjudeildar karla með sigrum í kvöld. Fylkir vann öruggan 5-2 sigur gegn Fjölni og Grótta vann 2-0 sigur gegn þjálfaralausum HK-ingum. Í Lengjudeild kvenna vann Víkingur öruggan 3-0 sigur gegn Grindavík.
Benedikt Garðarsson kom Fylkismönnum yfir gegn Fjölni strax á 14. mínútu áður en Hákon Ingi Jónsson jafnaði metin fyrir gestina sjö mínútum fyrir hálfleik. Nikulás Gunnarsson kom heimamönnum yfir á nýjan leik með marki úr vítaspyrnu þremur mínútum síðar og Hallur Húni Þorsteinsson sá til þess að staðan var 3-1 í hálfleik með marki á 45. mínútu. Ásgeir Eyþórsson kom Árbæingum í 4-1 snemma í síðari hálfleik, en Ómar Björn Stefánsson bætti fimmta markinu við fimm mínútum fyrir leikslok. Hákon Ingi Jónsson klóraði í bakkann fyrir gestina í uppbótartíma, en Hans Guðmundsson fékk að líta beint rautt spjald á seinustu andartökum leiksins og Fjölnismenn kláruðu því leikinn manni færri. Sigurinn lyftir Fylkismönnum í efsta sæti Lengjudeildarinnar, en liðið er með sjö stig eftir þrjá leiki, einu stigi meira en Fjölnir sem situr í þriðja sæti. Á sama tíma vann Grótta góðan 2-0 sigur gegn HK þar sem Sigurbergur Áki Jörundsson og Kjartan Halldórsson sáu um markaskorun heimamanna. Grótta er nú í öðru sæti deildarinnar með sex stig, en HK-ingar sitja í sjötta sæti með þrjú. Þá unnu Víkingsstúlkur öruggan 3-0 sigur er liðið tók á móti Grindavík í Lengjudeild kvenna. Víkingur situr í fjórða sæti deildarinnar með sex stig, þremur stigum meira en Grindavík sem situr í því sjöttaþ
Lengjudeild karla Fylkir Fjölnir Grótta HK Víkingur Reykjavík UMF Grindavík Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport Stórfurðuleg atburðarás þegar markvörður KR sá rautt Íslenski boltinn Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Handbolti Aðeins einum leik frá ótrúlegu meti Fótbolti Miðvarðamartröð Man United heldur áfram Enski boltinn Albert Guðmunds: Verður að hafa sjálfstraust og trúa á sjálfan þig Fótbolti „Veit ekki hvað Elmar þarf að gera til að komast í landsliðið“ Handbolti „Ég vona innilega að ég sé ekki að væla of mikið“ Íslenski boltinn Lýsti Haaland sem „ofdekruðum krakka“ Enski boltinn „Höfum spilað vel án Arons áður“ Handbolti Fleiri fréttir Lopetegui tekur við West Ham Lýsti Haaland sem „ofdekruðum krakka“ Stórfurðuleg atburðarás þegar markvörður KR sá rautt Aðeins einum leik frá ótrúlegu meti Albert Guðmunds: Verður að hafa sjálfstraust og trúa á sjálfan þig Miðvarðamartröð Man United heldur áfram „Ég vona innilega að ég sé ekki að væla of mikið“ „Ólíkir okkur að mörgu leyti“ Uppgjör: HK - Víkingur 3-1 | Botnliðið lagði meistarana og Arnar sá rautt Uppgjör og viðtöl: Fram - Fylkir 2-1 | Heimamenn upp í þriðja sætið „Eftir það fannst mér við bara slökkva ljósin og fara heim“ „Hef aldrei séð markmann fá gult spjald fyrir leiktöf eftir átta sek” „Við missum okkur ekkert yfir þessum sigri“ Lærisveinar Freys felldu Guðlaug Victor og Alfreð Finnboga „Komum sterkt til baka og kláruðum þetta“ „Er með góða tilfinningu eftir að hafa komið til baka“ Uppgjörið: Stjarnan - ÍA 4-1 | Þriðji sigur Stjörnunnar í röð Sverrir Ingi lagði upp sigumarkið sem galopnaði toppbaráttuna Samherjar Alberts náðu í stig í Mílanó Uppgjör og viðtöl: KA-KR 1-1 | Smit stal fyrirsögnunum enn og aftur Markasúpa þegar Liverpool komst á sigurbraut Hilmir Rafn kominn á blað í Noregi Sjáðu frábært mark hjá Arnóri Ingva sem dugði þó skammt Langt hlé gert á leik hjá Guðrúnu vegna mikillar rigningar Jón Dagur lagði upp mark Birkir skoraði fyrir Brescia Katla tryggði Kristianstad sigur Markaveisla hjá Chelsea á móti nágrönnum sínum Andri Lucas skoraði og Andri Fannar fagnaði sigri á toppliðinu PSV Eindhoven hollenskur meistari í fyrsta sinn í sex ár Sjá meira