Verða án lykilmanns í London

Raphael Varane í baráttu við Timo Warner í fyrri leiknum …
Raphael Varane í baráttu við Timo Warner í fyrri leiknum gegn Chelsea. AFP

Real Madrid verður án varnarmannsins öfluga Raphaels Varane þegar liðið mætir Chelsea í seinni undanúrslitaleik Meistaradeildarinnar í fótbolta á miðvikudagskvöldið.

Varane meiddist í leik Real Madrid og Osasuna á laugardaginn og félagið staðfesti í dag að Frakkinn hefði tognað með þeim afleiðinum að hann færi ekki með liðinu til London. Fyrri leikur liðanna í Madrid endaði 1:1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert