Kristinn hélt því frábærlega upp á það að hafa verið kosinn efnilegasti leikmaður Pepsi Max deildarinnar í sumar.
Það er óhætt að segja að það gerist á hverjum degi að leikmenn nái að skora svo oft á þessu stigi bikarkeppninnar.
Kristall Máni varð nefnilega um leið fyrsti maðurinn til að skora þrennu í undanúrslitaleik bikarsins síðan að FH-ingurinn Hörður Magnússon náði því í Garðinum 8. ágúst 1991 eða fyrir meira en þremur áratugum síðan.
Hörður Magnússon skoraði tvö marka sinna í framlengingu en síðastur til að skora þrennu í venjulegum leiktíma í undanúrslitum bikarkeppninnar var Guðmundur Steinsson, tveimur árum á undan Herði.
Hörður náði því í bikarkeppninni 1991 að skora í hverri umferð og þar á meðal í bikarúrslitaleiknum. Hann endaði hins vegar með jafntefli og FH tapaði síðan 1-0 á móti Val í aukaleik nokkrum dögum síðar.
Þetta var níunda þrennan í undanúrslitum bikarkeppni karla og þær hafa skorað átta leikmenn. Hermann Gunnarsson er sá eini sem hefur skorað tvær þrennur í undanúrslitum en það gerði hann tvö ár í röð frá 1965 til 1966.
Hermann var ekki búinn að halda upp á nítján ára afmælið sitt þegar hann skoraði þrenunna 1965 en Kristall Máni er nítján ára gamall síðan í janúar.
- Þrennur í undanúrslitaleikjum í bikarkeppni karla í knattspyrnu:
- 2021 - Kristall Máni Ingason, Víkingi (í 3-0 sigri á Vestra)
- 1991 - Hörður Magnússon, FH (í 3-1 sigri á Víði)
- 1989 - Guðmundur Steinsson, Fram (í 4-3 sigri á Keflavík)
- 1983 - Guðbjörn Tryggvason, ÍA (í 4-2 sigri á Breiðabliki í endurteknum leik)
- 1980 - Sigurlás Þorleifsson, ÍBV (í 3-0 sigri á Breiðabliki)
- 1967 - Helgi Númason, Fram (í 3-3 jafntefli á móti KR, aukaleikur spilaður)
- 1966 - Hermann Gunnarsson, Val (í 5-0 sigri á Þrótti R.)
- 1965 - Hermann Gunnarsson, Val (í 3-2 sigri á ÍBA)
- 1963 - Ellert B. Schram, KR (í 3-2 sigri á Keflavík)