Handbolti

Norðmenn völtuðu yfir Pólverja

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Sander Sagosen skoraði níu mörk fyrir Norðmenn í kvöld.
Sander Sagosen skoraði níu mörk fyrir Norðmenn í kvöld. Robert Michael/picture alliance via Getty Images

Noregur vann afar sannfærandi ellefu marka sigur er liðið mætti Póllandi á EM í handbolta í kvöld, 42-31.

Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn framan af, en um miðbik hans tóku Norðmenn öll völd. Þeir náðu mest sjö marka forskoti í fyrri hálfleik og gengu til búningsherbergja með sex marka forystu, 21-15.

Norðmenn héldu áfram þar sem frá var horfið í síðari hálfleik og náðu fljótt tíu marka forskoti í stöðunni 27-17. Þeir þjörmuðu svo enn frekar að pólska liðinu og náðu mest 14 marka forskoti og í raun aldrei spurning um hvorum meginn sigurinn myndi enda.

Norðmenn unnu að lokum öruggan ellefu marka sigur, 42-31, og liðið er nú með tvö stig í milliriðli tvö, líkt og Svíar, Þjóðverjar og Rússar. Pólverjar sitja hins vegar einir í neðsta sæti riðilsins án stiga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×