Borgarstjóri lagði til að nær allar breytingatillögur minnihlutans yrðu felldar

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri lagði til að nær allar breytingatillögur minnihluta borgarstjórnar við fjárhagsáætlun borgarinnar yrðu felldar. Búast má við því að umræðan um hagræðingu í Reykjavíkurborg standi fram á kvöld.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.
Auglýsing

Borg­ar­stjórn Reykja­vík­ur­borgar mun á fundi sínum í dag taka afstöðu til hag­ræð­ing­ar­að­gerða sem grípa á til vegna halla­rekst­urs borg­ar­innar og má búast við að síð­ari umræða um fjár­hags­á­ætlun borg­ar­innar standi fram á kvöld.

Sam­kvæmt því sem kom fram í ræðu Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra við upp­haf borg­ar­stjórn­ar­fund­ar­ins er útlit fyrir að fátt sem minni­hluti borg­ar­stjórnar lagði til verði sam­þykkt á fund­in­um, en borg­ar­stjór­inn fór í ræðu sinni lið fyrir lið yfir allar þær breyt­inga­til­lögur sem flokk­arnir í minni­hlut­anum lögðu fram.

Þeim verður nær öllum hafn­að, ef meiri­hlut­inn fer að til­lögum borg­ar­stjóra við atkvæða­greiðslur síðar í dag.

Að sama skapi mælti borg­ar­stjór­inn með því að nær allar þær 92 breyt­inga­til­lögur sem borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­inn lagði fram í síð­ustu viku yrðu sam­þykktar í óbreyttri mynd, en sumar þeirra hafa verið harð­lega gagn­rýnd­ar, ekki síst þær sem snerta þjón­ustu við börn og ung­menni, eins og til dæmis vænt lokun Siglu­ness í Naut­hóls­vík.

Þó hefur komið fram að til standi að end­ur­skoða þá ákvörðun, en til­lög­unni var mót­mælt í sal borg­ar­stjórnar fyrir borg­ar­stjórn­ar­fund dags­ins.

Til í að selja sum­ar­bú­stað borg­ar­stjórnar en fátt annað frá Sjálf­stæð­is­flokki

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn setti fram ýmsar til­lögur sem flokk­ur­inn taldi að gæti í heild­ina sparað borg­inni um 7 millj­arða króna á næsta ári. Borg­ar­stjóri sagð­ist leggja til að þær yrðu nær allar felld­ar.

Á meðal þess sem sjálf­stæð­is­menn lögðu til var að dregið yrði saman á þró­un­ar- og nýsköp­un­ar­sviði borg­ar­inn­ar, fjár­fest­ingum í umbreyt­ingu Gróf­ar­húss yrði frestað og að fjár­fest­ingum í breyt­ingum á svæð­inu umhverfis Hlemm yrði frestað.

Auglýsing

Einnig vildi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fela utan­að­kom­andi ráð­gjöfum að rýna í rekstur borg­ar­inn­ar, fram­kvæma stjórn­kerf­is­út­tekt og skila til­lögum að 5 pró­senta nið­ur­skurði á launum og launa­tengdum gjöldum fyrir 1. mars 2023. Borg­ar­stjóri lagði til að þessi til­laga yrði felld, rétt eins og aðrar hag­ræð­ing­ar­til­lögur í stjórn­sýsl­unni sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn lagði til að ráð­ist yrði í.

Borg­ar­stjóri lagði hins vegar til að til­lögum Sjálf­stæð­is­flokks­ins um tekju­auk­andi aðgerð­ir, með fjölgun lóða­út­hlut­ana undir fjöl­breyttar gerðir íbúð­ar­hús­næðis og fjöl­breytta atvinnu­starf­semi, yrði vísað frá þar sem fjölgun lóða­út­hlut­ana væri þegar á áætlun borg­ar­inn­ar.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn lagði einnig til eigna­sölu, að Ljós­leið­ar­inn ehf. yrði seldur og að sum­ar­hús sem borg­ar­stjórn á yrði selt. Dagur lagði til að sam­þykkt yrði að sum­ar­hús borg­ar­stjórnar yrði selt, en lagði til að til­laga um sölu Ljós­leið­ar­ans yrði felld. Borg­ar­stjóri sagði að fróð­legt yrði að heyra rök­stuðn­ing sjálf­stæð­is­manna fyrir því að væru frá­bærar aðstæður fyrir hendi á mark­aði til þess að selja Ljós­leiðar­ann.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn lagði einnig til að rekstur allra bíla­stæða­húsa Reykja­vík­ur­borgar yrði boð­inn út og sagð­ist Dagur mæla með því að þeirri til­lögu yrði vísað inn í hóp sem þegar er að störfum um bættan rekstur bíla­stæða­húsa borg­ar­inn­ar.

Eins manns borg­ar­stjórn­ar­flokkur Vinstri grænna lagði fram nokkrar breyt­inga­til­lögur, og lagði borg­ar­stjóri til að þær yrðu allar felldar nema ein. Það er til­laga um að borgin selji alla bíla sem ganga fyrir jarð­efna­elds­neyti og skipti út flot­anum fyrir umhverf­is­vænni og spar­neytn­ari bíla. Borg­ar­stjóri sagð­ist leggja til að eigna­skrif­stofu borg­ar­innar yrði falið að skoða þessa til­lögu nán­ar.

Borg­ar­full­trúar Sós­í­alista­lista­flokks­ins lögðu til átta til­lögur og lagði borg­ar­stjóri til að þær yrðu allar felld­ar, en benti þó á að ein til­laga flokks­ins, um að fá meira fé frá rík­inu vegna NPA-­samn­inga, hefði verið í kröfu­gerð borg­ar­innar á hendur rík­inu og væri lík­lega að nást í gegn í yfir­stand­andi fjár­laga­vinnu yfir á Alþingi.

Sós­í­alista­flokk­ur­inn lagði einnig til að vísi­tölu­teng­ing húsa­leigu hjá Félags­bú­stöðum yrði afnumin og sagði borg­ar­stjóri að hann skildi ekki að þessi til­laga kæmi frá Sós­í­alista­flokkn­um, þar sem þessi aðgerð „myndi grafa mjög hratt undan félag­in­u“.

Borg­ar­stjóri lagði svo til að allar sautján til­lög­urnar sem bár­ust frá Flokki fólks­ins yrðu felld­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent