Gunnleifur þakkar fyrir sig: Montinn af ferlinum og sé ekki eftir neinu Sindri Sverrisson skrifar 20. nóvember 2020 16:30 Gunnleifur Gunnleifsson á metið yfir flesta deildarleiki á Íslandi. vísir/bára
Leikjahæsti leikmaður í sögu íslenskrar deildarkeppni í fótbolta, markmaðurinn Gunnleifur Gunnleifsson, hefur ákveðið að láta gott heita og leggja skóna formlega á hilluna. „Ég var hættur að æfa um mitt síðasta sumar og fannst ágætt að loka þessu bara formlega, og þakka fyrir mig,“ segir Gunnleifur við Vísi, en hann sendi frá sér stutta tilkynningu á Twitter í dag. Takk fyrir mig pic.twitter.com/YWCkxaDefp— gulligull1 (@GGunnleifsson) November 20, 2020 Gunnleifur, sem er 45 ára gamall, var aðstoðarþjálfari og varamarkmaður Breiðabliks í sumar en kom ekkert við sögu á Íslandsmótinu. Hann sat á varamannabekknum í ellefu leikjum en Brynjar Atli Bragason tók við því hlutverki seinni hluta tímabilsins. Anton Ari Einarsson var aðalmarkmaður liðsins. Gunnleifur hafði áður misst af aðeins einum deildarleik sem leikmaður Breiðabliks, á sjö keppnistímabilum. Alls afrekaði hann það að leika 439 deildarleiki á Íslandi á aldarfjórðungi í boltanum, miðað við yfirlit Víðis Sigurðssonar höfundar bókaflokksins Íslensk knattspyrna, og er það Íslandsmet. Gunnleifur Gunnleifsson lék sinn fyrsta A-landsleik árið 2000 og þann síðasta 14 árum síðar.Nordic photos/AFP „Ég er montinn af ferlinum og sé ekki eftir neinu. Það hefur auðvitað margt gengið á á 26 ára ferli í meistaraflokki, og allt of langt mál að kafa djúpt ofan í það, en ég er fyrst og fremst þakklátur fyrir ferilinn og hvað hann gat verið langur og skemmtilegur,“ segir Gunnleifur. Hættir sem aðstoðarþjálfari en í umfangsmiklu starfi hjá Breiðabliki Hann mun áfram starfa hjá Breiðabliki, þó ekki lengur sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks. Gunnleifur mun meðal annars þjálfa 2., 6. og 8. flokk karla, og sinna markmannsþjálfun hjá öllum flokkum. Hvað líkamlegt atgervi varðar segist Gunnleifur allt eins hafa getað haldið áfram að spila, en hugurinn hafi verið kominn annað. Gunnleifur varð Íslands- og bikarmeistari með FH.Mynd/Daníel „Nú er ég kominn í annað og breytt hlutverk. Ég þekki ekkert annað en að vera markmaður svo þetta eru auðvitað mikil tímamót hjá mér. Maður er rétt byrjaður að líta til baka og það rifjast ýmislegt upp, og þetta er fyrst og fremst bara geggjaður tími heilt yfir. Það er ekkert sem stendur sérstaklega upp úr, eins og titlar, og slíkt heldur öll þessi dæmi um fólk sem maður hefur kynnst og bardaga sem maður hefur tekið þátt í.“ Með landsliðinu í hálfan annan áratug Gunnleifur er uppalinn hjá hinu Kópavogsliðinu, HK, en hefur einnig leikið með KVA, KR, Keflavík og FH á sínum ferli, auk þess að vera um skamman tíma hjá liði Vaduz í Liechtenstein, sem lék í svissnesku úrvalsdeildinni. Hann varð Íslands- og bikarmeistari með KR árið 1999, þá reyndar í hlutverki varamarkmanns, og átti svo drjúgan þátt í bikarmeistaratitli FH árið 2010 og Íslandsmeistaratitli liðsins tveimur árum síðar. Gunnleifur var líka lengi hluti af íslenska A-landsliðshópnum og lék 26 leiki en hann missti óvænt sæti sitt í hópnum fyrir lokakeppni Evrópumótsins 2016. Síðasti landsleikur sem hann spilaði var 1-0 sigur gegn Eistlandi í vináttulandsleik sumarið 2014.
Pepsi Max-deild karla Breiðablik Tímamót Kópavogur Mest lesið Varði pabba-kroppinn eftir mynd af sér og Swift á ströndinni Sport Boehly fær að fjúka 2027 Enski boltinn Viðar Örn í KA Íslenski boltinn Þjálfari Leicester látinn fara vegna meints sambands við leikmann Enski boltinn Alonso fari hvergi og Liverpool snýr sér annað Enski boltinn „Veit að Kobe væri stoltur af mér“ Körfubolti Arna spilar með FH næstu þrjú árin Íslenski boltinn „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport Leikmaður PSG biðst afsökunar á að hafa deilt niðrandi efni um LGBTQ-einstaklinga Fótbolti Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Fótbolti Fleiri fréttir Ísbað í Kórnum Í beinni: Valur - Breiðablik | Hvort liðið byrjar tímabilið á titli? Fyrrverandi Englandsmeistari með námskeið í samstarfi við Fram Viðar Örn í KA Arna spilar með FH næstu þrjú árin Sjáðu mörkin fimm úr úrslitaleik Breiðabliks og ÍA Umfjöllun: Breiðablik - ÍA 4-1 | Blikar unnu Lengjubikarinn með sigri gegn Skaganum Grindvíkingar leggja niður yngri flokka Rasmus til Eyja Skagamenn geta unnið fyrsta titil sinn í meira en tvo áratugi Þór/KA sækir markvörð til Bandaríkjanna „Verður ekki sama hrútafýluauglýsing og í fyrra“ Rétt gíraður Eiður sé einn besti hafsent landsins „Erum bara á flottum stað miðað við árstíma“ Umfjöllun og viðtöl: Valur - Stjarnan 4-0 | Valskonur örugglega í úrslit Vestri steinlá í fyrsta leik Eiðs Arons „Var bara þrekvirki Óla Þórðar“ „Það breytti alveg planinu“ Baldur heimsækir Skagann í kvöld: „Var ekki í plönunum að koma heim“ Breiðablik gerði jafntefli við úrvalsdeildarlið frá Þýskalandi Tjallar héldu uppi stuðinu á Hlíðarenda: „Alveg trylltir“ Sjáðu vítakeppnina og mörkin í fyrsta leik Gylfa með Val Adam hafi nánast þvingað treyjuna upp á Gylfa: „Minn er heiðurinn“ „Þessir tveir mánuðir voru gríðarlega erfiðir“ Umfjöllun og viðtöl: Valur - ÍA 5-6 | Skagamenn unnu eftir vítaspyrnukeppni „Það er kannski ekkert gáfulegt“ Draumur Davíðs Smára rætist en kostnaðurinn tugir milljóna Myndir af Gylfa á fyrstu æfingunni á Íslandi sem leikmaður Vals Eftirminnilegustu heimkomurnar í íslenska fótboltanum Drepur varg, smíðar og er fyrirliði í Bestu deildinni Sjá meira