Innlent

Íbúðalánasjóður þarf ekki að endurgreiða uppgreiðslugjald

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Málinu er ekki lokið, segir Jónas Friðrik Jónsson lögmaður. Niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur verður áfrýjað.
Málinu er ekki lokið, segir Jónas Friðrik Jónsson lögmaður. Niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur verður áfrýjað. Vísir/Hanna

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað Íbúðalánasjóð af kröfum lántaka sem fór fram á endurgreiðslu uppgreiðslugjalds. Milljarðar voru í húfi fyrir íslenska ríkið. Lögmaður lántakans segir dóminn hafa komið sér á óvart og hyggst áfrýja.

Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu í tveimur málum í fyrra að svokölluð uppgreiðsluþóknun Íbúðalánasjóðs hefði verið ólögmæt. Málunum tveimur var áfrýjað og fengu þau bæði flýtimeðferð í Hæstarétti. Hæstiréttur sýknaði sjóðinn í öðru málinu en ómerkti hitt og vísaði því til meðferðar í héraði á nýjan leik. Dómur í því máli var kveðinn upp í gær, þar sem Íbúðalánasjóður var sýknaður af kröfum um endurgreiðslu uppgreiðsluþóknunar en hefði hann farið á annan veg hefði það kostað ríkissjóð milljarða.

Lántakarnir byggðu mál sitt meðal annars á því að uppgreiðslugjaldið félli undir lántökukostnað. Dómurinn hafnaði því hins vegar enda feli það ekki í sér kostnað við að taka lán, lántökukostnað, að greiða uppgreiðsluþóknun til að ljúka greiðslu láns fyrr en samningur aðila gerir ráð fyrir og þá sérstaklega í tilviki sem þessu, þar sem lántaki afsalar sér heimild til uppgreiðslu.

Lögbrot sem hafi engar afleiðingar í för með sér

Jónas Friðrik Jónsson, lögmaður stefnanda, furðar sig á niðurstöðunni.

„Það sem kemur á óvart er það að þegar Íbúðalánasjóður brýtur gegn lögum um neytendalán, með því að hafa ekki ákvæði í lánasamningi um það hvernig uppgreiðslugjald skuli reiknað út, að það uppgreiðslugjald sem er í formi vaxtaafleiðu – að þá hafi slíkt lögbrot engar afleiðingar fyrir sjóðinn,” segir hann.

Þá komi það enn meira á óvart að sjá hversu miklar kröfur séu lagðar á herðar neytenda um öflun upplýsinga, en í málinu bentu lántakendur á að hafa ekki fengið neitt kynningarefni um uppgreiðsluþóknun sjóðsins. 

Málinu ekki lokið

Dómurinn mat það hins vegar sem svo að þó það sé ósannað að þeim hafi verið kynntar þessar upplýsingar þá liggi það fyrir að þeim hafi í fjórgang gefist tilefni til að kynna sér upplýsingarnar rafrænt á heimasíðu Íbúðalánasjóðs.

„Lögbundin upplýsingaskylda fjármálafyrirtækja samkvæmt lögum um neytendalán og almennar kröfur til lánastofnana um vönduð vinnubrögð eru að mínu mati meðhöndluð þarna með léttvægum hætti. Og dómurinn gerir í raun meiri kröfur til neytenda um öflun þekkingar en kröfur til lánastofnana um veitingu upplýsinga um samningsskilmála og fjárhagslegt umfang lánaskuldbindinga,” segir Jónas, og bætir við að málinu verði áfrýjað.

„Það verður látið reyna á það hvort íslenskir neytendur njóti ekki meiri verndar en þessi niðurstaða gefur til kynna.”

Dómurinn í heild.


Tengdar fréttir

Fyrirkomulag Íbúðalánasjóðs hafi verið gallað frá upphafi

Fjármálaráðherra segir uppgreiðslugjöld Íbúðalánasjóðs gallað fyrirkomulag sem kostað hafi ríkissjóð tvö hundruð milljarða milljarða króna. Hann fagnar því hins vegar að búið sé að skera úr um lögmæti gjaldanna.

„Ekki einn maður haldið því fram að þetta sé sanngjarnt“

Lögmaður hjóna sem fögnuðu sigri í deilu við Íbúðalánasjóð vegna uppgreiðslugjalds sem metið var ólögmætt í héraðsdómi í desember segir nýfallinn dóm fullskipaðs Hæstarétts í málinu mikil vonbrigði. Dómurinn féll Íbúðalánasjóði í vil.

Uppgreiðsluþóknunin leggist ofan á 200 milljarða fjárhagsbagga vegna ÍLS

Fjármálaráðherra segir mögulegar greiðslur til þeirra sem greitt hafi uppgreiðslugjald vegna lána sinna hjá Íbúðalánasjóði leggjast ofan á um tvö hundruð milljarða fjárhagsbagga ríkisins vegna Íbúðalánasjóðs. Mikilvægt sé þó að tryggja fjárhagslega hagsmuni lántakenda sem hugsanlega hafi verið brotið á hjá sjóðnum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×