Innlent

Bein útsending: Heilbrigðismál sem kosningamál

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá gjörgæsludeild Landspítalans.
Frá gjörgæsludeild Landspítalans. Vísir/EinarÁrna

„Heilbrigðismál eru kosningamál,“ bergmálar í fjölmiðlaumfjöllun í aðdraganda Alþingiskosninga. Heilbrigðiskerfið hefur gengið í gegnum mikla þolraun á síðustu misserum. En jafnvel þótt heimsfaraldrinum linni er krísa heilbrigðisþjónustunnar langt í frá í baksýnisspeglinum.

Þetta verður til umfjöllunar á málþingi á Hótel Nordica frá klukkan 14-17 í dag.

Þetta kjörtímabil hafa heilbrigðismálin öðru fremur litast af heimsfaraldrinum, en einnig af uppbyggingu heilsugæslunnar, rekstrarvanda Landspítalans, úrræðaleysi í málefnum aldraðra, afleiðingum af þjónustuskerðingu á landsbyggðinni og átökum um umfang og eðli einkarekinnar læknisþjónustu. Almenningur styður öflugt, opinbert heilbrigðiskerfi en háværar raddir í stjórnmálaumræðunni leggja til frekari markaðsvæðingu heilbrigðisþjónustunnar, þvert á vilja kjósenda.

Á þessu málþingi verður fjallað um heilbrigðismál út frá hagsmunum og réttindum almennings. Hvernig tryggjum við jafnt aðgengi og góða heilbrigðisþjónustu? Hvaða áhrif myndi aukin markaðsvæðing heilbrigðiskerfisins hafa? Í lok málþingsins fá fulltrúar stjórnmálaflokka sem bjóða fram til Alþingis tækifæri til að koma kosningaáherslum sínum í heilbrigðismálum á framfæri.

Málþingið er skipulagt í samvinnu ASÍ og BSRB og haldið á Hótel Nordica eftir því sem fjöldatakmarkanir leyfa. Streymi má sjá að neðan.

Dagskrá

14:00 – 15.15

  • Drífa Snædal, forseti ASÍ, opnar ráðstefnuna
  • Birgir Jakobsson, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra og fyrrum landlæknir „Að efla grunnþjónustuna: Hvað hefur tekist vel til og hvað vantar upp á?“
  • Sara S. Öldudóttir, sérfræðingur hjá ASÍ „Bilið sem þarf að brúa: ójöfnuður í heilsufari og mótsagnir í öldrunarmálum“
  • Steinunn Þórðardóttir, yfirlæknir heilabilunarhluta öldrunarlækningadeildar Landspítalans „Að velja sjúklinga: um áhrif ólíkra rekstrarforma á öldrunarþjónustu“
  • Arnar G. Hjaltalín, formaður stéttarfélagsins Drífandi „Að fæða, þroskast, veikjast og eldast … úti á landi“
  • Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður Kjalar – stéttarfélags í almannaþjónustu „Áhrif einkavæðingar á starfsfólk“

Fyrirspurnir til frummælenda

15:15 – 15:30 Kaffihlé

15.30 – 17.00

  • Vivek Kotecha endurskoðandi og ráðgjafi: „Hvert rata peningarnir? Um fléttur fyrirtækja sem sinna almannaþjónustu“
  • Róbert Farestveit, sviðsstjóri sviðs stefnumótunar og greiningar hjá ASÍ „Er nóg til? Leiðir til að fjármagna mannsæmandi heilbrigðisþjónustu“
  • Fyrirspurnir til frummælenda
  • Sjónarmið stjórnmálaflokkanna: Fulltrúi allra flokka fá 2 mínútur til að bregðast við umræðunum.
  • Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB slítur ráðstefnunni
  • Málþingsstjóri: Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörðu – rannsóknastofnunar Vinnumarkaðarins


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×