„Það eru mjög krítiskir dagar hér framundan“ Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 11. janúar 2022 12:48 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra fyrir utan Ráðherrabústaðinn í dag. Vísir/Vilhelm
Heilbrigðisráðherra, segir að næstu dagar séu krítískir í kórónuveirufaraldrinum. Hann er þó bjartsýnn á stöðuna. Forsætisráðherra telur að janúar og febrúar verði þungir, en svo fari að létta til. Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, tilkynnti að loknum ríkisstjórnarfundi í dag að gildandi samkomutakmarkanir yrðu framlengdar óbreyttar um þjár vikur. Hann og Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ræddu við fréttamenn að loknum fundi. „Það eru mjög krítiskir dagar hér framundan. Við þurfum að vakta stöðuna. Við ræddum það vel hér í ríkisstjórn og mikil samstaða um það að við verðum að vera tilbúin til að styðja við og standa með heilbrigðiskerfinu. Þetta er auðvitað álag ofan í álag,“ sagði Willum Þór. Staðfesti hann að Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir lagði ekki til hertar aðgerðir í minnisblaði sínu til heilbrigðisráðherra, ríkisstjórnin hafi samþykkt tillögur hans í einu og öllu, samhljóða. Ítrekaði Willum Þór að álagið á Landspítalanum væri mikið, og að meta þyrfti stöðuna á ný myndi róðurinn þyngjast þar enn frekar. „Þetta heldur, Landspítalinn hefur verið á neyðarstigi, en við þurfum svolítið að meta með okkar helstu sérfræðingum og sóttvarnalækni hvernig þróunin verður næstu daga, hvort að taka þurfi einhverjar breytingar á takmörkunum,“ sagði Willum Þór. Sagðist hann vona að takmarkanirnar sem eru í gildi myndu duga til að hemja faraldurinn. „Við erum að vonast til að með minni samgangi þá fari þetta að ganga niður en við verðum að vakta það með sóttvarnalækni.“ Janúar og febrúar þungir en svo fari að birta til Katrín lagði í máli sínu áherslu á gögn væru að sýna að ómíkronafbrigðið væri vægar en önnur. „Ég held að við þurfum að taka á okkar stóra okkar enn um sinn. Við erum að framlengja þessar aðgerðir núna vegna þess að álagið er mikið á okkar innviði en góðu tíðindin eru þau að við erum að sjá fleiri og fleiri gögn renna stöðum undir það að það er miklu lægra hlutfall þeirra sem smitast af ómíkron sem leggst inn á spítala, miklu lægra hlutfall sem er að veikjast alvarlega,“ sagði Katrín. Aðspurð um hvernig hún mæti stöðuna næstu vikur og mánuði mátti greina ákveðna svartsýni til skemmri tíma en bjartsýni til lengri tíma. Álagið á Landspítalanum væri mikið og að standa þyrfti með þeim sem standa vaktina á heilbrigðisstofnunum landsins. „Þessi mánuður og sá næsti, þeir verða þungir. Svo held ég að við getum farið að horfa fram á bjartari tíma. Bæði vegna örvunarbólusetninga, vegna fleiri einstaklinga sem eru að fá bólusetningu og auðvitað með fleiri smitum þá eykst líka viðnámsþróttur samfélagsins,“ sagði Katrín. Willum Þór sagðist einnig vera bjartsýnn á það að mögulega væri farið að glitta í endann á faraldrinum. „Ég er bjartsýnn, ég er það vegna þess að okkar helstu sérfræðingar á þessu sviði, sóttvarnarsviði, eru bjartir á það að við séum farin að sjá hylla í það með veiku afbrigði veirunnar að við séum farin að sjá ljósið fyrir enda ganganna.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Samkomubann á Íslandi Tengdar fréttir Óbreyttar reglur næstu þrjár vikurnar Gildandi samkomutakmarkanir verða framlengdar óbreyttar um þrjár vikur. 11. janúar 2022 12:10 Um tólf hundruð greindust innanlands í gær 1.191 greindist með kórónuveiruna innanlands í gær samkvæmt bráðabirgðatölum frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. 41 greindist á landamærum. 11. janúar 2022 11:48 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Halla Tómasdóttir tekur stökk í nýrri könnun Prósents Innlent Samfélagið í áfalli vegna málsins Innlent Mikið vesen á veitingastöðum borgarinnar Innlent Minnstu smáatriði úthugsuð og til þess gerð að skapa hughrif Innlent „Algjörlega forkastanlegt“ ef stjórnvöld svari ekki beiðninni Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Aftur barist í norðurhluta Gasa á meðan þúsundir flýja Rafah Erlent Ragnar Freyr segist hreinsaður af sök Innlent „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Innlent „Hann hættir bara ekki” Innlent Fleiri fréttir Mikið vesen á veitingastöðum borgarinnar Halla Tómasdóttir tekur stökk í nýrri könnun Prósents „Algjörlega forkastanlegt“ ef stjórnvöld svari ekki beiðninni Minnstu smáatriði úthugsuð og til þess gerð að skapa hughrif Samfélagið í áfalli vegna málsins Vilja bæta íslenskukennslu fyrir innflytjendur Ragnar Freyr segist hreinsaður af sök Læknir segir að brottvísun muni ógna lífi sjúklings „Er réttur þinn eða mannréttindi að einhver annar deyði þig?“ Kviknaði í bragga á Egilsstöðum Bíó og plokkfiskur á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina Meint fjárkúgun, frelsissvipting og líkamsárás Rannsaka alvarlegt ofbeldisbrot í Árnessýslu Pólitíkin, dánaraðstoð, NATO og kosningar á Sprengisandi „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Grunaðir um rán í miðbænum Aðrir frambjóðendur en efstu tveir eigi töluvert langt í land Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Kappræðurnar höfðu talsverð áhrif á kjósendur Forréttindi að fá að fylgja fólki í gegnum erfiðasta tíma lífsins Vilja breyta fyrirkomulagi við úthlutun plássa „Maður getur varla ímyndað sér hvað þarf að koma til“ Handtaka hælisleitenda og brottrekstur Hollands úr Eurovision Hitaveitulögn sprakk í Breiðholti Leita enn að þeim sem réðu barnabarninu bana Rigning í kortunum í kvöld „Hann hættir bara ekki” Hótaði lögregluþjónum og fjölskyldum þeirra Vilja að plássum í sumarfrístund sé útdeilt með sanngjarnari hætti Mótmælendur gegn brottvísun hindruðu för lögreglubíls Sjá meira
Óbreyttar reglur næstu þrjár vikurnar Gildandi samkomutakmarkanir verða framlengdar óbreyttar um þrjár vikur. 11. janúar 2022 12:10
Um tólf hundruð greindust innanlands í gær 1.191 greindist með kórónuveiruna innanlands í gær samkvæmt bráðabirgðatölum frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. 41 greindist á landamærum. 11. janúar 2022 11:48