Hafa aldrei fundið eins náið par risasvarthola svo nálægt jörðu Kjartan Kjartansson skrifar 30. nóvember 2021 13:00 Vetrarbrautin NGC 7727 (til hægri) og tveir skínandi kjarnar þar sem risasvarthol er að finna (stækkuð mynd til vinstri). Í kringum svartholin er þétt þyrping stjarna. ESO/Voggel og fleiri Par risasvarthola sem hópur stjörnufræðinga fann nýlega er það þéttasta og nálægasta jörðinni sem fundist hefur til þessa. Stjörnufræðingar telja að svarholin tvö muni sameinast í náinni framtíð á stjarnfræðilegan mælikvarða.
Þó að heil 89 milljón ljósár skilji svartholin tvö og sólkerfið okkar að er parið engu að síður það langnálægasta sem hefur fundist. Fyrri methafi er í um 470 milljón ljósára fjarlægð. Þau reyndust einnig nær hvort öðru en önnur risasvarholapör sem menn hafa fundið en „aðeins“ 1.600 ljósár eru á milli þeirra. Stærra svartholið er um 154 milljón sinnum efnismeira en sólin okkar og en hitt 6,3 milljón sinnum massameira. Stjörnufræðingarnir mældu stærð þeirra með því að kanna þyngdaráhrif á nærliggjandi stjörnur. Talið er að risasvarhol sé að finna í miðju allra stórra vetrarbrauta. Parið sem vísindamennirnir fundu er í miðju NGC 7727 vetrarbrautarinnar sem er afsprengi samruna tveggja þyrilvetrarbrauta í stjörnumerkinu vatnsberanum. Þegar vetrarbrautir sameinast á þann hátt stefna risasvarthol þeirra hvort á annað, að því er segir í tilkynningu frá Evrópsku stjörnustöðinni á suðurhveli (ESO). „Vegalengdin milli svarholanna og innbyrðis hraði bendir til þess að þau muni á endanum sameinast í eitt enn stærra svarthol, líklega innan næstu 250 milljón ára,“ segir Holger Baumgardt, prófessor við Queensland-háskóla í Ástralíu og meðhöfundur greinar um uppgötvunina. Rannsókn stjörnufræðinganna er sögð benda til þess að mun fleiri risasvarthol sé að finnast í samrunavetrarbrautum í alheiminum. Þau gætu verið allt að þriðjungi fleiri í nágrannavetrarbrautum okkar en hingað til hefur verið talið. Uppfært 30.11.2021 Í upphaflegri útgáfu fréttarinnar var stærð svartholanna lítillega vanmetin. Þau eru 154 milljón og 6,3 milljón sinnum massameiri en sólin en ekki 154 og 6,3 sinnum massameiri eins og stóð upphaflega.
Geimurinn Vísindi Tengdar fréttir Fundu fyrirferðarlítið svarthol utan Vetrarbrautarinnar Stjörnufræðingum tókst að finna lítið svarthol inni í miðri stjörnuþyrpingu utan Vetrarbrautarinnar okkar. Aðferðin sem var notuð gæti gert þeim kleift að finna hulin svarthol í Vetrarbrautinni okkar og nálægum stjörnuþokum. 11. nóvember 2021 12:00 Skörpustu myndirnar af stærstu smástirnum sólkerfisins Myndir sem stjörnufræðingar hafa náð af 42 stærstu fyrirbærunum í smástirnabeltinu í sólkerfinu okkar eru þær skörpustu til þessa. Þær varpa ljósi á fjölbreytta lögun og efnasamsetningu smástirnanna. 12. október 2021 12:00 Vetrarbrautin verr blönduð en talið var Samsetning Vetrarbrautarinnar okkar er ekki eins einsleit og vísindamenn hafa talið til þessa. Niðurstöður rannsóknar stjarneðlisfræðings sem nam við Háskóla Íslands benda til þess að endurskoða þurfi líkön um myndun og þróun vetrarbrauta. 15. september 2021 08:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Fleiri fréttir Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Sjá meira
Fundu fyrirferðarlítið svarthol utan Vetrarbrautarinnar Stjörnufræðingum tókst að finna lítið svarthol inni í miðri stjörnuþyrpingu utan Vetrarbrautarinnar okkar. Aðferðin sem var notuð gæti gert þeim kleift að finna hulin svarthol í Vetrarbrautinni okkar og nálægum stjörnuþokum. 11. nóvember 2021 12:00
Skörpustu myndirnar af stærstu smástirnum sólkerfisins Myndir sem stjörnufræðingar hafa náð af 42 stærstu fyrirbærunum í smástirnabeltinu í sólkerfinu okkar eru þær skörpustu til þessa. Þær varpa ljósi á fjölbreytta lögun og efnasamsetningu smástirnanna. 12. október 2021 12:00
Vetrarbrautin verr blönduð en talið var Samsetning Vetrarbrautarinnar okkar er ekki eins einsleit og vísindamenn hafa talið til þessa. Niðurstöður rannsóknar stjarneðlisfræðings sem nam við Háskóla Íslands benda til þess að endurskoða þurfi líkön um myndun og þróun vetrarbrauta. 15. september 2021 08:00