Fimmti sigur Aix í röð

Kristján Örn Kristjánsson er með skemmtilegan leikstíl og er farinn …
Kristján Örn Kristjánsson er með skemmtilegan leikstíl og er farinn að hrella markverði í Frakklandi. Ljósmynd/Sigfús

Kristján Örn Kristjánsson og samherjar í franska liðinu Aix gengur allt í haginn um þessar mundir og liðið vann góðan útisigur í kvöld. 

Kristján skoraði fimm mörk þegar Aix vann Dunkerque á útivelli 26:25 eftir spennandi leik. Kristján var með fína skotnýtingu en hann skaut átta sinnum á markið. 

Dunkerque hefur oft verið sterkt á heimavelli í gegnum árin og því góð stig fyrir Aix sem unnið hefur fimm leiki í röð og fimm af sex í upphafi tímabilsins. Liðið tapaði því fyrsta leiknum en hefur síðan þá verið í miklu stuði. 

Aix er í 6. sæti með 10 stig en Dunkerque í 7. sæti með 9 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert