Stjörnurnar fjarverandi í stjörnuleiknum

Kyrie Irving í baráttunni í nótt.
Kyrie Irving í baráttunni í nótt. AFP/Sarah Stier

LeBron James og Kevin Durant voru fjarverandi í nótt þegar Brooklyn Nets tók á móti Los Angeles Lakers í bandarísku NBA-deildinni í körfuknattleik í New York.

Leiknum lauk með sigri Brooklyn, 121:104, en Kyrie Irving var stigahæstur hjá Brooklyn með 26 stig, sjö fráköst og sex stoðsendingar.

Thomas Bryant skoraði 18 stig fyrir LA Lakers, ásamt því að taka níu fráköst og þá skoraði Russell Westbrook 17 stig fyrir LA Lakers.

Brooklyn er í fjórða sæti austurdeildarinnar með 31 sigur en LA Lakers er með 23 sigra í þrettánda sæti vesturdeildarinnar.

Úrslit næturinnar í NBA:

Philadelphia – Orlando 109:119
Brooklyn – LA Lakers 121:104
Minnesota – Sacramento (frl.) 111:118
Oklahoma City – Golden State 120:128
San Antonio – Washington 106:127
Dallas – Detroit 111:105
Phoenix – Toronto 114:106
Portland – Atlanta 129:125

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert