Ben Simmons kom öllum á óvörum með því að mæta í vinnuna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. október 2021 16:31 Samherjarnir Ben Simmons og Joel Embiid geta vonandi fundið góða lausn og spilað aftur saman. EPA-EFE/ERIK S. LESSER Nú lítur allt í einu út fyrir það að Ben Simmons muni eftir allt saman spila með Philadelphia 76ers liðinu í NBA deildinni í körfubolta í vetur.
Simmons var mjög ósáttur með að vera gerður að blóraböggli eftir ófarir 76ers liðsins í síðustu úrslitakeppni og hótaði því að spila aldrei aftur fyrir félagið. Sixers All-Star Ben Simmons has arrived in Philadelphia and took a Covid-19 test -- as required by NBA protocol, sources tell ESPN.— Adrian Wojnarowski (@wojespn) October 12, 2021 Það var sérstök hótun því Simmons á enn eftir fjögur ár af samningi sínum við 76ers og hann á að fá fyrir þau 147 milljónir dollara eða meira en nítján milljarða íslenskra króna. Simmons vildi Philadelphia skipti honum til annars félags í NBA deildinni. Simmons hafði lokað á öll samskipti við bæði forráðamenn og liðsfélaga hjá Philadelphia 76ers á haustmánuðum en félaginu gekk á sama tíma ekkert að finna ásættanleg leikmannaskipti. Ben Simmons er stjörnubakvörður sem var með 14,3 stig, 7,2 fráköst og 6,9 stoðsendingar að meðaltali í leik á síðustu leiktíð en hann lækkaði reyndar í öllum þeim tölfræðiþáttum frá því á tímabilinu á undan. Hann er frábær varnarmaður og leikstjórnandi en skelfilegur skotmaður sem hefur orðið stórt vandamál þegar leikirnir verða mikilvægari í úrslitakeppninni. Um helgina fór það að leka út að Simmons væri að endurskoða afstöðu sína og í gærkvöldi mætti hann síðan óvænt í vinnuna. Philadelphia 76ers var þá að spila æfingaleik á móti Brooklyn Nets sem liðið vann 115-104. Ben Simmons and the 76ers have made progress on a resolution to bring him back to the team, per @wojespnPhiladelphia will still survey the league to trade him. pic.twitter.com/8elu8vN5gI— Bleacher Report (@BleacherReport) October 11, 2021 Simmons mætti í höllina rétt fyrir leik eftir flug frá Los Angeles og hóf endurkomuferlið sem hann þarf að fara gegnum vegna kórónuveirunnar. Simmons hafði þegar sleppt öllum æfingabúðum liðsins sem hafði þegar kostað hann yfir eina milljón dollara í sektir eða meira en 130 milljónir íslenskra króna. Það er samt ekki vitað hvað tekur við en í það minnsta geta aðilar byrjað að tala aftur saman og það er alltaf stórt skref í rétt átt. Simmons hefur látið sína skoðun skýrt í ljós en tekur vonandi sönsum og fer að mæta reglulega í vinnuna sína. The Sixers finding out Ben Simmons has returned to Philly from the text Hey, Ben is outside the building is laugh out loud funny. pic.twitter.com/GgsoEpYfKq— Barstool Philly (@BarstoolPhilly) October 12, 2021
NBA Mest lesið Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Körfubolti Heimsmet Japanans gildir ekki Sport Krókur Liverpool á móti bragði Enski boltinn Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Íslenski boltinn Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Fótbolti „Eins og að fá hníf í bakið“ Sport Í beinni: Njarðvík - Þór Þ. | Oddaleikur í Ljónagryfjunni Körfubolti Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Íslenski boltinn Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Íslenski boltinn Hafa ekki áhyggjur af fækkandi Elo-stigum Sport Fleiri fréttir Í beinni: Njarðvík - Þór Þ. | Oddaleikur í Ljónagryfjunni Friðrik Ingi sæmdur gullmerki Njarðvíkur Þórsarar hafa spilað þrjá oddaleiki síðan Njarðvík var síðast í oddaleik Sjokkeruðu Celtics menn með þriggja stiga skotsýningu „Heldur betur búinn að vinna hjörtu Keflvíkinga“ Tekið á móti Tryggva eins og Hollywood stjörnu Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Martin frábær í öruggum sigri „Við erum ekki með stráka sem þurfa að vera hetjur“ Sjáðu mömmu Remy Martin syngja og dansa á hliðarlínunni Luka og félagar jöfnuðu: „Þetta var 90s körfubolti eins og hann gerist bestur“ Sérfræðingarnir ekki sammála og mikil spenna fyrir oddaleikinn „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Uppgjör og viðtöl: Álftanes - Keflavík 85-114 | Sjóðheit Keflavíkursókn blés nýliðana burt Murray kramdi Lakers-hjörtun Viðar Örn: Stoltur af liðinu fyrir að skilja allt eftir á gólfinu Einar Árni hættur hjá Hetti „Erfitt að vinna þá þrisvar sinnum í röð“ Aþena er komið í úrslitaeinvígi um sæti í Subway-deild kvenna „Fannst að við hefðum átt að ná þessum mómentum fyrr“ Uppgjör: Þór Þ. - Njarðvík 84-91 | Gestirnir tryggðu sér oddaleik Uppgjör og viðtöl: Höttur - Valur 97-102 | Valsmenn í undanúrslit eftir framlengdan leik á Egilsstöðum Losnar stjarna Aþenu úr frystiklefa Brynjars Karls? Skoraði 35 stig í fyrri hálfleik „Mér finnst þetta fullmikið“ Fær þriggja leikja bann fyrir pungspark á Hlíðarenda Kawhi-lausir Clippers í engum vandræðum með Mavericks Svanirnir hefja flug í úrslitakeppninni Sjá meira
Uppgjör og viðtöl: Höttur - Valur 97-102 | Valsmenn í undanúrslit eftir framlengdan leik á Egilsstöðum