Liðsfélagi Gylfa hótar blaðamanni lögsókn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. nóvember 2020 12:01 James Rodriguez og Gylfi Sigurðsson standa við boltann eftir að Everton fékk aukaspyrnu fyrir utan teig á móti WBA í ensku úrvalsdeildinni á dögunum. Getty/Tony McArdle
Þetta var ekki góður landsleikjagluggi fyrir Gylfa okkar Sigurðsson en hann var miklu verri fyrir liðsfélaga hans James Rodriguez. James Rodriguez kom til Everton í sumar og hefur staðið sig vel með liðinu. Hann er líka í stjörnuhlutverki hjá kólumbíska landsliðinu eins og Gylfi Þór Sigurðsson er hjá því íslenska. James Rodriguez og félagar í kólumbíska landsliðinu töpuðu báðum leikjum sínum í undankeppni HM þar af fengu þeir 6-1 skell á móti Ekvador í seinni leiknum. Fyrri leiknum tapaði Kólumbía 3-0 á móti Úrúgvæ. Tapið á móti Úrúgvæ var stærsta tap Kólumbíu á móti Úrúgvæ í 82 ár en skellurinn á móti Ekvardor var samt stóra áfallið. Rodriguez ryktades ha hamnat i bråk med lagkamrat - dementerar och hotar med rättsliga åtgärder.https://t.co/48bq9VVcAB pic.twitter.com/foAfKRxqeM— Fotbollskanalen (@fotbollskanal) November 20, 2020 Javier Hernandez Bonnet, fjölmiðlamaður hjá Blu Radio, sagði spænska blaðinu Marca frá því að James Rodriguez hafi í framhaldinu af þessum vandræðalegu tapleikjum lent í slagsmálum við liðsfélaga sinn. James Rodriguez og Jefferson Lerma, sem spilar með Bournemouth, áttu að hafa lent í slagsmálum á æfingu kólumbíska landsliðsins. James Rodriguez hefur nú hótað blaðamanninum lögsókn. „Þeir sem búa til þessar fölsku fréttir eru bara að reyna að ljúga upp á mig,“ skrifaði James Rodriguez í yfirlýsingu. „Mín skilaboð til almennings, til fjölmiðla og til okkar stuðningsmanna eru að ég hafna öllum þessum fréttum um ofbeldi, árásir eða deilur sem áttu að hafa orðið á milli okkar leikmanna þar sem ég átti að vera upphafsmaðurinn,“ skrifaði Rodriguez. „Að lokum þá vil ég biðja ykkur um að halda ekki áfram að dreifa þessum fölsku fréttum. Þeir sem bjuggu til þessar fölsku ásakanir eru bara að reyna að dreifa lygasögum og ég mun lögsækja þá ef ég tel þörf á því,“ skrifaði James Rodriguez. Hann segir blaðamanninn vera að sverta orðspor sitt og ætlar mögulega að fara í hart og með málið fyrir dómstóla. Kólumbíska landsliðið hefur aðeins náð í fjögur stig út úr fjórum fyrstu leikjum sínum í undankeppninni. Liðið er því bara í sjöunda sæti af tíu liðum Suðurameríkuriðilsins. Comunicado oficial pic.twitter.com/KJjtxuoqog— James Rodríguez (@jamesdrodriguez) November 19, 2020
Enski boltinn Mest lesið Gat ekki staðið upp til að taka við bikarnum Sport Adam hundfúll og Arnar beint í símann Íslenski boltinn Sjáðu aukaspyrnumark Gylfa, umdeildan rangstöðudóm og rauðu spjöldin Íslenski boltinn „Arnar fór langt yfir strikið“ en nafni hans oftar með dónaskap Íslenski boltinn Segir að Viðar hafi ekki mætt á æfingu á leikdegi Íslenski boltinn „Maður hefur verið milli tannanna á fólki síðan maður var ungur“ Íslenski boltinn „Síðasti naglinn í kistu Ten Hag“ Enski boltinn Bielsa ætlar að velja áhugamann í landsliðshóp Úrúgvæ Fótbolti Segir að Casemiro hafi verið aðhlátursefni gegn Palace Enski boltinn Ten Hag: Leikmennirnir hefðu átt að halda áfram að berjast líkt og stuðningsfólkið Enski boltinn Fleiri fréttir Forest í bullandi fallhættu vegna bulls í fjármálum Segir að Casemiro hafi verið aðhlátursefni gegn Palace „Síðasti naglinn í kistu Ten Hag“ Ten Hag: Leikmennirnir hefðu átt að halda áfram að berjast líkt og stuðningsfólkið Crystal Palace lék sér að Man United Van Dijk vill hjálpa til við að skrifa næsta kafla Liverpool Eyddi öllum Liverpool-myndum Dómarinn verður með myndavél á höfðinu Lopetegui tekur við West Ham Lýsti Haaland sem „ofdekruðum krakka“ Miðvarðamartröð Man United heldur áfram Markasúpa þegar Liverpool komst á sigurbraut Markaveisla hjá Chelsea á móti nágrönnum sínum Lehmann keypti „Invincibles“ nafnið eftir að Arsenal sofnaði á verðinum Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Sú markahæsta með tár á hvarmi er hún tilkynnti brotthvarf sitt frá Chelsea Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Skoraði fernu og Englandsmeistararnir halda í við Skytturnar Newcastle fór illa með Jóa Berg og félaga á Turf Moor Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Ipswich Town aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir 22 ára fjarveru Arteta segir að Gabriel Jesus sé ekki á förum í sumar Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Luton mistókst að koma sér úr fallsæti Sala drykkjarins í hæstu hæðum eftir myndirnar af Haaland Klopp ósáttur við álagið: „Hádegisleikir eru glæpur“ Ten Hag vildi fá Kane í sumar: „Þú veist að hann skorar þrjátíu mörk“ Fékk hrós frá Klopp: Vingjarnlegasti maður sem ég hef hitt Sjá meira