„Fordæmalaus og söguleg spilling“ Donalds Trumps Kristín Ólafsdóttir skrifar 11. júlí 2020 22:28 Mitt Romney, öldungardeildarþingmaður repúblikana. Vísir/getty
Mitt Romney, öldungadeildarþingmaður repúblikana í Bandaríkjunum, segir það „fordæmalausa og sögulega spillingu“ að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi mildað refsingu Rogers Stone, fyrrum ráðgjafa síns og vinar. Stone var dæmdur í þriggja ára og fjögurra mánaða fangelsi fyrir að ljúga að Bandaríkjaþingi, hindra framgang réttvísinnar og reyna að hafa áhrif á vitnisburð annarra. Hann átti að hefja afplánun í alríkisfangelsi í Georgíuríki næsta þriðjudag en í gær tilkynnti Hvíta húsið að dómurinn hefði verið mildaður. Stone þarf þar með ekki að afplána fangelsisvist. Romney er einn fárra innan herbúða Repúblikanaflokksins sem ítrekað hafa gagnrýnt Trump opinberlega. Hann hélt uppteknum hætti á Twitter-reikningi sínum í dag, þar sem hann var harðorður í garð forsetans. „Fordæmalaus, söguleg spilling: bandarískur forseti mildar dóm yfir manneskju sem dæmd var fyrir að ljúga, til að hlífa umræddum forseta,“ sagði Romney í færslu sinni. Unprecedented, historic corruption: an American president commutes the sentence of a person convicted by a jury of lying to shield that very president.— Mitt Romney (@MittRomney) July 11, 2020 Stjórnmálaskýrendur í Bandaríkjunum telja að Romney verði líklega sá eini meðal þingmanna repúblikana sem viðri skoðun af þessum meiði. Fæstir þeirra hafa tjáð sig nokkuð um málið. Hvíta húsið sagði einnig í yfirlýsingu að Stone væri fórnarlamb „Rússa-ruglsins (e. Russia Hoax) sem vinstrimenn og bandamenn þeirra í fjölmiðlum hafi haldið á lofti í áraraðir til þess að grafa undan forsetanum.“ Þá er þar einnig gefið í skyn að Alríkislögregla Bandaríkjanna (FBI) hafi látið CNN-fréttastofuna vita af áhlaupi sem hún gerði á heimili Stone, þar sem tökulið frá fréttastofunni var viðstatt handtöku hans.
Bandaríkin Tengdar fréttir Trump mildar dóm yfir fyrrum ráðgjafa sínum Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur mildað fangelsisdóm sem Roger Stone, vinur forsetans og fyrrum ráðgjafi, hlaut fyrir að ljúga að Bandaríkjaþingi, að hindra framgang réttvísinnar og að reyna að hafa áhrif á vitnisburð annarra. Stone átti að hefja afplánun í alríkisfangelsi í Georgíuríki næstkomandi þriðjudag. 11. júlí 2020 07:52 Mitt Romney á meðal mótmælenda í Washington Mitt Romney, öldungardeildarþingmaður og fyrrverandi forsetaframbjóðandi Repúblikana, var einn af um þúsund mótmælendum sem marseruðu í átt að Hvíta húsinu í morgunsárið í Washington í Bandaríkjunum. 7. júní 2020 23:30 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Erlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Innlent Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Innlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Fleiri fréttir Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Sjá meira
Trump mildar dóm yfir fyrrum ráðgjafa sínum Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur mildað fangelsisdóm sem Roger Stone, vinur forsetans og fyrrum ráðgjafi, hlaut fyrir að ljúga að Bandaríkjaþingi, að hindra framgang réttvísinnar og að reyna að hafa áhrif á vitnisburð annarra. Stone átti að hefja afplánun í alríkisfangelsi í Georgíuríki næstkomandi þriðjudag. 11. júlí 2020 07:52
Mitt Romney á meðal mótmælenda í Washington Mitt Romney, öldungardeildarþingmaður og fyrrverandi forsetaframbjóðandi Repúblikana, var einn af um þúsund mótmælendum sem marseruðu í átt að Hvíta húsinu í morgunsárið í Washington í Bandaríkjunum. 7. júní 2020 23:30