„Hættulegt fordæmi til framtíðar“ Sigurður Orri Kristjánsson skrifar 26. janúar 2023 12:34 Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir miðlunartillögu ríkissáttasemjara vera vonbrigði. Vísir/Egill Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir miðlunartillögu ríkissáttasemjara vera vonbrigði. Halldór segist óttast að þetta gefi slæmt fordæmi til framtíðar.
Tillagan felur í sér að félagsmenn Eflingar og aðildarfélög SA munu greiða atkvæði um sams konar samning og gerður var við Starfsgreinasambandið fyrir áramót. Halldór segir þetta mikil vonbrigði og segir samtökin hafa talað gegn inngripum ríkisvaldsins. „Já, við erum svo sem bara að meta stöðuna og átta okkur á hvað þetta þýðir. Þetta eru náttúrulega vonbrigði fyrst og fremst og þýðir að báðum aðilum hefur mistekist. Miðlunartillaga er ekkert annað en skipbrot samtalsins. Hingað til höfum við talað gegn inngripum ríkisvaldsins í kjaradeilur. Við viljum semja við okkar viðsemjendur. Þessi deila var auðvitað komin í mjög harðan hnút og ég var að horfa á fréttamannafundinn líka þar sem ríkissáttasemjari er að tala um afturvirknina. Við hefðum viljað geta tekist á við Eflingu eftir þeim leiðum sem vinnulöggjöfin leyfir. Við vorum tilbúin að fylgja því eftir.“ Hefði kosið aðra leið Halldór hefði frekar kosið að forysta Eflingar hefði sjálf sett samningstilboðið í atkvæðagreiðslu. „Já, en við þurfum að semja aftur við Eflingu og öll önnur stéttarfélög landsins. Ég hefði kosið að forysta Eflingar hefði sett þennan kjarasamning sjálf í atkvæðagreiðslu. Það hefði verið eðlileg framvinda að sjá og kanna hug síns félagsfólks. Það var ekkert að fara að gerast í þessu tilviki eins og ég met stöðuna. En núna þurfum við bara að fara yfir þetta. Á endanum er þetta atkvæðagreiðsla bæði okkar megin og Eflingarmegin. Við munum nýta daginn í það.“ Óttast fordæmið Halldór segir samtökin munu funda með sínum félagsmönnum í dag en óttast fordæmið. „Ég óttast það að þetta gefi slæmt fordæmi til framtíðar. Það er þannig að samningar á vinnumarkaði eru þannig að það er alltaf samningur sem tekur við af samningi. Við þurfum að semja aftur við þessi verkalýðsfélög og get tekir undir það að ég óttast það fordæmi sem verið er að setja hér.“
Kjaramál Vinnumarkaður Stéttarfélög Kjaraviðræður 2022-23 Tengdar fréttir Efling hafnar lögmæti miðlunartillögunnar Efling hafnar lögmæti þeirrar miðlunartillögu sem ríkisáttasemjari hefur lagt fram í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Stéttarfélagið telur miðlunartillöguna fela það í sér að afstöðu SA sé þröngvað upp á Eflingu. 26. janúar 2023 11:58 Setur miðlunartillögu í atkvæðagreiðslu Aðalsteinn Leifsson, ríkissáttasemjari, hefur lagt fram miðlunartillögu, í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Tillagan felur í sér að félagsmenn Eflingar og aðildarfélög SA munu greiða atkvæði um sams konar samning og gerður var við Starfsgreinasambandið fyrir áramót. 26. janúar 2023 11:25 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Innlent Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Innlent Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Sjá meira
Efling hafnar lögmæti miðlunartillögunnar Efling hafnar lögmæti þeirrar miðlunartillögu sem ríkisáttasemjari hefur lagt fram í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Stéttarfélagið telur miðlunartillöguna fela það í sér að afstöðu SA sé þröngvað upp á Eflingu. 26. janúar 2023 11:58
Setur miðlunartillögu í atkvæðagreiðslu Aðalsteinn Leifsson, ríkissáttasemjari, hefur lagt fram miðlunartillögu, í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Tillagan felur í sér að félagsmenn Eflingar og aðildarfélög SA munu greiða atkvæði um sams konar samning og gerður var við Starfsgreinasambandið fyrir áramót. 26. janúar 2023 11:25