Fyrirliðinn missir af þremur leikjum

Sergio Ramos
Sergio Ramos AFP

Knattspyrnumaðurinn Sergio Ramos, fyrirliði Real Madríd, missir af næstu þremur leikjum spænska stórliðsins eftir að hafa meiðst með landsliðinu á þriðjudaginn.

Ramos fór meiddur af velli í 6:0-stórsigri Spánar á Þýskalandi í Þjóðadeild UEFA en hann meiddist á hné. Var í fyrstu talið að meiðslin gætu verið alvarleg en eftir nánari athugun verður hann ekki frá í nema nokkrar vikur. Hann missir þó af þremur leikjum með spænsku meisturunum, gegn Villarreal og Alaves í spænsku deildinni og Inter í Meistaradeild Evrópu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert