Fólk hvatt til að leggja einkabílum

Styrkur svifryks mælist hár. Bílaumferð við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegs …
Styrkur svifryks mælist hár. Bílaumferð við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegs við sólarupprás í dag. mbl.is/Kristján Þór

Styrkur svifryks mældist hár í borginni í dag og í tilkynningu frá Heilbrigðiseftirlitinu er fólk hvatt til að leggja einkabílnum. Er hægur vindur, kuldi og þurrar götur sögð vera ástæða þess að styrkurinn mælist svo hár. 

Í tilkynningu segir ennfremur að mestur styrkur hafi mælst á mælistöð á gatnamótum Bústaðarvegar og Háaleitisbrautar. Eru þeir sem eru viðkvæmir fyrir og börn hvött til að forðast stórar umferðargötur. 

Í tilkynningu segir:

„Á hádegi var styrkur svifryks við Grensásveg 148 míkrógrömm á rúmmetra eða mjög slæm loftgæði. Annars staðar voru þau slæm eða miðlungs en Í mælistöð í Fjölskyldu- og húsdýragarði var klukkutímagildið á hádegi 68,1 míkrógrömm á rúmmetra og í mælistöð við Vesturbæjarlaug 61,7 míkrógrömm á rúmmetra. Í mælistöð á gatnamótum Bústaðarvegar og Háaleitisbrautar var klukkustundargildið lægra, 41,1 míkrógrömm á rúmmetra en var hærra fyrr um morguninn.“

Fólk er hvatt til að leggja einkabílnum. Frá umferðinni í …
Fólk er hvatt til að leggja einkabílnum. Frá umferðinni í morgun. mbl.is/Kristján Þór

Almenningur nýti almenningssamgöngur 

„Nú er hægur vindur og kalt, götur þurrar og ekki líkur á úrkomu í dag svo líklegt er að styrkur svifryks fari yfir sólarhringsheilsuverndarmörk sem eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. Almenningur er hvattur til þess að draga úr notkun einkabílsins við þessar aðstæður, nýta sér frekar almenningssamgöngur, sameinast í bíla eða nota aðra vistvæna samgöngumáta.

Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum og börn ættu að forðast útivist í nágrenni stórra umferðagatna.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með styrk svifryks og annarra mengandi efna á loftgæði.is. Þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík og annars staðar á landinu,“ segiri í tilkynningu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert