Innlent

Nokkrir öflugir skjálftar í nótt

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ekkert lát er á jarðskjálftavirkninni á Reykjanesskaga.
Ekkert lát er á jarðskjálftavirkninni á Reykjanesskaga. Vísir/Vilhelm

Þrír skjálftar yfir fjórum að stærð urðu á Reykjanesskaga í nótt. Einn skjálfti varð klukkan 02.53 og mældist 4,3 að stærð. Upptök hans voru á þriggja kílómetra dýpi 1,3 kílómetra suðvestur af Keili.

Aðeins tólf mínútum seinna kom annar stór skjálfti, 4,6 að stærð. Upptök hans voru á 6,3 kílómetra dýpi 2,2 kílómetra norðaustur af Fagradalsfjalli.

Klukkan 05:36 varð síðan einn að stærðinni 4,2. Upptök hans voru á sex kílómetra dýpi 3,3 kílómetra norðaustur af Fagradalsfjalli.

Um fjörutíu mínútum síðar, klukkan 06:15, varð svo skjálfti að stærðinni 4,1. Upptök hans voru á 5,2 kílómetra dýpi 2,7 kílómetra suðvestur af Keili.

Bjarki Kaldalóns Friis, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir í samtali við Vísi að um 660 skjálftar hafi mælst á svæðinu frá því á miðnætti og þar til núna.

Fjöldi þeirra hefur verið yfir þremur, til að mynda einn sem varð klukkan 05:49 og mældist 3,4 að stærð samkvæmt óyfirförnum mælingum í jarðskjálftatöflu á vef Veðurstofunnar.

Jarðskjálftavirknin er að mestu leyti bundin við það svæði sem verið hefur, það er við Fagradalsfjall, Keili og Trölladyngju.

Aðspurður hvort Veðurstofan hafi fengið margar tilkynningar í nótt um það hvar fólk hafi fundið þessa stærstu skjálfta sem hafa mælst síðustu klukkutímana segir Bjarki svo ekki vera.

Töluvert hafi dregið úr því síðustu daga að fólk tilkynni hvar það finni skjálfta en gera má ráð fyrir því að skjálftarnir hafi vakið einhverja af værum blundi á Reykjanesskaganum, höfuðborgarsvæðinu og jafnvel allt upp í Borgarfjörð og suður á Hellu.

Greint var frá því í gær að vísindaráð almannavarna telji líklegustu skýringuna á þessari miklu jarðskjálftavirkni á Reykjanesskaga undanfarna daga þá að kvikugangur sé að myndast undir svæðinu þar sem mesta virknin hefur verið.

Í þessu ljósi var Bjarki spurður að því hvort það væri byrjað að gjósa á Reykjanesskaga en hann sagði ekki svo vera og að ekki væru nein merki um að gos væri í aðsigi þar sem skjálftarnir væru á það miklu dýpi.

Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um skjálftann sem varð kl. 06:15.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×