Dagný jákvæð og neikvæð en verður heima: Hef spilað fótbolta mikið veikari Sindri Sverrisson skrifar 9. apríl 2021 09:39 Dagný Brynjarsdóttir fagnar einu markanna gegn Reading síðasta laugardag. Hún fór að finna fyrir flensueinkennum eftir að hún kom heim til Lundúna. Getty/Warren Little „Ég finn fyrir vægum einkennum en ég veit ekki hvort þetta séu týpísk Covid-einkenni,“ segir Dagný Brynjarsdóttir sem þarf að bíta í það súra epli að missa af landsleikjunum gegn Ítalíu á morgun og miðvikudag.
Íslenski landsliðshópurinn er mættur til Ítalíu vegna leikjanna en Dagný varð eftir á Englandi, þar sem hún býr nú eftir að hafa gengið í raðir West Ham fyrr á þessu ári. Til stóð að Dagný færi til Ítalíu á þriðjudaginn en þar sem að niðurstöður úr smitprófi höfðu ekki borist varð hún að fresta fluginu. Hún fór í nýtt próf á þriðjudag og greindist þar jákvæð. Allt lið West Ham var þá kallað í smitpróf en þar greindist hvorki Dagný né neinn liðsfélaga hennar með jákvætt sýni. Dagný segir að hún muni því ekki geta vitað með vissu hvort hún sé með kórónuveiruna fyrr en við mótefnamælingu, líklega eftir mánuð. Hún og fjölskylda hennar verði í tíu daga einangrun og að enn eitt smitprófið myndi engu breyta um það. „Hélt að ég væri með einhvern leikskólaskít“ Dagný segir að sonur sinn sé búinn að vera veikur síðan á föstudag og hún hafi sjálf fundið fyrir fyrstu einkennum á sunnudag, eftir að hafa komið heim úr útileik gegn Reading. „Ég hélt að ég væri bara með einhvern leikskólaskít,“ segir Dagný og bætir við að þó þau mæðginin séu ekki mjög veik sé líðan þeirra enn lítið breytt í dag. „Ég hef spilað fótboltaleiki mikið veikari en þetta, en einkennin geta víst verið svo misjöfn. Ég er mikið að hnerra og með stíflað nef, röddin er búin að vera öðruvísi og það er slen yfir manni. Sonur minn er búinn að vera veikur síðan á föstudag en maðurinn minn ekki neitt,“ segir Dagný. Dagný Brynjarsdóttir ekki með gegn Ítalíu.#LeiðinTilEnglands #dottirhttps://t.co/lfv8uO4tDa— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) April 9, 2021 Dagný átti góðan leik í 5-0 sigri gegn Reading síðasta laugardag og hefur nú leikið fjóra leiki fyrir West Ham eftir komuna til Lundúna frá Selfossi. West Ham er í 10. sæti af 12 liðum deildarinnar og sigurinn gegn Reading var dýrmætur. Næsti leikur er gegn botnliði Aston Villa 20. apríl og mögulega getur Dagný spilað hann. „Hlakkaði ógeðslega til að vera með aftur“ „Ég hef ekki spilað landsleik í langan tíma og hlakkaði ógeðslega til að vera með aftur, spennt að hitta stelpurnar, þannig að ég var ógeðslega vonsvikin yfir þessu,“ segir Dagný og bætir við: „Seinasti leikur var líka minn besti fyrir West Ham og ég var komin á ról aftur. Þess vegna fannst mér þetta ömurleg tímasetning, en ljósi punkturinn er að ef ég verð einkennalaus eftir þessa tíu daga einangrun þá gæti ég mætt á æfingar strax eftir landsleikjahléið og ekki misst af leik með West Ham.“ Dagný Brynjarsdóttir skoraði þrennu í fyrri hálfleik gegn Lettum í september þó að hún væri að glíma við meiðsli.VÍSIR/VILHELM Dagný á að baki 90 A-landsleiki og hefur skorað í þeim 29 mörk, flest allra núverandi landsliðskvenna. Hún lék síðast með landsliðinu í 1-1 jafnteflinu dýrmæta við Svíþjóð í september, þó að hún væri þá reyndar að glíma við meiðsli.
Enski boltinn Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Óskar hafi sett stjórninni afarkosti Fótbolti Brotthvarf Óskars „eins og þruma úr heiðskíru lofti“ Fótbolti „Hrafninn svífur yfir Vesturbænum“ Íslenski boltinn Óskar Hrafn hættur hjá Haugesund Fótbolti Fjórtán ára strákur með Man City klásúlu í samningi sínum við annað félag Enski boltinn „Erum ekki á góðum stað sem fótboltalið í augnablikinu“ Fótbolti Bláa flautan hjálpar bæði foreldrum og þjálfurum Íslenski boltinn Dortmund fær meira fyrir að tapa en vinna úrslitaleikinn Fótbolti Kveðjuleikur Klopp í hættu? | „Meðvitaður um stöðuna“ Enski boltinn Eysteinn ráðinn framkvæmdastjóri KSÍ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Kveðjuleikur Klopp í hættu? | „Meðvitaður um stöðuna“ Sextán ára stelpa skoraði í Bestu eftir stoðsendingu frá einni fimmtán ára „Hrafninn svífur yfir Vesturbænum“ Eysteinn ráðinn framkvæmdastjóri KSÍ Cole Palmer valinn bestur í apríl Dortmund fær meira fyrir að tapa en vinna úrslitaleikinn Óskar hafi sett stjórninni afarkosti Óskar verði sjálfur að svara fyrir ákvörðun sína Bláa flautan hjálpar bæði foreldrum og þjálfurum Brotthvarf Óskars „eins og þruma úr heiðskíru lofti“ Hóta því að lögsækja FIFA Óskar Hrafn hættur hjá Haugesund Fjórtán ára strákur með Man City klásúlu í samningi sínum við annað félag „Erum ekki á góðum stað sem fótboltalið í augnablikinu“ Sveindís hafði betur gegn Glódísi Rankaði við sér í sjúkrabíl: „Þekki hve alvarlegar afleiðingar þetta getur haft“ Evrópudraumur Aston Villa úti Atalanta og Leverkusen í úrslit Evrópudeildarinnar „Persónulegt markmið að skora einu sinni á móti öllum liðum“ Fullt hús stiga hjá Njarðvíkingum og tvö rauð á Akureyri Uppgjör: Tindastóll - Fylkir 3-0 | Fyrsta tap nýliðanna Stefán Teitur og félagar bikarmeistarar Sveindís bikarmeistari annað árið í röð Uppgjörið: Víkingur - Þór/KA 1-2 | Þrír norðansigrar í röð Katla með tvennu í Íslendingaslag Rodri kemur ekki til greina en Spánn á bestu stjórana Rekin út af fyrir litla töf, Nadía reddaði Fanneyju og Blikar sjóðheitir Hafnað af Stoke og var stuðningsmaður Real síðast Fyrsta sumarmót ársins í opinni dagskrá í kvöld Tekst Glódísi að hrifsa „barnið“ af Popp í dag? Sjá meira