Pétur Ingvarsson: Við skorum 122 stig og það er erfitt fyrir þá að ná því Sverrir Mar Smárason skrifar 4. desember 2021 20:34 Pétur Ingvarsson, þjálfair Blika, vareðlilega sáttur með öruggan sigur sinna manna í kvöld. Vísir/Daníel Breiðablik vann 28 stiga sigur á Þór frá Akureyri í Smáranum í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Liðið skoraði 122 stig sem er það mesta sem það hefur skorað í einum leik á tímabilinu. Pétur Ingvarsson, þjálfari Blika, var að vonum ánægður í leikslok. „Að sjálfsögðu sáttir. Þetta spilaðist svolítið að okkur og eins og við vildum hafa þetta í öðrum leikhluta og það var erfitt fyrir þá að ná þessu eftir það,“ sagði Pétur. Breiðablik byrjaði hægt en gaf svo hressilega í þegar leið á fyrri hálfleik. Liðið skoraði til að mynda 39 stig í 2. leikhluta. Liðið fékk að stýra hraðanum og hlaupa eins og það vildi. „Við skorum 122 stig og það er erfitt fyrir þá að ná því þegar við skorum 122. Það hefur verið erfitt fyrir lið að halda í við okkur en það hefur vantað endahnútinn á leikina en það þurfti ekki í dag. Við erum kannski áfram með sama vandamál varðandi það að klára jafna leiki,“ sagði Pétur. Fimm leikmenn Breiðabliks skoruðu í kringum 20 stig í leiknum. Gulls ígildi fyrir þjálfara og lið að fá stig úr öllum áttum og Pétur segir það þurfa að vera svoleiðis þegar sótt er hratt. „Þegar við spilum hratt og skorum mörg stig þá þurfa einhverjir að skora. Það er ekki hægt að einn maður skori þetta allt. Þetta verður að dreifast svolítið á menn og það verður erfiðara að eiga við okkur varnarlega ef allir geta skorað. Þetta eru mikið af auðveldum körfum, mikið af hlaupum og opnum þriggja stiga skotum. Ef menn geta sett þetta ofan í þá eru menn í góðum málum,“ sagði Pétur um dreifingu stiga í dag. Sinisa Bilic, leikmaður Blika, var hvergi sjáanlegur í Smáranum í kvöld. Eitthvað hefur verið talað um það að hann sé farinn frá félaginu. Pétur staðfesti í viðtalinu að svo sé. „Hann bara sagði upp samningnum 1. desember og er bara farinn. Það er ekkert flóknara en það að hann hætti bara með okkur. Við höfum oft hætt með leikmönnum en núna hætti hann bara með okkur,“ sagði Pétur um Bilic sem nú er orðinn fyrrum leikmaður Breiðabliks. Blikar unnu sinn annan sigur í deildinni með sigrinum í kvöld og eru því komnir með 4 stig. Næst eiga þeir Vestra á Ísafirði sem Pétur heldur að verði mjög erfiður leikur. „Við eigum Vestra í næsta leik fyrir vestan og það verður gríðarlega erfiður leikur. Að vera ekki með Bilic munar rosalega fyrir okkur því við erum ekki hávaxnasta liðið. Getum ekkert bætt við okkur núna svo það verður mjög erfiður leikur. Það er bara næsti leikur og maður er ekkert farinn að hugsa neitt meira en það,“ sagði Pétur að lokum. Subway-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Subway-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði. Breiðablik Subway-deild karla Tengdar fréttir Leik lokið: Breiðablik - Þór Ak. 122-94 | Stórsigur í botnslagnum Breiðablik vann öruggan 28 stiga sigur, 122-94, er liðið tók á móti Þórsurum frá Akureyri í uppgjöri neðstu liða Subway-deildarinnar í kvöld. 4. desember 2021 19:41 Mest lesið Uppgjör, viðtöl og myndir: Grindavík-Valur 93-89 | Gulir jöfnuðu metin Körfubolti Hefur fest rætur á Íslandi eftir örlagaríkt símtal Íslenski boltinn Uppgjör, viðtöl og myndir: FH-KR 1-2 | KR-ingar á sigurbraut eftir hark í Hafnafirði Íslenski boltinn Jón Arnar grét það ekki að sjá Daníel slá þrjátíu ára Íslandsmet sitt Sport Uppgjörið: Vestri-Víkingur 1-4 | Öruggur meistarasigur gegn nýliðunum Íslenski boltinn Uppgjör og viðtöl: KA-Fylkir 4-2 | Fyrsti sigur Akureyringa í hús Íslenski boltinn Klopp: Ulla konan mín mun segja mér hvað við erum að fara að gera Enski boltinn Gamli Íslandsvinurinn kraftaverkamaður í Mainz Fótbolti Fékk rautt spjald fyrir brot á Sveindísi sem fór meidd af velli Fótbolti Guardiola um framtíðina: Nær því að hætta en vera áfram Enski boltinn Fleiri fréttir „Eins og Svali segir: Móðir allra íþrótta“ „Spilum eins og það sé enginn morgundagur“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Grindavík-Valur 93-89 | Gulir jöfnuðu metin Spilaði á móti Caitlin Clark og Paige Bueckers í háskóla „Það að við höfum ekki hjálpað honum meira fór mest í taugarnar á mér“ Keflavík er 10-0 á móti Njarðvík í körfunni í vetur Meistararnir úr leik eftir stærstu endurkomu sögunnar Indiana Pacers í úrslit Austurdeildarinnar eftir sigur í oddaleik „Þetta eru tvö dúndurlið“ „Þarf að sjá eld í staðinn fyrir einhverja hræðslu“ Uppgjör: Njarðvík - Keflavík 71-81 | Keflvíkingar nálgast titilinn Martin og félagar einum sigri frá undanúrslitum Dallas komið í úrslit Vestursins Elvar stigahæstur í grátlegu tapi Indiana svaraði fyrir og knúði fram oddaleik Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Valsmenn endurheimta Kára á besta tíma Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Martin og félagar hófu úrslitakeppnina á stórsigri 92 prósent sigurvegara leiks eitt frá árinu 2011 hafa orðið Íslandsmeistarar „Það helltust yfir mann bara alls konar tilfinningar“ Jafnaði met mömmu sinnar 29 árum síðar Stærsta tap meistara í sögu úrslitakeppninnar „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Sjá meira
„Að sjálfsögðu sáttir. Þetta spilaðist svolítið að okkur og eins og við vildum hafa þetta í öðrum leikhluta og það var erfitt fyrir þá að ná þessu eftir það,“ sagði Pétur. Breiðablik byrjaði hægt en gaf svo hressilega í þegar leið á fyrri hálfleik. Liðið skoraði til að mynda 39 stig í 2. leikhluta. Liðið fékk að stýra hraðanum og hlaupa eins og það vildi. „Við skorum 122 stig og það er erfitt fyrir þá að ná því þegar við skorum 122. Það hefur verið erfitt fyrir lið að halda í við okkur en það hefur vantað endahnútinn á leikina en það þurfti ekki í dag. Við erum kannski áfram með sama vandamál varðandi það að klára jafna leiki,“ sagði Pétur. Fimm leikmenn Breiðabliks skoruðu í kringum 20 stig í leiknum. Gulls ígildi fyrir þjálfara og lið að fá stig úr öllum áttum og Pétur segir það þurfa að vera svoleiðis þegar sótt er hratt. „Þegar við spilum hratt og skorum mörg stig þá þurfa einhverjir að skora. Það er ekki hægt að einn maður skori þetta allt. Þetta verður að dreifast svolítið á menn og það verður erfiðara að eiga við okkur varnarlega ef allir geta skorað. Þetta eru mikið af auðveldum körfum, mikið af hlaupum og opnum þriggja stiga skotum. Ef menn geta sett þetta ofan í þá eru menn í góðum málum,“ sagði Pétur um dreifingu stiga í dag. Sinisa Bilic, leikmaður Blika, var hvergi sjáanlegur í Smáranum í kvöld. Eitthvað hefur verið talað um það að hann sé farinn frá félaginu. Pétur staðfesti í viðtalinu að svo sé. „Hann bara sagði upp samningnum 1. desember og er bara farinn. Það er ekkert flóknara en það að hann hætti bara með okkur. Við höfum oft hætt með leikmönnum en núna hætti hann bara með okkur,“ sagði Pétur um Bilic sem nú er orðinn fyrrum leikmaður Breiðabliks. Blikar unnu sinn annan sigur í deildinni með sigrinum í kvöld og eru því komnir með 4 stig. Næst eiga þeir Vestra á Ísafirði sem Pétur heldur að verði mjög erfiður leikur. „Við eigum Vestra í næsta leik fyrir vestan og það verður gríðarlega erfiður leikur. Að vera ekki með Bilic munar rosalega fyrir okkur því við erum ekki hávaxnasta liðið. Getum ekkert bætt við okkur núna svo það verður mjög erfiður leikur. Það er bara næsti leikur og maður er ekkert farinn að hugsa neitt meira en það,“ sagði Pétur að lokum. Subway-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Subway-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Subway-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Subway-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Breiðablik Subway-deild karla Tengdar fréttir Leik lokið: Breiðablik - Þór Ak. 122-94 | Stórsigur í botnslagnum Breiðablik vann öruggan 28 stiga sigur, 122-94, er liðið tók á móti Þórsurum frá Akureyri í uppgjöri neðstu liða Subway-deildarinnar í kvöld. 4. desember 2021 19:41 Mest lesið Uppgjör, viðtöl og myndir: Grindavík-Valur 93-89 | Gulir jöfnuðu metin Körfubolti Hefur fest rætur á Íslandi eftir örlagaríkt símtal Íslenski boltinn Uppgjör, viðtöl og myndir: FH-KR 1-2 | KR-ingar á sigurbraut eftir hark í Hafnafirði Íslenski boltinn Jón Arnar grét það ekki að sjá Daníel slá þrjátíu ára Íslandsmet sitt Sport Uppgjörið: Vestri-Víkingur 1-4 | Öruggur meistarasigur gegn nýliðunum Íslenski boltinn Uppgjör og viðtöl: KA-Fylkir 4-2 | Fyrsti sigur Akureyringa í hús Íslenski boltinn Klopp: Ulla konan mín mun segja mér hvað við erum að fara að gera Enski boltinn Gamli Íslandsvinurinn kraftaverkamaður í Mainz Fótbolti Fékk rautt spjald fyrir brot á Sveindísi sem fór meidd af velli Fótbolti Guardiola um framtíðina: Nær því að hætta en vera áfram Enski boltinn Fleiri fréttir „Eins og Svali segir: Móðir allra íþrótta“ „Spilum eins og það sé enginn morgundagur“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Grindavík-Valur 93-89 | Gulir jöfnuðu metin Spilaði á móti Caitlin Clark og Paige Bueckers í háskóla „Það að við höfum ekki hjálpað honum meira fór mest í taugarnar á mér“ Keflavík er 10-0 á móti Njarðvík í körfunni í vetur Meistararnir úr leik eftir stærstu endurkomu sögunnar Indiana Pacers í úrslit Austurdeildarinnar eftir sigur í oddaleik „Þetta eru tvö dúndurlið“ „Þarf að sjá eld í staðinn fyrir einhverja hræðslu“ Uppgjör: Njarðvík - Keflavík 71-81 | Keflvíkingar nálgast titilinn Martin og félagar einum sigri frá undanúrslitum Dallas komið í úrslit Vestursins Elvar stigahæstur í grátlegu tapi Indiana svaraði fyrir og knúði fram oddaleik Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Valsmenn endurheimta Kára á besta tíma Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Martin og félagar hófu úrslitakeppnina á stórsigri 92 prósent sigurvegara leiks eitt frá árinu 2011 hafa orðið Íslandsmeistarar „Það helltust yfir mann bara alls konar tilfinningar“ Jafnaði met mömmu sinnar 29 árum síðar Stærsta tap meistara í sögu úrslitakeppninnar „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Sjá meira
Leik lokið: Breiðablik - Þór Ak. 122-94 | Stórsigur í botnslagnum Breiðablik vann öruggan 28 stiga sigur, 122-94, er liðið tók á móti Þórsurum frá Akureyri í uppgjöri neðstu liða Subway-deildarinnar í kvöld. 4. desember 2021 19:41
Uppgjör, viðtöl og myndir: FH-KR 1-2 | KR-ingar á sigurbraut eftir hark í Hafnafirði Íslenski boltinn
Uppgjör, viðtöl og myndir: FH-KR 1-2 | KR-ingar á sigurbraut eftir hark í Hafnafirði Íslenski boltinn