Katrín Tanja tekur harkalega U-beygju: Ég er ekki búin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. október 2021 08:30 Katrín Tanja Davíðsdóttir með vinkonu sinni og æfingafélaga Anníe Mist Þórisdóttur. Instagram/@katrintanja Katrín Tanja Davíðsdóttir náði ekki sínum markmiðum á heimsleikunum í CrossFit í sumar en það er mikill hugur í tvöfalda heimsmeistaranum fyrir komandi tímabil.
Katrín Tanja fór frá því að vinna silfur á heimsleikunum 2020 í það enda neðar en hún hafði endað á heimsleikunum í sjö ár. Svava Kristín Grétarsdóttir hitti CrossFit stórstjörnurnar Anníe Mist Þórisdóttur og Karínu og spurði Katrínu Tönju meðal annars út í vonbrigðin á síðustu heimsleikum. „Við erum aldrei að stefna á tíunda sætið og það er bara þannig, því við viljum vera bestar í heimi,“ segir Katrín Tanja. Anníe bjargaði hennar heimsleikum „Þetta eru bara íþróttirnar og það eru betri ár og verri ár. Þá endurmetur maður stöðuna og skoðar hvað fór úrskeiðis. Hún gerði mína leika til dæmis. Það var magnað,“ segir Katrín og gaf Anníe faðmlag. Anníe Mist vann silfrið í magnaðri endurkomu sinni eftir að hafa eignast barn ári áður. „Það var magnað að fá að fylgjast með Anníe og ég hafði líka fengið að fylgjast með henni á baklínunni. Ég veit hvað þetta var erfitt og mikil áskorun fyrir hana. Það eru allir með stjörnur í augunum að hún hafi komist svona út úr leikunum,“ segir Katrín. View this post on Instagram A post shared by Katri n Tanja Davi ðsdo ttir (@katrintanja) „Þetta var ekki hægt án hennar“ Anníe Mist þakkar Katrínu líka. „Þetta var ekki hægt án hennar,“ skaut Anníe inn í en Katrín hélt áfram að gera upp sína heimsleika. „Ég fékk ekki mitt ár en það er þannig í íþróttunum að maður á góð ár og slæm ár. Þegar ég verð orðin sextíu ára þá get ég alveg horft til baka og sagt ég komst inn á topp tíu meðal þeirra hraustustu í heimi. Núna líður mér ekki þannig. Núna líður mér eins og ég hafi ollið sjálfri mér og fólkinu mínu vonbrigðum,“ segir Katrín. „Á svoleiðis stundu þá endurmetur maður stöðuna. Ég nota það bara. Ég er ekki búin því það er svo margt sem maður á eftir. Sem betur fer, að þegar það er slæmur dagur, þá kemur nýr dagur og þegar maður á slæmt ár þá kemur nýtt ár,“ segir Katrín. Klippa: Katrín Tanja ræðir síðustu heimsleika og framhaldið Vita betur næst og gera bestur næst „Síðustu mánuðir hjá mér hafa bara verið fullir af æfingum. Ég hef verið mikið að endurmeta það hvað mig vantar. Hvað er það sem ég er ekki að sjá? Hvað er það sem ég er ekki búin að vera að vinna rétt í? Ég er rosalega mikið að endurmeta stöðuna, gera betur og nota þetta,“ segir Katrín. „Auðvitað er þetta erfitt en líka bara að muna það að maður gerir alltaf sitt besta með það sem maður hefur. Núna er bara að vita betur næst og gera bestur næst og nota þetta í ár,“ segir Katrín. Anníe Mist kemur þarna inn í viðtalið og segir frá sinni reynslu. „Ég hef átt svona ár líka og það góða við þau ár er að maður finnur út úr hlutum. Það er pínu klikkað að við erum búin að vera í þessu í svo mörg ár en eftir hvert ár þá getur maður farið til baka og sagt: Ég get bætt mig svo ógeðslega mikið hérna, vá ég get bætt mig svo mikið hérna. Þetta hérna fór úrskeiðis og þetta hefði getað farið betur hér og þar. Þarna erum við komin með sæti, sæti, sæti til að klifra upp,“ segir Anníe. View this post on Instagram A post shared by Katri n Tanja Davi ðsdo ttir (@katrintanja) Aldrei með eins mikinn metnað og eftir þau ár „Ég held yfirleitt, ef við erum eins, að ef maður á eitthvað ár þegar maður er ekki nógu sáttur, þá kemur alltaf sterkari til baka eftir þau ár. Maður er aldrei með eins mikinn metnað og eftir þau ár,“ segir Anníe. „Við höfum verið á toppnum og við höfum átt okkar erfiðu ár. Þessi erfiðu ár eru þau sem þvinga mann aðeins hærra. Þau fá mann til að líta í eigin barm og segja við sjálfan sig: Mig langar þetta ekki aftur. Mig langar ekki að líða aftur svona. Hvað er það ég þarf að gera? Þetta lætur mann taka harkalegri U-beygju til þess að vinna í sínum hlutum,“ segir Katrín. Katrín Tanja talaði líka um viðbrögðin frá fólki þegar hún kom til baka. Það er vissulega mikið afrek að vera eins af tíu hraustustu CrossFit konum heims. Fólk veit ekki alveg hvað það á að segja. Fólk veit ekki alveg hvað það á að segja. Margir segja bara til hamingju. Mér finnst erfitt að taka við til hamingju. Fyrir hvað? Auðvitað er þetta alveg afrek og maður gerði sitt besta,“ segir Katrín. „Að sjálfsögðu, við erum að tala um að vera inn á topp tíu á heimsleikunum,“ skaut Anníe inn. „Svo eru sumir bara rosalega heiðarlegir. Ég mætti einum sem sagði við mig: Þetta bara gekk ekki nógu vel hjá þér í ár. Nei, það bara gerði það ekki,“ segir Katrín. Hér fyrir ofan má sjá þetta viðtalsbrot úr spjallinu við þær Katrínu Tönju og Anníe Mist.
CrossFit Mest lesið Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Enski boltinn „Núna ætla ég að klára þetta þar sem þetta er síðasta tímabilið mitt hérna“ Sport Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Körfubolti Tiger trúir enn á sjálfan sig: „Líður enn eins og ég geti unnið golfmót“ Golf Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ Enski boltinn „Þetta var eitt það erfiðasta sem ég hef farið í gegnum“ Sport Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Körfubolti Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Handbolti Dagskráin í dag: Úrslitin hefjast í Subway-deild kvenna Sport Fleiri fréttir Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Dagskráin í dag: Úrslitin hefjast í Subway-deild kvenna Tiger trúir enn á sjálfan sig: „Líður enn eins og ég geti unnið golfmót“ Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu „Núna ætla ég að klára þetta þar sem þetta er síðasta tímabilið mitt hérna“ „Þetta var eitt það erfiðasta sem ég hef farið í gegnum“ „Þetta var ótrúlega erfitt“ Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Vlahovic tryggði Juventus bikarmeistaratitilinn United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð KA sneri taflinu við í seinni hálfleik Gísli lagði upp í Íslendingaslag og Elfsborg vann risasigur Teitur skoraði fimm og Flensburg heldur naumlega í við toppliðin Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Breiðablik 0-2 | Blikar enn með fullt hús Ásdís Karen kom Lilleström á bragðið Kjósa um hvort notkun VAR verði hætt Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 0-1 | Þróttarar enn án sigurs Everton boðið neyðarlán til að klára nýja heimavöllinn Gæti haldið áfram eftir allt saman Jens fyllir í stóra skó Sigfúsar Ægis hjá TBR FIFA íhugar að leyfa deildarleiki í öðrum löndum Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Fækka landsleikjagluggum og koma á fót HM félagsliða Segja að Mbappé og forseti PSG hafi öskrað á hvor annan Stjóri Spurs ósáttur við viðhorfið: „Þetta er utan félagsins, innan þess, alls staðar“ Coach K aðstoðar Lakers í þjálfaraleit Sjá meira