Páll svarar sögusögnum um bólusetningar stjórnenda á Landspítalanum Kristín Ólafsdóttir skrifar 15. janúar 2021 13:59 Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala. Vísir/vilhelm Forstjóri Landspítala, framkvæmdastjórn eða aðrir stjórnendur spítalans hafa ekki verið bólusettir gegn kórónuveirunni. Þetta kemur fram í pistli Páls Matthíassonar forstjóra í dag, þar sem hann svarar sögusögnum um bólusetningu stjórnendateymisins.
Páll fer um víðan völl í forstjórapistli dagsins. Hann segir viðbrögð starfsfólks Landspítalans við tveimur kórónuveirusmitum hjá sjúklingum í vikunni hafa verið fumlaus; annað greindist á hjartadeild og hitt á blóð- og krabbameinslækningadeild. „Í fyrra tilvikinu reyndist um eldra smit að ræða sem greindist við útskrift sjúklings en í hinu síðara fannst fyrir árverkni starfsfólks virkt smit hjá sjúklingi sem lagst hafði inn deginum áður, eftir að hafa fengið þjónustu á annarri heilbrigðisstofnun. […] Snör vinnubrögð þrautþjálfaðra starfsmanna spítalans og öflugar sýkingarvarnir þeirra fyrir og eftir þessa alvarlegu atburði skiptu sköpum. Frekari smit hafa ekki greinst en viðbrögðin voru hárrétt og viðeigandi,“ segir Páll. Verða öll að virða forgangsröðun Þá fjallar Páll um bólusetningarmál innan spítalans. Hann, auk fulltrúa farsóttarnefndar, hafi fengið fjölmargar rökstuddar óskir um að ákveðnir hópar innan spítalans þurfi að ganga fyrir öðrum í bólusetningu. „Þótt ég hafi fullan skilning á því að stjórnendur beri hag starfsfólks síns sér fyrir brjósti og vilji verja sem best þá þjónustu sem veitt er og þótt ég skilji vel að fólk óttist það að sýkjast þá verðum við öll að virða forgangsröðun sem sett hefur verið fram. Eftir því sem bóluefni berst til landsins þá verða landsmenn bólusettir og þar er fylgt þeirri forgangsröðun sem liggur fyrir,“ segir Páll. Sama gildir um Jón og séra Jón Þá víkur hann að sögusögnum um að stjórnendur Landspítalans hafi fengið bólusetningu við Covid en vikið var að umræddum sögusögnum á upplýsingafundi almannavarna vegna kórónuveirunnar í gær. Páll segir það sama gilda „fyrir Jón og séra Jón“ varðandi bólusetningar. „[…] og ég vil sérstaklega taka fram, vegna sögusagna um annað, að forstjóri og framkvæmdastjórn eða aðrir stjórnendur spítalans hafa ekki verið bólusettir fyrir COVID-19,“ segir Páll. „Undantekningar frá þessu eru auðvitað þær ef fólk sinnir einnig beinum sjúklingasamskiptum í framlínu og tilheyrir þannig þegar skilgreindum forgangshópum. Við hin bíðum róleg þar til að okkur kemur, í þeirri vissu að framar okkur í röðinni er sannarlega fólk sem þarf meira á bólusetningu að halda.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Landspítalinn Bólusetningar Tengdar fréttir Pfizer fækkar skömmtum til Evrópu næstu vikur Færri skammtar af bóluefni lyfjaframleiðandans Pfizer munu berast til Evrópu frá og með næstu viku en áætlað var. Um tímabundna breytingu á afhendingaráætlun er að ræða, að því er fram kemur á vef Lýðheilsustofnunar Noregs. Þar segir einnig að breytingin hafi áhrif á öll lönd í Evrópu. 15. janúar 2021 11:44 Ekkert formalín í bóluefnum Pfizer og Moderna Ekkert formalín er að finna í bóluefnum Pfizer - BioNTech og Moderna við Covid-19 en efnið gæti verið að finna í öðrum bóluefnum sem munu innihalda óvirkjaðar veirur. 15. janúar 2021 10:52 „Núna erum við að ljúka mjög erfiðri lotu“ Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, segir að það sem standi upp úr fyrir honum í baráttunni við kórónuveiruna síðasta árið sé samstaða þjóðarinnar. 15. janúar 2021 08:20 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Innlent Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Innlent Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Innlent Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Innlent Fleiri fréttir „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Einar segir forsetaembættið um ekki neitt Svona gæti bensínstöðvarreiturinn við Ægisíðu litið út Ákærð fyrir að kæfa son sinn með kodda Börn lögð inn með kíghósta „Við reyndum eins og við gátum“ Framkvæmdanefnd fyrir Grindavík sett á laggirnar Sambærileg rúðubrot í Lækjargötu og á Skólavörðustíg Skipar framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Spellvirkinn lætur til skarar skríða á ný Svona var Pallborðið með Höllu Hrund, Katrínu og Baldri Svandís boðar til blaðamannafundar Sjá meira
Pfizer fækkar skömmtum til Evrópu næstu vikur Færri skammtar af bóluefni lyfjaframleiðandans Pfizer munu berast til Evrópu frá og með næstu viku en áætlað var. Um tímabundna breytingu á afhendingaráætlun er að ræða, að því er fram kemur á vef Lýðheilsustofnunar Noregs. Þar segir einnig að breytingin hafi áhrif á öll lönd í Evrópu. 15. janúar 2021 11:44
Ekkert formalín í bóluefnum Pfizer og Moderna Ekkert formalín er að finna í bóluefnum Pfizer - BioNTech og Moderna við Covid-19 en efnið gæti verið að finna í öðrum bóluefnum sem munu innihalda óvirkjaðar veirur. 15. janúar 2021 10:52
„Núna erum við að ljúka mjög erfiðri lotu“ Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, segir að það sem standi upp úr fyrir honum í baráttunni við kórónuveiruna síðasta árið sé samstaða þjóðarinnar. 15. janúar 2021 08:20