Halldóra vill ekki taka við gögnum um sóttvarnaaðgerðir með trúnaðarskyldu Heimir Már Pétursson skrifar 8. apríl 2021 11:19 Halldóra Mogensen segir að ekki hafi verið búið að reyna vægari úrræði áður en reglugerð var sett sem skyldaði alla sem koma til landsins á sóttvarnahótel. Vísir/Vilhelm Fulltrúi Pírata í velferðarnefnd segir stjórnvöld hafa gengið of langt með reglugerð sem skyldaði alla til dvalar á sóttvarnahóteli eftir komuna til landsins. Hún hefur óskað eftir gögnum frá heilbrigðisráðuneytinu varðandi undirbúning reglugerðarinnar en ráðuneytið vill að trúnaður ríki um hluta gagnanna.
Halldóra Mogensen, fulltrúi Pírata í velferðarnefnd, óskaði eftir gögnum frá heilbrigðisráðuneytinu eftir að heilbrigðisráðherra mætti fyrir nefndina á þriðjudag, varðandi undirbúning reglugerðar um sóttvarnahótel sem héraðsdómur dæmdi síðan ólöglega. Svör bárust frá heilbrigðisráðuneytinu í gær sem rædd voru á fundi velferðarnefndar í morgun. „Ég bað um til dæmis öll málsgögn sem varðar undirbúning og setningu reglugerðar um sóttkví, einangrun og sýnatöku við landamæri og upplýsingar um öll skráð samskipti, formlega og óformleg innan ráðuneytisins, og upplýsingar um ákvörðun ríkisstjórnarinnar um setningu reglugerðarinnar sem var til umræðu á ríkisstjórnarfundi þann 30. mars,“ segir Halldóra. Fleiri tóku undir Fleiri nefndarmenn hafi tekið munnlega undir þessa formlegu beiðni hennar. Í svari ráðuneytisins hafi komið fram að trúnaður ríkti um hluta upplýsinganna og þau væri hægt að afhenda nefndinni til skoðunar með þeim fyrirvara. „Þar er um að ræða minnisblað frá heilbrigðisráðherra til ríkisstjórnar og sameiginlegt minnisblað þriggja ráðherra til ríkisstjórnarinnar. Svo er líka minnisblað frá skrifstofu löggjafarmála í forsætisráðuneytinu til forsætisráðherra þar sem lagt er mat á lögmæti fyrirhugaðra aðgerða á landamærum,“ segir Halldóra. Vill ekki láta múlbinda sig Halldóra segist ekki vilja láta múlbinda sig eftir móttöku gagna og telur að innihald þessarra minnisblaða eigi full erindi bæði við almenning og nefndarfólk til að meta stöðuna. Ráðuneytið gæti skyggt hluta sem eðlilega yrði að ríkja trúnaður um. Því hafi hún óskað eftir því eftir nefndarfund í morgun að ráðuneytið endurskoðaði þessa afstöðu sína. Nokkuð mikil sátt hefur ríkt um sóttvarnaaðgerðir undanfarið ár. Halldóra segir afstöðu hennar nú í þessu máli ekki ráðast af því að kosningar verði í haust. Hún hafi áhyggjur af því að verið sé að ganga of langt með aðgerðum og meðalhófs sé ekki gætt, eins og þegar skylda átti alla sem koma til landsins í sóttkví á sóttvarnahóteli. Reyna hefði átt vægari úrræði fyrst. „Það þarf að tryggja það til dæmis að efla eftirlitið. Að hafa handahófkennt eftirlit með fólki og hafa mjög sterk viðurlög. Það er að segja að skikka fólk á sóttkvíarhótel ef það brýtur sóttkví eða hækka sektir allverulega. Þetta er ekki búið að fullreyna, að athuga hvort það hafi bara hreinlega sömu niðurstöðu, ef ekki betri, heldur en að skikka alla á sóttkvíarhótel strax,“ segir Halldóra Mogensen.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Alþingi Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Innlent Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Innlent Helga lenti einnig í vandræðum Innlent Líklegt að það styttist í brotmörk Innlent Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Innlent Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Erlent Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Innlent Fleiri fréttir Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Björk varar við frumvarpi um sjókvíeldi Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Hraun mjakast yfir varnargarð Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Allt að gerast í Vík í Mýrdal um helgina Stór gossprunga gæti opnast fyrirvaralaust Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir 800 milljóna króna hreinsistöð byggð á Selfossi Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Vara við því að fara gangandi að gosinu Kastaði glerflösku í höfuð manns og gisti í fangaklefa „Það er enginn sem verndar son okkar“ Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Sjá meira