Ómar dró vagninn fyrir Magdeburg | Ýmir hafði betur í Íslendingaslag Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 26. september 2021 15:43 Ómar Ingi Magnússon heldur áfram að skora fyrir Magdeburg. Getty/Uwe Anspach Fimm leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag og það voru Íslendingar í eldlínunni í fjórum þeirra. Magdeburg er enn með fullt hús stiga eftir fimm leiki, en Ómar Ingi Magnússin var markahæsti maður liðsins í tveggja marka sigri gegn Leipzig, 30-28.
Magdeburg byrjaði leikinn gegn Leipzig af miklum krafti og náðu mest sex marka forskoti í fyrri hálfleik. Þegar gengið var til búningsherbergja var staðan 16-11, Magdeburg í vil. Leikmenn Leipzig mættu ákveðnari til leiks í seinni hálfleik og minnkuðu muninn jafnt og þétt. Þeir jöfnuðu metin í stöðunni 24-24 og náðu svo tveggja marka forskoti í kjölfarið á því. Mikil spenna var undir lokin, en Magdeburg skoraði seinustu þrjú mörk leiksins og fögnuðu því góðum tveggja marka sigri, 30-28. Ómar Ingi var markahæsti maður Magdeburg með sex mörk, ásamt því að leggja upp önnur fimm fyrir liðsfélaga sína. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði eitt mark fyrir Magdeburg sem er enn með fullt hús stiga eftir fimm leiki. Ýmir Örn Gíslason og félagar hans í Rhein-Neckar Löwen tóku á móti Janusi Daða Smárasyni og félögum hans í Göppingen í Íslendingaslag. Janus og félagar voru með fullt hús stiga eftir fyrstu þrjá leiki tímabilsins fyrir leikinn, á meðan að Ljónin voru aðeins með einn sigur í sínum þrem leikjum. Mikið jafnræði var með liðunum á upphafsmínútum leiksins, en um miðbik fyrri hálfleiks tóku Ýmir og félagar yfirhöndina. Þegar flautað var til hálfleiks var staðan 19-16, Löwen í vil. Ýmir og félagar voru áfram með yfirhöndina í seinni hálfleik og unnu að lokum nokkuð öruggan fimm marka sigur, 37-32. Íslendingaliðið MT Melsungen vann naumlan sigur gegn TUS N-Lübbecke í fyrsta leik liðsins eftir að Guðmundur Guðmundsson hætti þjálfun liðsins. Arnar Freyr Arnarsson, Elvar Örn Jónsson og Alexander Petersson leika allir með liðinu sem að unnu sinn fyrsta sigur á tímabilinu, 23-22, eftir jafna og spennandi viðureign. Þetta var fyrsti sigur Melsungen á tímabilinu, en áður hafði liðið tapað tveim og gert eitt jafntefli.
Handbolti Þýski handboltinn Mest lesið Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Handbolti Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna Handbolti Hávær kynlífshljóð trufluðu Doncic Körfubolti „Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“ Handbolti Gvardiol skaut City á toppinn Enski boltinn Sjáðu frábært spil skila tveimur mörkum í Garðabæ Íslenski boltinn Andri Lucas fékk kanilstykki í verðlaun Fótbolti Dagskráin í dag: Stór dagur fyrir Val Sport Sá besti ekki búinn að segja sitt síðasta orð Körfubolti Ten Hag segir að eigendur United séu skynsamir og muni ekki reka hann Enski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Eistland - Ísland | HM-sætið endanlega tryggt í Eistlandi Frost í sókn en sveinar Dags mörðu sigur Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna „Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“ Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Einar Bragi skrifaði undir tveggja ára samning í Svíþjóð Slóvakía skellti Póllandi óvænt í umspili HM „Við vorum skugginn af sjálfum okkur“ Uppgjörið og viðtöl: Valur - Haukar 28-27 | Íslandsmeistarnir sluppu með skrekkinn Gagnrýnir lítinn stuðning við afreksíþróttafólk: „Upphæðin ein og sér er grín“ Myndaveisla frá risasigrinum á Eistum Færeyingar hársbreidd frá fyrsta heimsmeistaramótinu Uppgjörið: Ísland - Eistland 50-25 | Stigu bensínið í botn frá fyrstu mínútu „Ánægður að við sýndum þá hlið að við getum verið góðir í sextíu mínútur“ Þakklátur eftir fyrsta landsleikinn: „Tek bara einn dag fyrir í einu“ „Ekkert sjálfgefið að valta yfir lið“ Skyldusigur í kvöld: „Þurfum að koma okkur inn á HM“ Einar Bragi verður einn af strákunum okkar í kvöld „Það er stórmót í húfi“ Stjörnumarkvörðurinn í vandræðum með augað á sér Ísland eignast nýtt EHF dómarapar Bleyjur og klósettpappír áhorfenda kostuðu ÍBV Enn hægt að fá miða á HM-leikinn í kvöld Farangurinn flæktist fyrir Gísla: „Kom beint af flugvellinum“ Undanúrslit í Meistaradeildinni klár „Bara að fara heim og hitta mömmu“ Fjórir frá vegna meiðsla: „Dagurinn ekkert frábær á skrifstofunni“ „Höfum spilað vel án Arons áður“ „Veit ekki hvað Elmar þarf að gera til að komast í landsliðið“ Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Sjá meira