Hálf milljón punkta á forsíðunni, einn fyrir hvert tapað líf Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 21. febrúar 2021 17:45 Á forsíðu New York Times í dag eru 500 þúsund punktar, einn fyrir hvert líf sem tapast hefur í faraldrinum í Bandaríkjunum. New York Times Hátt í hálf milljón hefur látið lífið í Bandaríkjunum af völdum covid-19 frá því við upphaf faraldursins þar í landi. Stórblaðið New York Times birti af þessu tilefni hálfa milljón svartra punkta á forsíðu sinni, sem tákn fyrir hvern þann sem látið hefur lífið af völdum sjúkdómsins í landinu.
Rétt um ár er síðan fyrsta andlátið af völdum covid-19 var staðfest í Bandaríkjunum. Síðan þá hefur þeim farið fjölgandi sem tapað hafa baráttunni við sjúkdóminn en hvergi í heiminum hafa fleiri dauðsföll verið staðfest og í Bandaríkjunum. Þannig nálgast tala látinna nú hálfa milljón, sem jafngildir fleiri bandarískum mannslífum en týndust í fyrri og seinni heimsstyrjöldinni og í Víetnam-stríðinu til samans að því er fram kemur í umfjöllun New York Times. Punktunum sem prýða forsíðuna er raðað upp í súlu niður eftir síðunni endilangri þar sem punktunum er deilt niður í tímaröð. Þannig er mest bil á milli punkta efst í súlunni sem sýnir fyrstu dauðsföllin af völdum faraldursins í Bandaríkjunum. Þéttastir standa punktarnir neðarlega í súlunni, eða á sautján daga tímabili frá 2. til 19. janúar þegar skráð dauðsföll voru hvað flest. Á hádegi í gær höfðu verið staðfest 497.380 dauðsföll af völdum covid-19 í Bandaríkjunum. Ætla má að þeim hafi farið fjölgandi síðan þá. Þótt þeim hafi farið fækkandi sem greinast með veiruna á degi hverjum og nú horfi á margan hátt til betri vegar nú þegar bóluefni er komið í umferð, eru þó vaxandi áhyggjur uppi vegna nýrra afbrigða veirunnar sem eru í töluverðum hlutfallslegum vexti. Forsíða blaðsins var einnig með heldur öðru sniði en vanalega þann 24. maí í fyrra. Þá birti blaðið lista með nöfnum hluta þeirra Bandaríkjamanna sem týnt höfðu lífinu af völdum Covid-19 sjúkdómsins.
Fjölmiðlar Bandaríkin Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss Innlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Skítkastið var ógeðslegt“ Innlent Stillir viðtækið á alheimsdögunina Innlent „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Innlent Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Erlent Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Erlent „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Innlent Fleiri fréttir Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Geimskoti Starliner var frestað í nótt Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Hamas samþykkir vopnahléstillögu Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Xi og Macron ræða kínverska rafbíla og franskt koníak Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Sjá meira