Svipti sálfræðing starfsleyfi sem gaf út marklausar ADHD-greiningar Kjartan Kjartansson skrifar 15. mars 2023 21:09 Sálfræðingurinn kærði ákvörðun landlæknis um að svipta hann starfsleyfi til heilbrigðisráðuneytisins en hlaut ekki náð fyrir augum þess. Vísir/Vilhelm Heilbrigðisráðuneytið staðfesti ákvörðun landlæknis um að svipta sálfræðing sem skrifaði upp á ADHD-greiningar sem hvergi voru teknar gildar og gaf sjúklingum lyf án lyfseðils starfsleyfi sínu. Sálfræðingurinn braut lög og er talinn óhæfur til að gegna starfi sínu.
Fjöldi fólks kvartaði undan vinnubrögðum Jóns Sigurðar Karlssonar, sálfræðings á áttræðisaldri, til embættis landlæknis. Hann hefði meðal annars skrifað upp á ADHD-greiningar sem fengjust hvergi viðurkenndar og jafnvel látið sjúklinga fá lyf án lyfseðils. Fréttastofa sagði frá því í nóvember að Jón Sigurður sætti lögreglurannsókn og að húsleit hefði verið gerð á heimili hans vegna hennar. Ófær vegna skorts á faglegri hæfni Jón Sigurður var í ákvörðun landlæknis um að svipta hann starfsleyfi í maí í fyrra sagður hafa sýnt af sér alvarlega vanþekkingu á heimildum sínum og skyldum sem heilbrigðisstarfsmaður og skort á faglegum starfsháttum sem ógnaði öryggi sjúklinga. Var vísað til þess að hann hefði að minnsta kosti einu sinni afhent sjúklingi eftirritunarskylt lyf, gert ADHD-greiningar sem fengjust ekki viðurkenndar, brotið þagnarskyldu við sjúkling, sýnt af sér vanrækslu við færslu sjúkraskrár og rekið starfsstofu án heimildar. Jón Sigurður kærði ákvörðunina í ágúst. Kæran byggði meðal annars á því að landlæknisembættið hefði verið búið að ákveða fyrirfram að hann hefði brotið af sér. Ákvörðun landlæknis væri honum afar íþyngjandi þar sem hann hefði ekki aðeins glatað atvinnu- og framfærslugrundvelli sínum heldur verið sviptur mannorði sínu og starfsheiðri. Heilbrigðisráðuneytið taldi að ákvörðun landlæknis að svipta Jón Sigurð starfsleyfinu án áminningar hafi hvorki falið í sér brot gegn meðalhófsreglu stjórnsýslulaga né hafi rökstuðningi þess verið ábótavant. Því staðfesti ráðuneytið ákvörðunina um að svipta sálfræðinginn starfsleyfinu enda hafi hann verið ófær um að gegna starfi sínu með forsvaranlegum hætti vegna skorts á faglegri hæfni. Auk þess hefði hann sýnt af sér alvarlegt hirðuleysi í störfum sínum og atferli sem fór í bága við lög. Ríkisútvarpið sagði fyrst frá niðurstöðu ráðuneytisins. Ræddi um meðferð konu við vinkonu hennar Embætti landlæknis hóf rannsókn á starfsháttum Jóns Sigurðar eftir að heilsugæslulæknir benti því á að sálfræðingurinn hefði afhent sjúklingi pilluspjald með ADHD-lyfi. Í kjölfarið bárust embættinu fleiri kvartanir og ábendingar frá sjúklingum. Á meðal þess sem embættið fékk ábendingu um var að Jón Sigurður væri í samvinnu við portúgalskan geðlækni og að hann setti upp myndviðtal við hann fyrir sjúklinga sína. Portúgalski læknirinn skrifaði upp á lyfseðla sem sjúklingunum hafi verið sagt að þeir gætu notað, að því er rakið er í úrskurði heilbrigðisráðuneytisins. Þá var Jón Sigurður sakaður um að villa á sér heimildir með því að nota lén fyrirtækis á greinargerðir sínar vegna ADHD-greiningar. Þá kom í ljós að hann starfaði án starfsleyfis þar sem hann honum var óheimilt að reka starfsstofu eftir að hann náði 75 ára aldri án sérstaks leyfis frá embætti landlæknis. Í einni kvörtun kom fram að Jón Sigurður hefði ítrekað brotið trúnað við sjúkling með því að ræða við konu um vinkonu hennar sem hann hafði einnig til meðferðar vegna ADHD. Hann hélt því áfram jafnvel eftir að þær báðu hann um að hætta því. Hann hafði einnig milligöngu um að koma annarri konunni í samband við geðlækni í Danmörku sem sendi henni fyrsta skammtinn af lyfjum með flutningsþjónustu. Í framhaldinu þyrfti konan líklega að fara til Danmerkur á þriggja mánaða fresti að sækja lyfin sín.
Geðheilbrigði Heilbrigðismál Lögreglumál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Innlent Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Innlent Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Erlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Fleiri fréttir Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Líklega fundað fram eftir kvöldi Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Sjá meira