Lyfjabúð í stað hamborgarastaðar

Lyfjabúð verður innréttuð þar sem áður var Orkan við Miklubraut.
Lyfjabúð verður innréttuð þar sem áður var Orkan við Miklubraut. mbl.is/sisi

Skipu­lags­full­trúi Reykja­vík­ur hef­ur heim­ilað starf­semi lyfja­búðar í gömlu bens­ín­stöðinni á Miklu­braut 101. Síðast var rek­inn í hús­inu veit­ingastaður­inn Dirty Burgers & Ribs, sem sér­hæfði sig í ham­borg­ur­um og BBQ-grísarifj­um, eins og nafnið gef­ur til kynna.

Á fundi skipu­lags­full­trúa 31. ág­úst var lögð fram um­sagn­ar­beiðni Lyfja­stofn­un­ar vegna um­sókn­ar um lyf­sölu­leyfi fyr­ir nýja lyfja­búð að Miklu­braut 101, gegnt Kringl­unni. Fyr­ir­spurn­in var send verk­efna­stjóra. Í um­sögn hans kem­ur fram að í gildi er Aðal­skipu­lag Reykja­vík­ur 2040, samþykkt í borg­ar­stjórn Reykja­vík­ur 19. októ­ber 2021. 

Styrk­ir borg­ar­hlut­ann

Fram kem­ur í um­sögn verk­efna­stjór­ans að í borg­ar­hluta 5, Háa­leiti – Bú­stöðum, búi 16.345 manns og nær borg­ar­hlut­inn yfir nokkuð stórt svæði. Fimm lyfja­búðir eru í borg­ar­hlut­an­um. Þær eru við Soga­veg 108, Háa­leit­is­braut 68, Efsta­leiti 27b, Kringl­una 4-12 og Lág­múla 5.

„Ljóst er því að starf­semi lyfja­búðar á þess­um stað myndi styrkja stöðu norður­hluta borg­ar­hlut­ans en þar að auki er mik­il um­ferð um Miklu­braut og því má telja að all­ir sem eiga leið hjá geti notið góðs af starf­sem­inni. Sam­kvæmt skipu­lagi svæðis­ins er heim­iluð starf­semi lyfja­búðar,“ seg­ir í um­sögn verk­efna­stjór­ans, sem samþykkt var á af­greiðslufundi skipu­lags­full­trú­ans 14. sept­em­ber.

Nán­ar má lesa um málið í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert