Innlent

Á­tökin komu Fjólu í opna skjöldu

Eiður Þór Árnason skrifar
Fjóla Hrund Björnsdóttir og Þorsteinn Sæmundsson tókust á um oddvitasætið í Reykjavík suður.
Fjóla Hrund Björnsdóttir og Þorsteinn Sæmundsson tókust á um oddvitasætið í Reykjavík suður. Samsett

„Þetta kom mér svona bæði og á óvart en ég er bara mjög spennt fyrir framhaldinu og að feta mig áfram í þessu nýja hlutverki,“ segir Fjóla Hrund Björnsdóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Miðflokksins.

Í kvöld varð ljóst að Fjóla hafi haft betur gegn Þorsteini Sæmundssyni í ráðgefandi oddvitakjöri Miðflokksins í Reykjavík suður með 58% atkvæða gegn 42%. Skákaði hún þar með sitjandi þingmanni og oddvita listans sem sóttist hart eftir því að halda oddvitasætinu.

Það var skiljanlega gott í henni hljóðið þegar fréttastofa náði af henni tali um klukkustund eftir að tilkynnt var um niðurstöðurnar. Þorsteinn hefur ekki gefið kost á viðtali í kvöld en hann er nú eini þingmaður Miðflokksins úr kjördæminu.

Nýlegar kannanir benda til að flokkurinn eigi á hættu að missa sætið í komandi kosningum. Fjóla segist þó vera nokkuð bjartsýn á þingsæti og stefnan sé að gera sitt besta til að berjast fyrir stól inn á hinu háa Alþingi.

Ef marka má nýjustu kannanir gæti þingmönnum Miðflokksins fækkað úr níu í þrjá eftir næstu kosningar. Vísir/vilhelm

Ólga innan flokksins

Leið Fjólu að oddvitasætinu var ekki alltaf greið en stjórn Miðflokksins í Reykjavík boðaði nýverið til oddvitakjörs eftir að tillaga uppstillinganefndar að framboðslista var óvænt felld á félagsfundi.

Nefndin lagði til að Fjóla myndi taka við oddvitasætinu af Þorsteini. Samkvæmt heimildum Vísis brást þingmaðurinn illa við þessari tillögu og var hún að endingu felld með 30 atkvæðum gegn fjórtán. Fjóla segir að átökin innan flokksins hafi komið henni í opna skjöldu.

„Ég hélt að það væri sátt um þetta en svo kom annað í ljós þegar fundurinn var haldinn. Svo fer bara þessi atburðarás í gang að það var boðað til oddvitaprófkjörs og þetta gerðist allt rosalega hratt.“

„Það er rosalega óvanalegt að listi sé felldur þannig að þetta svolítið á óvart,“ bætir Fjóla við. Slíkar tillögur séu alla jafna ekki lagðar fram nema með stuðningi flokksforystunnar.

Viðbrögð Þorsteins komu flatt upp á forystuna

Eftir því sem Vísir kemst næst stóð stjórn kjördæmafélagsins heilshugar að baki ákvörðun uppstillinganefndar. Meðal annars hafi verið horft til þess að Þorsteinn væri kominn á eftirlaunaaldur og eigi rétt á biðlaunum frá Alþingi og/eða starf hjá umhverfisráðuneyti til sjötugs þar sem hann starfaði áður en hann fór á þing, kæri Þorsteinn sig um það.

Viðbrögð Þorsteins komu flatt upp á forystu flokksins og settu áform um að jafna kynjaskiptingu í uppnám; ráðgert var að þrjár konur skipi oddvitasæti flokksins fyrir komandi kosningar. Greinilegt er að mikill áhugi er fyrir toppbáráttunni en 90% kjörsókn var í oddvitakjörinu sem telst heldur mikið í slíku flokkskjöri.

Starfað í stjórnmálum í átta ár

Hin 33 ára Fjóla er alls ekki blaut á bak við eyrun þegar kemur að pólitíkinni og hefur starfað í stjórnmálum allt frá árinu 2013, þar af í tæp þrjú ár innan Miðflokksins.

Áður en hún gekk til liðs við flokkinn vann Fjóla fyrir Framsóknarflokkinn og var varaþingmaður hans í um þrjú ár eftir langt starf í ungliðahreyfingunni. Fjóla bindur nú vonir við að geta bætt titlinum þingmaður við ferilskránna.

„Þetta leggst rosalega vel í mig að það eru spennandi tímar fram undan.“


Tengdar fréttir

Mið­flokkurinn boðar odd­vita­kjör í Reykja­vík

Stjórn Miðflokksins í Reykjavík hefur tekið ákvörðun um að boða til oddvitakjörs í Reykjavíkurkjördæmi suður eftir að tillaga uppstillinganefndar að framboðslista flokksins í kjördæminu var felld á félagsfundi síðastliðinn fimmtudag.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×