Tíu ára fangelsi fyrir að sprauta ókunnuga konu með sæði Samúel Karl Ólason skrifar 13. september 2021 23:30 Thomas Stemen elti tvær konur áður en hann stak Katie Peters. Getty Thomas Stemen var í síðustu viku dæmdur til tíu ára fangelsisvistar fyrir að ráðast á konu í matvöruverslun í fyrra og sprauta sæði í hana. Stemen stakk Katie Peters í rassinn með sprautu sem innihélt sæði úr honum og sprautaði í hana.
Hún sló til hans og spurði hvort hann hefði brennt hana með sígarettu. Eftir það keyrði hún á brott en byrjaði fljótt að finna mikið til í sárinu. Það var ekki fyrr en hún var komin heim að hún fann stungusár á sér og vökva á buxunum sem hún leitaði til lögreglunnar í Churchton í Maryland, samkvæmt frétt Washington post. Upptökur úr öryggismyndavélum í versluninni sýndu svo hvernig Stemen réðst á hana en sýndu einnig að hann hafði áður elt og reynt að stinga tvær aðrar konur, þar af eina sautján ára gamla, en án árangurs. Hér má sjá myndband úr öryggismyndavél þegar Stemen réðst á Peters. Lögregluþjónar notuðu þessa upptöku til að finna Stemen. Í bíl hans fannst sprauta með óþekktum „skýjuðum vökva“. Önnur sprauta með vökva fannst upp á skáp inn á baðherbergi og níu tómar fundust víðsvegar á heimilinu. Sprauturnar voru sendar í rannsókn og leiddi hún í ljós að erfðaefni Stemen voru í vökvanum. Peters sagði í viðtali við héraðsmiðilinn Fox 5 eftir árásina að hún hafi ekki haft hugmynd um hvað hefði verið í sprautunni. Það hefði þess vegna getað verið rottueitur eða Stemen hefði reynt að smita hana af HIV. Hún leitaði þó fljótt til læknis og fékk lyfjablöndu sem átti að hjálpa henni að koma í veg fyrir sýkingu. Hér má sjá viðtal við Katie Peters í kjölfar árásarinnar í fyrra. Eins og áður segir var Stemen dæmdur til tíu ára fangelsisvistar. Honum var einnig gert að fara í meðferð og gangast geðrannsókn að fangelsisvist hans lokinni, samkvæmt frétt CBS í Baltimore. Anne Colt Leitless, ríkissaksóknari Maryland, segir árás Stemen hafa verið mjög ógnvænlega. Hann hafi markvisst ætlað sér að skaða grunlausar konur. Í yfirlýsingu sem hún birti segir hún að Stemen verði fjarlægður úr samfélaginu í langan tíma og þakkar þeim sem báru kennsl á hann í fyrra.
Bandaríkin Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Innlent Svona var Pallborðið með Baldri, Höllu Hrund og Jóni Innlent Átta forsetaefni klár með listana Innlent Straumhvörf í veðrinu Innlent Eiga von á öðru eldgosi Innlent Hættir með Matargjafir á Akureyri með sorg í hjarta Innlent Ísraelar gera árás á Íran Erlent Helga ekki tilbúin að henda inn handklæðinu Innlent Baldur segir lygasögur ekki hafa nein áhrif á þá Felix Innlent Myndband sýnir þjófana í Hamraborg hafa lítið fyrir hlutunum Innlent Fleiri fréttir Kveikti í sér fyrir utan dómshúsið þar sem réttað er yfir Trump Fyrstu loftárásir Ísraela í Íran frá 1979 Fengu aðstoð Demókrata við að koma hernaðaraðstoð úr nefnd Hefur mátt sitja undir svívirðingum um sjálfan sig Segjast hafa skotið niður dýrmæta sprengjuflugvél Handtekinn í tengslum við áform um að ráða Selenskí af dögum Ísraelar gera árás á Íran Kennedy-fjölskyldan lýsir yfir stuðningi við Biden Bandaríkin stöðvuðu fulla aðild Palestínumanna að SÞ Hrunið í gömlu kauphöllinni heldur áfram Afsalta sjó til drykkjar í þurrki í Barcelona Eiginmaður Sturgeon ákærður fyrir fjárdrátt Mega koma til að snæða í Grindavík en aðeins í rútu Johnson í erfiðri stöðu Hafa vitneskju um mögulegan dvalarstað Íslendings sem flýr réttvísina Útsendarar Rússa sakaðir um skipulagningu árása í Þýskalandi Mikill mannskaði eftir sögulegt úrhelli í eyðimörkinni Kjarnorkuknúin drónaþyrla mun leita að lífrænum sameindum á Títan Sendi ösku í allt að þriggja kílómetra hæð Ákærður fyrir að nota slagorð SS-sveitanna á fjöldafundi Stjórnvöld í Katar að endurskoða sáttasemjarahlutverk sitt Réði lífvörð eftir árásina á bandamann Navalnís Borgarstjóri sakaður um brot gegn dóttur sinni Hæsta vindmylla heims á landi reist í Danmörku Þingforsetinn segist ekki ætla að fara fet Ísraelar sagðir búnir að ákveða að svara fyrir sig Boðflennusæfíll hrellir Kanadamenn Mannskæð loftárás Rússa í Norður-Úkraínu Toppurinn á spírunni fundinn: „Margir í sjokki og enn að ná sér“ Kóralrif fölna á heimsvísu í fjórða skiptið á þremur áratugum Sjá meira