Flugfélögin sem boða komu sína í sumar Kristín Ólafsdóttir skrifar 30. apríl 2021 20:31 Þessi flugfélög stefna á áætlunarflug til landsins í sumar og von á fleirum. Ragnar Von er á allt að tuttugu flugfélögum með áætlunarflug um Keflavíkurflugvöll í sumar. Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir að fyrsta júlí ætti að vera orðið nokkuð auðvelt að taka á móti ferðamönnum á Íslandi.
Óvenjumargar flugvélar eru væntanlegar til Íslands um helgina, sex á laugardag og níu á sunnudag. Þar á meðal er flugvél frá bandaríska flugfélaginu Delta, sem fljúga mun Covid-bólusettum bandarískum ferðamönnum til landsins. Delta flaug síðast til Íslands haustið 2019. Línur eru farnar að skýrast í flugmálum næstu mánuði. Reiknað er með að tíu til tuttugu flugfélög bjóði upp á áætlunarflug til Íslands í sumar að sögn upplýsingafulltrúa Isavia. Til samanburðar flugu 29 flugfélög hingað til lands þegar mest lét í júlí 2018, fyrir fall Wow air. En hvaða flugfélög eru á leiðinni? Enn er vissulega óvissa á mörkuðum en Icelandair, Lufthansa, Wizz Air og Air Baltic hafa verið með flug síðustu vikur og mánuði - og verða áfram. Þá hefja Delta og Vueling flug um helgina og Play og United Airlines hafa boðað flug í sumar. Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar.Vísir/Egill Bjarnheiður Hallsdóttir formaður Samtaka ferðaþjónustunnar fagnar því að flugáætlanir séu farnar að teiknast upp. Talsvert jákvæðari teikn séu nú á lofti en voru fyrir nokkrum vikum. „Og það má rekja til ákvörðunar ríkisstjórnarinnar að hleypa hingað bólusettum ferðalöngum utan Schengen því nú erum við að sjá verulegan kipp í eftirspurn frá Bandaríkjunum sem við vonum að verði að veruleika á næstu vikum og mánuðum.“ Hún vonar að framundan sé raunverulegt ferðamannasumar - en það velti allt á gangi bólusetninga. „Ef allt fer og gengur eins og við áætlum þá ætti þann 1. júlí að vera nokkuð auðvelt að taka á móti ferðamönnum á Íslandi.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Fréttir af flugi Ferðamennska á Íslandi Keflavíkurflugvöllur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Há laun og dýr bjór séu vandamál ÁTVR Viðskipti innlent „Svo hefst kapphlaupið í það hver er fyrstur að ná sturtunni!“ Atvinnulíf Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Viðskipti innlent Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Viðskipti innlent Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Viðskipti Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Viðskipti innlent Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Fleiri fréttir Há laun og dýr bjór séu vandamál ÁTVR Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Sjá meira