Utanríkisráðherra í fordæmalausri heimsókn í landtökubyggðum Kjartan Kjartansson skrifar 19. nóvember 2020 14:35 Vel fór á með Pompeo (t.v.) og Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, í dag. Náin bönd hafa verið á milli stjórnar Trump og Netanjahú. Tilkynning Trump um að hann viðurkenndi yfirráð Ísraela yfir Gólanhæðum í fyrra var af mörgum talin innlegg í kosningabaráttu ísraelska forsætisráðherrans. AP/Maya Alleruzzo
Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, varð í dag fyrsti hátt setti bandaríski embættismaðurinn til þess að heimsækja landtökubyggðir gyðinga á Vesturbakkanum. Meirihluti alþjóðasamfélagsins telur landtökubyggðirnar stríða gegn alþjóðalögum. Heimsóknina til Ísraels hefur Pompeo meðal annars notað til þess að kynna að bandaríska utanríkisráðuneytið ætli að lýsa hreyfingu sem berst fyrir sniðgöngu og refsiaðgerðum gegn Ísrael vegna meðferðar ríkisins á Palestínumönnum sem „andgyðinglega“. Samtök sem taka þátt í slíkri baráttu fá ekki lengur fjárstuðning frá Bandaríkjastjórn. Pompeo heimsótti í dag Psagot-landtökubyggð gyðinga á Vesturbakkanum sem er hersetinn af Ísraelum. Hann ætlar einnig að heimsækja landtökumenn í Gólanhæðum, sýrlensku landsvæði sem Ísraelar hernámu í sex daga stríðinu árið 1967 og innlimuðu árið 1981. Palestínumenn mótmæltu heimsókn Pompeo í al-Bireh í gær, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Grundvöllurinn að fordæmalausri heimsókn Pompeo til landtökubyggðanna var lagður í fyrra þegar ráðherrann sneri við áratugalangri stefnu Bandaríkjastjórnar og lýsti því yfir að byggðirnar stönguðust „ekki endilega“ á við alþjóðalög. Palestínumenn fordæmdu stefnubreytinguna en landtökubyggðirnar eru á svæðum sem þeir vilja að verði hluti af sjálfstæðu ríki þeirra. Trump forseti viðurkenndi yfirráð Ísraela yfir Gólanhæðum í fyrra þrátt fyrir að Sýrland geri enn tilkall til þeirra. Önnur ríki hafa ekki fetað í fótspor Bandaríkjastjórnar. Sýrlensk stjórnvöld hafa sagt viðurkenningu Trump „árás“ á fullveldi sitt. Fleiri en 600.000 gyðingar búa nú í um 140 landtökubyggðum sem hafa verið reistar frá því að ísraelski herinn hernam Vesturbakkann og Austur-Jerúsalem árið 1967.
Bandaríkin Ísrael Palestína Sýrland Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stillir viðtækið á alheimsdögunina Innlent „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Innlent Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Erlent „Skítkastið var ógeðslegt“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Innlent „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Innlent Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Innlent Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss Innlent Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Erlent Fleiri fréttir Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Geimskoti Starliner var frestað í nótt Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Hamas samþykkir vopnahléstillögu Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Xi og Macron ræða kínverska rafbíla og franskt koníak Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Sjá meira