Alexandra í liði umferðarinnar og skoraði eitt fallegasta markið (myndskeið)

Alexandra Jóhannsdóttir og Betsy Hassett í vináttulandsleik milli Íslands og …
Alexandra Jóhannsdóttir og Betsy Hassett í vináttulandsleik milli Íslands og Nýja-Sjálands í síðasta mánuði. Ljósmynd/KSÍ

Alexandra Jóhannsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, er í liði níundu umferðar efri hluta ítölsku A-deildarinnar eftir frábæra frammistöðu sína með Fiorentina um helgina.

Alexandra skoraði þá tvö mörk í 4:2-sigri liðsins á Söru Björk Gunnarsdóttur og stöllum hennar í Juventus.

Fyrra mark Alexöndru, fyrsta mark leiksins, var þá á meðal þriggja fallegustu marka umferðarinnar að mati deildarinnar.

Samkvæmt netkosningu var markið það næstbesta í umferðinni og ekki að ósekju þar sem miðjumaðurinn öflugi skoraði með þrumufleyg fyrir utan vítateig.

Markið má sjá hér:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert