Segir ekkert vit í að halda EM áfram Sindri Sverrisson skrifar 20. janúar 2022 13:01 Aron Pálmarsson er í hópi tuga leikmanna sem smitast hafa af kórónuveirunni á EM. Getty Nú þegar yfir hundrað leikmenn sem spila áttu á Evrópumótinu í handbolta hafa frá áramótum smitast af kórónuveirunni telur sérfræðingur TV 2 í Danmörku að ekkert vit sé í að halda mótinu áfram.
Íslendingar hafa ekki farið varhluta af smitunum og á síðasta sólarhring hafa fimm leikmenn í íslenska hópnum greinst með veiruna. Staðan hefur verið enn verri hjá lærisveinum Alfreðs Gíslasonar í þýska landsliðinu þar sem tólf leikmenn hafa smitast en Þýskaland á samt að mæta Spáni í kvöld. Þá er íslenski dómarinn Anton Gylfi Pálsson sömuleiðis í hópi þeirra sem hafa smitast á EM. „Frá áramótum hafa 101 – já 101! – EM-leikmenn greinst með kórónuveiruna. Frá því að EM hófst nemur fjöldinn 58 og það er auðvelt fyrir mig að fullyrða að í þessu Evrópumóti, í fallegum borgum á borð við Bratislava og Búdapest, sé ekkert vit lengur,“ skrifar Bent Nyegaard, sérfræðingur TV 2 og Íslandsvinur. Meistarar í skugga vangaveltna um hvort mótið hefði átt að fara fram Nyegaard er greinilega ekki hrifinn af því að Evrópumótið sé að svo stóru leyti farið að snúast um það hve vel liðin sleppi við smit. „Burtséð frá því hverjir enda efstir á verðlaunapallinum síðasta sunnudaginn í janúar þá mun sá mannskapur – þeir leikmenn – þurfa að eiga við vangaveltur um það hvort þetta hefði allt saman átt að fara fram,“ skrifar Nyegaard. Hann bendir á að heimsmeistaramótið í Egyptalandi fyrir ári síðan, og Ólympíuleikarnir í Tókýó, hafi getað farið fram án þess að smit á mótunum settu allt úr skorðum. Þá hafi menn fylgt strangari sóttvörnum en vegna minni hættu af smiti í dag virðist allir hafa slakað á með þeim afleiðingum sem nú sjáist. Nyegaard bendir á að áhorfendur hafi verið bannaðir á HM í Egyptalandi og á Ólympíuleikunum en á EM hafi verið allt önnur stemning og yfir 20.000 manns á leikjum í Búdapest, flestir grímulausir. „Þetta er algjör farsi“ Hann segir að það kæmi ekki á óvart þó að smittilfellunum á EM fjölgi í hundrað áður en yfir lýkur. „Undirbúningur skiptir öllu. Það er það fyrsta sem þjálfarar og leikmenn læra. Vandamálið núna er að vita gagnvart hverjum þeir eiga að undirbúa sig, og nú þurfa Mikkel Hansen og hans félagar aftur að spila við lið þar sem ekki er vitað hvort að náð hefur verið utan um smitið eða ekki. Þetta er algjör farsi,“ skrifar Nyegaard en bætir við að hann viti fullvel að of miklir peningar og pólitík séu í húfi til að mótið verði ekki klárað.
EM karla í handbolta 2022 Mest lesið Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Handbolti Stendur með Salah og skilur pirring hans Enski boltinn „Versta ákvörðun í sögu Meistaradeildarinnar“ Fótbolti Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Enski boltinn Uppgjör: Víkingur - KA 4-2 | Ekkert fær meistarana stöðvað Íslenski boltinn Uppgjör og viðtöl: ÍA-FH 1-2 | FH-ingar sóttu sigur á Skagann Íslenski boltinn Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Íslenski boltinn Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Enski boltinn Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Handbolti Sjáðu ótrúlegan vítadóm í Keflavík og fernu Söndru Maríu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: FH - ÍBV | FH-ingar komast í úrslit með sigri Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Sigrar hjá Íslendingaliðunum Óðinn Þór bikarmeistari í Sviss Fimm mörk Hauks þegar Kielce komst í úrslit Arnór stökk til: „Hugsaði að við hefðum engu að tapa“ „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Uppgjörið: Haukar 28-25 Fram | Aftur unnu Haukakonur eftir framlengingu Þórey Anna mögnuð og Valur sigri frá úrslitum „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Teitur hafði betur í Íslendingaslagnum Sveinn í sigti Kolstad FH-ingar skrefi nær úrslitaeinvíginu Bjarki Már atkvæðamikill í dramatískum sigri Bjarni í Selvindi semur við Val Norðmenn töpuðu milljónum á því að halda HM í handbolta „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Uppgjörið: Afturelding 28-25 Valur | Mosfellingar leiða einvígið eftir sveiflukenndan leik Haukur hafði betur í Meistaradeildarslagnum við Magdeburg „Það er ekkert plan B“ Ungir strákar þarna úti sem gætu spilað á HM á Íslandi „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Fram - Haukar 23-27 | Gestirnir sterkari undir lokin Íslandsmeistararnir byrja undanúrslitaeinvígið á sigri Teitur Örn öflugur og Flensburg í góðri stöðu Árs bann fyrir árás á eftirlitsmann og þjálfarinn fékk líka bann Carlos tekur við Selfossi: „Hann er algjör handboltaheili“ Aue ævintýri Óla Stef tekur enda eftir tímabilið „Mun stærri sigur en ég bjóst við“ Sjá meira
Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Íslenski boltinn
Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Íslenski boltinn