Bíræfnir þjófar stálu jólunum Samúel Karl Ólason skrifar 29. nóvember 2020 10:55 Þjófarnir stálu um 300 jólatrjám. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty Bíræfnir þjófar tóku sig nýverið til og stálu um 300 jólatrjám frá fjölskyldufyrirtæki í London Bretlandi. Það var gert kvöldið áður en bræðurnir sem eiga fyrirtækið ætluðu að opna það aftur í fyrsta sinn í marga mánuði. Þeir segja um mikið áfall að ræða.
Faraldur nýju kórónuveirunnar og sóttvarnaaðgerðir hafi þegar komið verulega niður á rekstrinum. Í samtali við Sky News segir Josh Lyle að þjófarnir hafi látið til skara skríða á þriðjudaginn. Rétt eftir að bræðurnir höfðu fengið leyfi til að opna fyrirtækið á nýjan leik og selja fólki jólatré. „Þetta er ógeðfellt. Starf okkar er að breiða út jólagleði til allra og selja tré okkar um víðan völl,“ sagði Lyle. Hann biðlaði til allra sem gætu veitt upplýsingar um þjófnaðinn að stíga fram. Sky segir að nágrannar hafi hringt á lögregluna þegar þrír þjófar létu greipar sópa á plani fyrirtækisins. Þjófarnir eru sagðir hafa farið nokkrar ferðir með jólatré á sendiferðabíl sem þeir voru á. Fyrirtæki sem selja raunveruleg jólatré fengu nýverið undanþágu gegn sóttvarnareglum og voru tímabundið skilgreind sem nauðsynleg þjónusta. Josh og bróðir hans Sam stofnuðu fyrirtækið árið 1995, þegar þeir voru eingöngu fimmtán og þrettán ára gamlir. Þá fengu þeir þá hugmynd um að höggva tré á jarðeign fjölskyldunnar í Skotlandi og selja í London. Þeir komust áður í fréttirnar árið 2016 þegar þeir seldu Harry Prins og Meghan Markle jólatré í upphafi sambands þeirra árið 2016.
Bretland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Jól England Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fengu ekkert merki frá þyrlunni sem hrapaði með forsetann um borð Erlent OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Erlent Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents Innlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Réttað yfir Hinrik XIII og öðrum leiðtogum valdaránstilraunar Erlent Netanjahú hafnar handtökuskipuninni Erlent „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Innlent Fyrsti stríðsþristurinn lentur Innlent 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Innlent Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Innlent Fleiri fréttir Réttað yfir meintum valdaránsmönnum Réttað yfir Hinrik XIII og öðrum leiðtogum valdaránstilraunar OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Fengu ekkert merki frá þyrlunni sem hrapaði með forsetann um borð Netanjahú hafnar handtökuskipuninni Spánverjar kalla sendiherrann heim í kjölfar ummæla Milei Sigur fyrir Assange sem fær að áfrýja framsali Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Komst loks út í geim sextíu árum síðar Íransforseti fórst í þyrluslysinu Leitin enn ekki borið árangur Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Sjá meira